Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Blaðsíða 54

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Blaðsíða 54
þeim viðhelst eftir að meðferð er lokið18. Við fengum styrki frá Uppbyggingarsjóði Austurlands og þróunarstyrk frá VIRK Starfsendurhæfingarsjóði til að koma úrræðinu á laggirnar. Það reyndist mun meiri vinna en við gerðum ráð fyrir í upphafi að koma Lifðu betur í loftið og ýmis ljón urðu á veginum. Það sem við töldum að tæki um eitt ár tók í raun vel rúmlega þrjú. En í apríl 2020 opnaði Lifðu betur vefnámskeiðið sitt og var um leið sótt um skráningu á því í úrræðakerfi VIRK. Lifðu betur fellur klárlega í sjálfshjálparflokk netúrræða, stuðningur er í boði í gegnum tölvupóst og í tilfelli skjólstæðinga VIRK er alltaf til staðar ráðgjafi sem vísar skjólstæðingi í úrræðið og eru ráðgjafarnir hvattir til að styðja við skjólstæðinga sína á meðan þeir fara í gegnum námskeiðið. Að öðru leyti ber fólk sjálft ábyrgð á að kynna sér námsefnið og vinna verkefnin. Viðbrögð við úrræðinu hafa verið góð og það árangursmat, sem vissulega er enn óformlegt, lofar góðu. Eins og algengt er með sjálfshjálparúrræði komu þó fram vísbendingar, aðallega frá samtölum við ráðgjafa VIRK, að nokkur hluti þátttakenda sem byrjaði námskeiðið kláraði það ekki eins og það var lagt upp. Við höfum því nýlega gert endurbætur á námskeiðinu, sérstaklega eins og það snýr að skjólstæðingum VIRK, þar sem þátttakendur fá skýrari fyrirmæli í upphafi námskeiðs og mjög reglulega tölvupósta yfir námskeiðstímann til að minna þau á að sinna verkefnunum og halda áfram. Við bindum vonir við að þetta hjálpi til við að leysa þennan vanda en við lítum svo á að úrræðið sé enn í þróun og mótun og munum við leitast áfram við að betrum- bæta það í samvinnu við skjólstæðinga og samstarfsaðila. Tæknin sem er hluti af okkar daglega lífi verður sífellt öflugri, ódýrari og útbreiddari og það verður mikilvægt í framtíðinni að kanna hvernig við getum best nýtt hana okkur til gagns. Tækifærin á þessu sviði eru of stór til að láta þau fram hjá sér fara.“ íslenskt fyrirtæki sem þróar stafrænar lausnir til að fyrirbyggja og vinna að meðhöndlun fjölbreyttra lífsstílsvandamála. Í dag bjóða flestir sjálfstætt starfandi meðferðaraðilar og sálfræðistofur líka upp á meðferð í gegnum myndsímtöl sem valkost við hefðbundna meðferð, sem er til fyrirmyndar. Dæmi um úrræði sem eru á íslensku, að- gengileg á netinu og byggð á gagnreyndum aðferðum. (Sjá töflu hér fyrir ofan) Framtíðarsýn og tækifæri Það felast mörg tækifæri í því að nýta tæknina og netið í geðheilbrigðisþjónustu. Stærstu tækifærin felast sennilega í því að gera hjálplega þekkingu og fræðslu um líðan og geðheilbrigði mun aðgengilegri fyrir mun stærri hópa en áður hefur þekkst. Að sama skapi er risastórt tækifæri fólgið í fjar- og netmeðferðum til að gera gagnreynda meðferð aðgengilega fyrir nánast alla, óháð búsetu, veðri, færð og efnahag. Þannig geta fleiri fengið viðeigandi þjónustu fyrr sem myndi fyrirbyggja að vandi þróaðist á alvarlegra stig. Samfélagslegur ávinningur af slíkum úrræðum gæti mögulega verið gríðarlegur. Annað tækifæri er hreinlega að bæta árangur meðferðar með tæknilausnum. Notkun snjallsímaforrita, tölvuleikja og sýndarveruleika býður upp á tækifæri til að útfæra inngrip og meðferðir á annan hátt sem jafnvel gæti með áframhaldandi þróunar- og rannsóknarvinnu bætt árangur meðferða. Nú þegar er margt í boði fyrir þá sem vilja bæta líðan sína og geðheilsu með fjar- og netúrræðum. Þróunin hefur verið hröð síðustu ár og ekki er líklegt að það hægi á henni í bráð. Tæknin sem er hluti af okkar daglega lífi verður sífellt öflugri, ódýrari og útbreiddari og það verður mikilvægt í framtíðinni að kanna hvernig við getum best nýtt hana okkur til gagns. Tækifærin á þessu sviði eru of stór til að láta þau fram hjá sér fara. Sjálfshjálp Netmeðferð Handbók um HAM frá Reykjalundi (ókeypis): www.ham.reykjalundur.is/medferdarhandbok/ Lifðu betur – Sjálfshjálparnámskeið byggt á ACT: www.lifðubetur.is Mín líðan – Netmeðferð við þunglyndi, kvíða, lágu sjálfsmati og félagskvíða: www.minlidan.is Betri svefn – Netmeðferð (HAM) við svefnvanda: www.betrisvefn.is Íslenskir frumkvöðlar Íslendingar hafa almennt staðið nokkuð framarlega í þróun net- og fjarúrræða. Sem dæmi má nefna íslenska hugbúnaðar- fyrirtækið Kara Connect (www.karaconnect. com) sem er framarlega í þróun lausna fyrir fjarmeðferð, Lifekeys (lifekeyshealth.com) sem er stórt fyrirtæki á sviði fjarmeðferðar í Evrópu og er stýrt af Íslendingnum Guðmundi Ebenezer Birgissyni sálfræðingi og AI Therapy (www.ai-therapy.com), fyrirtæki sem býður upp á hugræna atferlismeðferð á netinu meðal annars við félagsfælni, þróað af dr. Fjólu Dögg Helgadóttur sálfræðingi. Sidekick (https://sidekickhealth.com) er svo 54 virk.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.