Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Blaðsíða 27
VIRK
Útbúin hefur verið vefsíðan heilsueflandi.is
fyrir verkefnið sem öll fyrirtæki geta nýtt sér
þegar viðmiðin verða aðgengileg en síðan
er í þróun og ekki opin eins og er.
Fyrirtæki tilraunakeyra
viðmið og verklag
Frá því í febrúar 2020 hafa viðmið og verk-
lag fyrir Heilsueflandi vinnustaði verið í
tilraunakeyrslu hjá nokkrum vinnustöðum
og erum við sem að verkefninu stöndum
þeim afar þakklát fyrir framtakið. Öllum má
vera ljóst að þetta hefur ekki verið auðvelt
verkefni samhliða því að takast á við áhrifin
af covid, en samt gengið vonum framar.
Vinnustaðirnir sem taka þátt voru valdir úr
stórum hópi umsækjenda og var tekið mið af
starfsemi, stærð og staðsetningu. Leitast var
við að hafa vinnustaðina sem fjölbreyttasta
til að hægt væri að prufa verklagið við
mismunandi aðstæður. Auk valinna vinnu-
staða taka stofnanirnar þrjár sem standa að
þróun á Heilsueflandi vinnustað einnig þátt.
Vinnustaðirnir sem tilraunakeyra verkefnið
eru því þrettán talsins:
• Alta
• Efla
• Embætti landlæknis
• Héraðsdómur Reykjavíkur
• Hjúkrunarheimilið Uppsalir
• Hótel Geysir
• Icelandair
• Marel
• Samband íslenskra sveitarfélaga
• Strætó
• Vinnueftirlitið
• VIRK Starfsendurhæfingarsjóður
• Þjónustuskrifstofa iðnfélaga
En hvað er Heilsueflandi
vinnustaður?
Heilsueflandi vinnustaður er vinnustaður
sem hefur sett sér það markmið að stuðla
að betri heilsu og vellíðan starfsfólks.
Markmiðinu nær vinnustaðurinn með því að
búa til samfélag sem tekur mið af viðmiðum
fyrir Heilsueflandi vinnustaði en þau verður
eins og áður kom fram hægt að nálgast á
vefsíðunni www.heilsueflandi.is.
Þau fyrirtæki sem taka þátt í tilraunaverk-
efninu hafa verið að prufukeyra viðmiðin í
þeim tilgangi að skoða hvernig þau gagn-
Verkefnið Heilsueflandi vinnustaður er
mikilvægur hluti forvarnarverkefnisins
en aðrir hlutar þess eru velvirk.is, vitundarvakning
samanber „Er brjálað að gera“ verkefnið og rannsókn
sem hefur það að markmiði að einangra breytur sem
mögulega hafa áhrif á það hvort einstaklingar komast
aftur til starfa eftir veikindaleyfi.“
Margir halda að heilsueflandi vinnustaður
snúist um að allir eigi nú að fara út að
hlaupa, lyfta eða borða ofurhollt en við-
miðin eru mun víðtækari en svo. Þau
spanna alla þá þætti sem hafa áhrif á
heilsu okkar í vinnunni. Viðmiðin lúta
þannig að stjórnunarháttum, starfsháttum,
vellíðan í vinnu, heilsu og útiveru, áfengi og
vímuefnum, vinnuumhverfi, hollu matar-
æði og umhverfi vinnustaðar. Viðmiðin
endurspegla heildræna sýn á heilsu sem öll
fyrirtæki ættu að geta tileinkað sér, fyrirtæki
sínu og starfsfólki til hagsbóta. Að huga að
vellíðan starfsfólks og hlúa að heilsunni
á vinnutíma verður seint ofmetið því við
verjum jú flest um þriðjungi tíma okkar við
vinnu.
Í verkefninu Heilsueflandi vinnustaður er lögð
mikil áhersla á að viðmiðin geti átt við allar
tegundir af starfsemi og stærð vinnustaða.
Einnig að um langhlaup til bættrar heilsu
starfsfólks sé að ræða og mikil áhersla er
lögð á að verkefnið sé viðráðanlegt. Þannig
er mælt með því að markmiðasetning sé
hugsuð til framtíðar og verið sé að taka lítil
skref í jákvæða átt á hverju tímabili eftir því
sem við á á hverjum vinnustað fyrir sig.
Að tilraunaverkefninu loknu verða viðmiðin
aðgengileg öllum fyrirtækjum í landinu og er
stefnt að því að það náist fyrir lok þessa árs,
2021.
ast auk þess að veita endurgjöf til að
sníða af annmarka sem gætu verið bæði á
viðmiðunum og framkvæmd verkefnisins.
Samhliða prufukeyrslunni hafa þau verið að
innleiða heilsueflingu hjá sínum vinnustað.
Í upphafi tilraunarinnar var hugmyndin um
Heilsueflandi vinnustað kynnt fyrir fulltrúum
vinnustaðanna sem stofnuðu síðan stýrihópa
sem halda utan um verkefnið á hverjum
vinnustað fyrir sig. Hlutverk stýrihópanna
er að innleiða Heilsueflandi vinnustað með
því að ákveða hversu hátt skor eigi við í
hverju viðmiði fyrir sig og skrá stöðuna á
einkasvæði vinnustaðarins á heilsueflandi.
is. Í framhaldinu taka stýrihóparnir í samráði
við starfsmenn ákvarðanir um þau skref
sem vinnustaðurinn hefur áhuga á að taka
í átt að heilsueflingu.
27virk.is