Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Blaðsíða 75

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Blaðsíða 75
AÐSEND GREIN Fjölda annarra áskorana eru framundan svo sem hlýnun jarðar, jöfnun tækifæra á vinnu- markaði, þörf á stöðugri endurmenntun starfsmanna, svo eitthvað sé nefnt. Leiðtogahæfni til framtíðar Með allar þessar áskoranir í huga er nokkuð ljóst að verkefnin framundan eru bæði krefjandi og spennandi. Að vera leiðtogi í dag og til framtíðar verður ærið verkefni, sérstaklega er snýr að hinum mannlega þætti stjórnunar. Það er að myndast aukinn þrýstingur frá starfsmönnum samtímans um að hlúð sé að þáttum sem leiða til vaxtar svo sem þróun nýrrar hæfni ásamt kröfu um fjölbreytni í störfum. Yngstu kynslóðirnar á vinnumarkaði, aldamótakynslóðin og Z-kynslóðin, leita stöðugt að tækifærum til að auka mannlega hæfni sína og vilja gjarnan fá þjálfun í sjálfstrausti, virkni, gagnrýnni hugsun, þrautseigju, sköpun og tilfinningagreind. Þetta mun krefja leið- togann til að líta í eigin rann og vera tilbúinn að hlúa að eigin vexti til að geta leitt aðra á þeirra vegferð til vaxtar6. Með forsendur fjórðu iðnbyltingarinnar í huga eru eftirfarandi hæfileikar hve mikilvægastir í fari leiðtogans: aðlögunarhæfni, sjálfsvitund, samvinna, sköpun, frumkvæði, gagnrýnin hugsun og samningatækni7. Önnur hæfni sem oft er nefnd í tengslum við fram- tíðina er tilfinningagreind, hæfileikinn til að mynda traust og hafa jákvæð félagsleg áhrif. Ekki má gleyma samskiptahæfileika leiðtogans. Hann þarf að vera í stakk búinn til að hlúa að tilgangsríkri samvinnu, virkni allra samstarfsmanna ásamt því að skapa umhverfi sem heldur í heiðri mikilvægi fjölbreytileikans og virkar þátttöku allra hlut- aðeigandi. Samskiptin á 21. öldinni gerast æ flóknari. Við þurfum að geta unnið í alþjóðlegum teymum þar sem að skilningur menningarheima og nýrra samskiptaleiða eru grundvöllur fyrir árangri teymisins. 1. Endurskipulagning vinnuafls vegna sjálfvirknivæðingar Áætlað hefur verið að allt að 47% af störfum hafi horfið eða tekið umbreytingu árið 2034. Þetta mun kalla á endurskipulagningu starfa og vinnumenningar. Svokölluðum „þekkingarstarfsmönnum“ verður skipt út fyrir gervigreind og þörfin mun aukast á hæfni sem ekki eingöngu snýr að tækni heldur sköpun og félagsgreind. Sjálfvirknivæðingin mun kalla okkur til starfa þar sem að mannlegi þátturinn mun skipta sköpum2. Þessi bylting mun reyna á hæfileika okkar til að endurmeta hvaða hæfniþættir manneskjunnar hafa enn forskot á gervigreindina svo sem tjáning og tengslamyndun, nýsköpun, tilfinningagreind ásamt þeirri ábyrgð sem snýr að siðferðislegum ákvörðunum vegna nýrrar tækni3. 2.Breitt kynslóðabil á vinnumarkaði Mörg fyrirtæki takast á við þá áskorun að vera með breitt kynslóðabil á vinnumarkaði. Á komandi árum er áætlað að stærsta kynslóðin á vinnu- markaði verði hin svokallaða aldamótakynslóð (starfsmenn fæddir á milli 1980-2000). Þessi kynslóð hefur aðra sýn á eðli og tilgang starfa. Fyrir þeim er starf tækifæri til að þróast og vaxa sem manneskjur. Mögulega er þessi löngun það sem að aðgreinir þau hve mest frá öðrum starfandi kynslóðum á vinnumarkaði4. Þau setja spurningarmerki við hið hefðbundna vinnusiðferði og tryggð starfsmanns við fyrirtækið. Nýrri kynslóðir velja fyrirtækin sem að setja á oddinn starfsþróun, tilgang starfa, samfélagslega ábyrgð og verndun umhverfis. Þessi nýi „tónn” krefst mikils af leiðtogum framtíðarinnar svo sem umburðarlyndis og endurskoðunar á eigin gildismati. 3. Andlegar áskoranir Það er vel þekkt stærð að einn af hverjum fjórum mun á sinni lífstíð takast á við andlegar áskoranir svo sem þunglyndi eða kvíða. Streita, kvíði og þunglyndi eru stærstu áhrifavaldar veikinda í hinum vestræna heimi5. Allt að þrír af hverjum tíu af aldamótakynslóðinni hafa nú þegar orðið fyrir kulnun í starfi og allt að sjö af hverjum tíu hafa upplifað einhver einkenni kulnunar6. Þetta eru tölur sem allir atvinnurekendur þurfa að vera meðvitaðir um og setja á oddinn að byrja að hlúa að forvörnum á vinnustöðum þar sem að fókusinn er andleg, félagsleg og tilfinningaleg vellíðan. Við þörfnumst vinnustaðamenningar þar sem að leiðtogar taka hratt og örugglega á þessum áskorunum og eru á sama tíma sterkar fyrirmyndir um mikilvægi þessara þátta. Leiðtogi teymisins þarf að byggja upp traust og trúverðugleika, þvert á takmarkanir staf- rænnar byltingar3. Að öðrum hæfniþáttum ólöstuðum vil ég nefna tvo sem að eru áberandi og mikið í umræðunni í tengslum við áhrif COVID 19, en það eru þrautseigja og tilfinningagreind. Við þörfnumst klárlega fleiri leiðtoga sem að geta haldið ró sinni í mótvindi og hafa aðlögunarhæfni í síbreyti- legu umhverfi. Að þjálfa sig fyrir hið óvænta Það er ekkert til lengur sem heitir að vera „fullnuma“ í fræðunum, að hafa klárað gráðuna eða lokið skólagöngu. Hæfnibilið sem myndast hefur á atvinnumarkaði kallar á takmarkalausa endurmenntun. Hæfnibilið einkennist af stækkandi hópi starfsmanna sem upplifa sig ekki hafa hæfnina til að sinna síbreytilegu starfi þar sem að tækninýjungar spila aðalhlutverkið. 75virk.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.