Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Blaðsíða 75
AÐSEND GREIN
Fjölda annarra áskorana eru framundan svo
sem hlýnun jarðar, jöfnun tækifæra á vinnu-
markaði, þörf á stöðugri endurmenntun
starfsmanna, svo eitthvað sé nefnt.
Leiðtogahæfni til framtíðar
Með allar þessar áskoranir í huga er nokkuð
ljóst að verkefnin framundan eru bæði
krefjandi og spennandi. Að vera leiðtogi
í dag og til framtíðar verður ærið verkefni,
sérstaklega er snýr að hinum mannlega
þætti stjórnunar. Það er að myndast aukinn
þrýstingur frá starfsmönnum samtímans um
að hlúð sé að þáttum sem leiða til vaxtar svo
sem þróun nýrrar hæfni ásamt kröfu um
fjölbreytni í störfum. Yngstu kynslóðirnar
á vinnumarkaði, aldamótakynslóðin og
Z-kynslóðin, leita stöðugt að tækifærum
til að auka mannlega hæfni sína og vilja
gjarnan fá þjálfun í sjálfstrausti, virkni,
gagnrýnni hugsun, þrautseigju, sköpun
og tilfinningagreind. Þetta mun krefja leið-
togann til að líta í eigin rann og vera tilbúinn
að hlúa að eigin vexti til að geta leitt aðra á
þeirra vegferð til vaxtar6.
Með forsendur fjórðu iðnbyltingarinnar í huga
eru eftirfarandi hæfileikar hve mikilvægastir í
fari leiðtogans: aðlögunarhæfni, sjálfsvitund,
samvinna, sköpun, frumkvæði, gagnrýnin
hugsun og samningatækni7. Önnur hæfni
sem oft er nefnd í tengslum við fram-
tíðina er tilfinningagreind, hæfileikinn til
að mynda traust og hafa jákvæð félagsleg
áhrif. Ekki má gleyma samskiptahæfileika
leiðtogans. Hann þarf að vera í stakk búinn
til að hlúa að tilgangsríkri samvinnu, virkni
allra samstarfsmanna ásamt því að skapa
umhverfi sem heldur í heiðri mikilvægi
fjölbreytileikans og virkar þátttöku allra hlut-
aðeigandi. Samskiptin á 21. öldinni gerast
æ flóknari. Við þurfum að geta unnið í
alþjóðlegum teymum þar sem að skilningur
menningarheima og nýrra samskiptaleiða
eru grundvöllur fyrir árangri teymisins.
1. Endurskipulagning
vinnuafls vegna
sjálfvirknivæðingar
Áætlað hefur verið að allt að 47%
af störfum hafi horfið eða tekið
umbreytingu árið 2034. Þetta mun
kalla á endurskipulagningu starfa
og vinnumenningar. Svokölluðum
„þekkingarstarfsmönnum“
verður skipt út fyrir gervigreind
og þörfin mun aukast á hæfni
sem ekki eingöngu snýr að tækni
heldur sköpun og félagsgreind.
Sjálfvirknivæðingin mun kalla okkur
til starfa þar sem að mannlegi
þátturinn mun skipta sköpum2.
Þessi bylting mun reyna á hæfileika
okkar til að endurmeta hvaða
hæfniþættir manneskjunnar hafa
enn forskot á gervigreindina svo
sem tjáning og tengslamyndun,
nýsköpun, tilfinningagreind
ásamt þeirri ábyrgð sem snýr að
siðferðislegum ákvörðunum vegna
nýrrar tækni3.
2.Breitt kynslóðabil á
vinnumarkaði
Mörg fyrirtæki takast á við þá
áskorun að vera með breitt
kynslóðabil á vinnumarkaði.
Á komandi árum er áætlað
að stærsta kynslóðin á vinnu-
markaði verði hin svokallaða
aldamótakynslóð (starfsmenn
fæddir á milli 1980-2000).
Þessi kynslóð hefur aðra sýn á
eðli og tilgang starfa. Fyrir þeim er
starf tækifæri til að þróast og vaxa
sem manneskjur. Mögulega er
þessi löngun það sem að aðgreinir
þau hve mest frá öðrum starfandi
kynslóðum á vinnumarkaði4.
Þau setja spurningarmerki við
hið hefðbundna vinnusiðferði og
tryggð starfsmanns við fyrirtækið.
Nýrri kynslóðir velja fyrirtækin sem
að setja á oddinn starfsþróun,
tilgang starfa, samfélagslega
ábyrgð og verndun umhverfis.
Þessi nýi „tónn” krefst mikils af
leiðtogum framtíðarinnar svo sem
umburðarlyndis og endurskoðunar
á eigin gildismati.
3. Andlegar áskoranir
Það er vel þekkt stærð að einn af
hverjum fjórum mun á sinni lífstíð
takast á við andlegar áskoranir svo
sem þunglyndi eða kvíða. Streita,
kvíði og þunglyndi eru stærstu
áhrifavaldar veikinda í hinum
vestræna heimi5. Allt að þrír af
hverjum tíu af aldamótakynslóðinni
hafa nú þegar orðið fyrir kulnun í
starfi og allt að sjö af hverjum tíu
hafa upplifað einhver einkenni
kulnunar6. Þetta eru tölur sem allir
atvinnurekendur þurfa að vera
meðvitaðir um og setja á oddinn
að byrja að hlúa að forvörnum
á vinnustöðum þar sem að
fókusinn er andleg, félagsleg og
tilfinningaleg vellíðan. Við þörfnumst
vinnustaðamenningar þar sem að
leiðtogar taka hratt og örugglega
á þessum áskorunum og eru á
sama tíma sterkar fyrirmyndir um
mikilvægi þessara þátta.
Leiðtogi teymisins þarf að byggja upp traust
og trúverðugleika, þvert á takmarkanir staf-
rænnar byltingar3. Að öðrum hæfniþáttum
ólöstuðum vil ég nefna tvo sem að eru
áberandi og mikið í umræðunni í tengslum
við áhrif COVID 19, en það eru þrautseigja
og tilfinningagreind. Við þörfnumst klárlega
fleiri leiðtoga sem að geta haldið ró sinni í
mótvindi og hafa aðlögunarhæfni í síbreyti-
legu umhverfi.
Að þjálfa sig fyrir hið óvænta
Það er ekkert til lengur sem heitir að vera
„fullnuma“ í fræðunum, að hafa klárað
gráðuna eða lokið skólagöngu. Hæfnibilið
sem myndast hefur á atvinnumarkaði kallar
á takmarkalausa endurmenntun. Hæfnibilið
einkennist af stækkandi hópi starfsmanna
sem upplifa sig ekki hafa hæfnina til að sinna
síbreytilegu starfi þar sem að tækninýjungar
spila aðalhlutverkið.
75virk.is