Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Blaðsíða 25

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Blaðsíða 25
 VIRK vegna er afar mikilvægt að vandi einstaklings sé rétt greindur og viðeigandi meðferð eða inngrip valin með hliðsjón af hugsanlegum öðrum orsakaþáttum en geðrænum. Það er allt eins hugsanlegt að sá vandi sem virðist steðja að þjóðinni liggi einhvers staðar á mörkum hins félagslega og geðræna og skilgreinist þ.a.l. illa í greiningarkerfum heilbrigðiskerfisins. Vísbendingu um þetta gæti verið að finna í árlegum mælingum Hagstofunnar á upplifun fólks af heilsufarslegum takmörkunum í sínu daglegu lífi21. Frá árinu 2004 hefur hlutfall fólks sem telur sig vera með nokkrar eða verulegar heilsufarslegar takmarkanir í daglegu lífi vaxið nokkuð, úr 27% árið 2004 í 32% árið 2018 (mynd 11). Þetta á sérstaklega við um konur en hlutfall þeirra var 31% árið 2004, 21% árið 2007 og 38% árið 2018. Þó erfitt sé að draga þá ályktun af þessum tölum að um eiginlegan heilbrigðisvanda sé að ræða er þróunin þó óneitanlega afar forvitnileg, sérstaklega með hliðsjón af öðru talnaefni um geðheilsu. Hvað sem öllum vangaveltum um geðheilbrigði þjóðarinnar líður er alveg ljóst að getgátur og ágiskanir þar að lútandi ættu að heyra liðinni tíð. Brýnt er að meta vandann heildstætt út frá öllum kerfum með tilliti til samfélagsgerðar og lýðfræðilegra breytinga. Til að vel eigi að vera er áríðandi að skimleitanir á helstu einkennum þunglyndis- og kvíða séu samanburðarhæfar með tilliti til rannsóknaraðferða og eiginleika úrtaks/þýðis. Einnig þarf að framkvæma þær reglubundið og á samræmdan máta. Jafnframt þurfa rannsóknirnar að spyrja spurninga er lúta að öðrum hugsanlegum áhrifa- og/eða orsakaþáttum andlegrar vanlíðunar, t.a.m. hvort líkamleg veikindi séu til staðar eða tímabundnir streituþættir og hvort vanlíðanin hafi áhrif á færni einstaklinga og getu til daglegra athafna. Það væri mikill kostur ef hægt væri að setja niðurstöður slíkra rannsókna í samhengi við talnaefni um vinnumarkaðsþátttöku, veikindafjarveru, skólasókn, brotthvarf úr námi og upplifun fólks á eigin lífsgæðum. Án slíkra yfirgripsmikilla rannsókna og samræmingar í talnaefni munum við að öllum líkindum halda áfram að giska. Heimildir 1. Ragna Gestsdóttir. Vitundarvakning og viðtöl vekja athygli: setjum geðheilsu í forgang. Mannlíf. 20. október 2020 og „Söfnuðu tíu þúsund undirskriftum á einum sólarhring.“ Mbl.is. 16. október 2020. 2. Alþjóðlega heilbrigðisstofnunin (WHO): www. who.int 3. Stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030. Heilbrigðisráðuneytið 2019. 4. Nicola Morant. What is mental illness? Social representation of mental illnes among British and French mental professionals. LSE Research Online 1995; 4(1):41-52. 5. World Health Organization (WHO), www. who.int 6. Guðný Anna Arnþórsdóttir, Halldór Kolbeinsson, Guðrún Guðmundsdóttir o.fl. Rannsóknar- og þróunarverkefnið RAI-MH. Könnun notagildis staðlaðs mælitækis RAI-MH (Resident Assessment Instrument Mental Health) hjá hópi sjúklinga á endurhæfingar-geðdeildum Landspítala- háskólasjúkrahúss. Geðsvið Landspítala- háskólasjúkrahúss 2003; bls. 58. 7. Michael T. Treadway og David H. Zald. Reconsidering anhedonia in depression: Lessons from translational neuroscience. Neuroscience and Biobehavioral Reviews 2010; 35: 537-55. 8. Talnabrunnur embættis landlæknis, ágúst 2017, bls. 1. 9. Inga Dóra Sigfúsdóttir, Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, Jón Friðrik Sigurðsson o.fl. Trends in depressive symptoms, anxiety symptoms and visits to healthcare specialists: A national study among Icelandic adolescents. Scandinavian Journal of Public Health 2008; 36(4): 361-368. 10. Hér er einkum miðað við sjúkdóma með eftirtalda IDC-10 kóða: F32, F33, F34, F40, F41 og F42. 11. Staðtölur Sjúkratrygginga Íslands og Hagstofa Íslands, komur til sérgreinalækna eftir sérgreinum 1991-2017. 12. Hagstofa Íslands. Þunglyndiseinkenni algeng á Íslandi. 13. mars 2017, www. hagstofa.is 13. Andri Haukstein Oddsson. Depressive and Anxiety Symptoms Among University Students in Iceland. Meistararitgerð í sálfræði. Háskólinn í Reykjavík 2017. 14. Sigurður Thorlacius og Sigurjón B. Stefánsson. Algengi örorku vegna geðraskana á Íslandi 1. desember 2002. Læknablaðið 2004; 90: 615-619. 15. Ársskýrslur og staðtölur Tryggingastofnunar ríkisins árin 2005 og 2013 og Tölfræðigreiningar Tryggingastofnunar ríkisins 2009, 2010 og 2013. 16. Tómas Helgason. Faraldsfræðilegar rannsóknir í geðlæknisfræði á Íslandi. Læknablaðið 1994; 80:155-164. 17. Tómas Helgason, Kristinn Tómasson og Tómas Zoëga. Algengi og dreifing notkunar geðdeyfðar,- kvíða- og svefnlyfja. Læknablaðið 2003; 89: 15-22. 18. Lyfjagagnagrunnur landlæknis. Hlutverk og rekstur 2005-2014. Embætti landlæknis 2015. 19. Tómas Helgason, Halldóra Ólafsdóttir, Eggert Sigfússon o.fl. Notkun geðdeyfðarlyfja og þunglyndisraskanir. Skýrsla nefndar um notkun geðdeyfðarlyfja. Heilbrigðisráðuneytið 1999. 20. Tómas Helgason, Helgi Tómasson og Tómas Zoëga. Antidepressants and public health in Iceland. Time series analysis of national data. British Journal of Psychiatry 2004; 184: 157-162. 21. Hagstofa Íslands. Hagur og heilbrigði Íslendinga. Mynd 11Heimild: Hagstofa Íslands 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 40% 30% 20% 10% 0% Hlutfall fólks með nokkrar eða verulegar heilsufarslegar takmarkanir í daglegu lífi árin 2004-2018 Alls Konur Karlar 25virk.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.