Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Qupperneq 19
VIÐTAL
gekk svo gjörsamlega á vegg. Ótrúlegt að
upplifa þetta.“
Hvað kom þér til hjálpar?
„Konan mín gerði sér grein fyrir hve illa ég
var á mig kominn. Hún gekk í málið, fór
beinlínis með mig á Heilsugæslu Suðurnesja
í Keflavík. Þar fékk ég viðtal við góðan
lækni sem lagði til að ég myndi sækja um
þjónustu hjá VIRK. Ég samþykkti það og
hann sótti um fyrir mig. Mér leið þó áfram
mjög illa og fannst dálítið erfiður tíminn
þar til ég fékk samþykki fyrir þjónustu hjá
VIRK. Samt tók það aðeins tvo mánuði. Þá
var ég orðinn svo illa á mig kominn að ég
gat engan veginn komið nálægt starfinu hjá
fyrirtækinu. Ég hafði reyndar selt töluvert í
því þegar þarna var komið sögu. Ég talaði
því við meðeigendur mína sem sýndu líðan
minni skilning. Eigi að síður sótti kvíðinn að
mér sem aldrei fyrr.
Ég hafði lengi átt erfitt með að sofa, vakti á
nóttunni og fann fyrir vaxandi spennu. Ég
forðaðist eftir megni að svara í síma og átti í
mestu erfiðleikum með að svara tölvupósti. Ég
einangraði mig líka æ meira. Loks kom sem
sagt að því að ég gafst upp. Ég hafði vakað
alla nóttina og lá bara í rúminu algjörlega
búinn að vera. Það var í febrúar 2019 sem
erfiðleikarnir urðu mér óyfirstíganlegir. Þess
skal þó getið að vetrarmyrkrið átti ekki neinn
þátt í vanlíðan minni né heldur hafði ég þjáðst
af neinni geðröskun fram til þess að kulnunin
heltók mig.“
Var kominn með
sjálfsvígshugsanir
Hvernig stóðu fjármálin og einkalífið á
þessum tíma?
„Vel. Ég var ágætlega settur í einkalífi og
fármálin voru líka í góðu lagi, bæði hjá mér
sjálfum og fyrirtækinu. En þótt konan mín og
börnin styddu mig og sýndu ástandi mínu
skilning og hlýju var ég samt kominn með
sjálfsvígshugsanir þegar ég fór í þjónustu
hjá VIRK vorið 2019. Mér fannst sem ég
myndi aldrei geta unnið neitt framar. Þetta
var svakalegt tímabil. Líklega bjargaði fjöl-
skyldan hreinlega lífi mínu þegar verst
horfði. Við hjónin eigum fjögur börn og ellefu
barnabörn sem gerðu sitt til að gleðja mig.
Jákvætt var líka að í upphafi fékk ég greitt
veikindaleyfi hjá fyrirtækinu, síðan kom
stéttarfélagið til skjalanna og í lok þjónustu-
tímabilsins hjá VIRK var ég kominn með
endurhæfingarlífeyri.
Ráðgjafi VIRK reyndist
frábærlega
Strax þegar ég komst í þjónustu hjá VIRK
ákvað ég með sjálfum mér að neyta allra
úrræða til þess að að ná mér á strik á ný.
Ráðgjafi VIRK hjá mínu stéttarfélagi reyndist
mér frábærlega. Við mótuðum saman
áætlun. Ég hóf þegar meðferð hjá sálfræðingi
og áttaði mig til fulls á að áfengi var ekki leið
til slökunar. Ég hætti því að fá mér í glas en
fór í staðinn að stunda hugleiðslu, jóga og fór
í heilsurækt. Það var gríðarlega erfitt að stíga
fyrstu skrefin og ég vildi í fyrstu sjálfur reyna
að vinda ofan af hinu slæma ástandi án lyfja.
Smám saman tók ég þó að átta mig á að lyf
gætu hjálpað. Ég gæti þannig fyrr losnað við
streituna og kvíðann. Í framhaldi af þessari
niðurstöðu fór ég á heilsugæslustöðina í
Keflavík þar sem læknirinn minn ávísaði
mér kvíðastillandi lyfi. Ég var þá enn þannig
stemmdur að ég sat bara út í horni og ef
einhver hringdi bjöllunni gat ég varla farið til
dyra. Ég var sannarlega gjörsamlega búinn
á því þegar ég komst í þjónustu hjá VIRK.“
Var líklega lengi í afneitun
Áttir þú erfitt með að lýsa ástandi þínu
þegar verst var?
„Líklega var ég nokkuð lengi í afneitun. En
þegar ég fór til læknisins og síðan til VIRK
tókst mér að tala af hreinskilni um líðan
mína. Þrátt fyrir að ég væri á þeim tíma
lokaður inn í eigin ruglingslegum heimi. Ég
stríddi við ólýsanlegan kvíða vegna fyrirtæki-
sins. Mér fannst ég ekki gera skyldu mína.
Síðast en ekki síst dró ég ekki undan sjálfs-
vígshugsanirnar sem ásóttu mig. Vafalaust
þess vegna var tekið fast á málum.
Það var ekki fyrr en síðla árs 2019 sem ég fór
að sjá til sólar. Úrræðin sem ég og ráðgjafinn
settum stefnuna á voru fyrst og fremst
sálfræðiþjónusta, heilsurækt, hugleiðsla og
jóga. Hugleiðslan hjálpaði mér heilmikið, ég
tók að róast og í framhaldinu að hugsa minn
gang. Hægt og bítandi byggði ég þannig upp
andlega og líkamlega heilsu.“
Ákvað að leita á nýjar slóðir
Hvenær fannst þér tímabært að hefja
vinnu á ný?
„Ég stefndi á að fara aftur til starfa hjá
fyrirtækinu mínu í upphafi árs 2020. En
við þá tilhugsun eina versnaði mér aftur og
kvíðinn tók að sækja á mig á ný. Fljótlega
varð því ljóst að sú fyrirætlun að fara aftur til
vinnu í fyrirtækinu myndi ekki ganga.
Ég hélt áfram í þjónustunni hjá VIRK og
þremur mánuðum síðar tók ég ákvörðun
um að selja það sem ég átti eftir í fyrirtækinu
og leita á aðrar slóðir. Annað var bara ekki
í boði.“
Hvert stefndir þú á atvinnumarkaði eftir
sölu fyrirtækisins?
„Ég ákvað að sækja um afleysingavinnu
hjá Sorpeyðingarstöð Suðurnesja í Keflavík
um sumarið og fékk hana. Ekki var um að
ræða möguleika á að byrja í hálfu starfi.
Ég varð að kasta mér út í djúpu laugina, ef
svo má segja, fara í hundrað prósent starf
seinnipartinn í maí 2020. Það voru mikil
viðbrigði en það hjálpaði mér mikið að ég
þekkti staðinn og samstarfsfólkið og kunni
til verka. Mér jókst sjálfstraust, fékk aftur
trú á sjálfan mig.“
Aldrei liðið eins vel og nú
Hvað kom til að þú ákvaðst að flytja
búferlum, kaupa hús í Reykholti í
Borgarfirði?
„Í markþjálfun sem ég sótti á vegum VIRK
var eitt þeirra markmiða sem ég setti mér að
flytja á friðsælan stað. Þann draum höfðum
við hjónin lengi átt. Við ókum jafnan framhjá
Reykholti á leiðinni í sumarbústaðinn okkar
í Fljótstungulandi og smám saman mótaðist
sú hugmynd að þar væri eftirsóknarvert að
búa. Þegar okkur stóð svo til boða að kaupa
hús í Reykholti slógum við til. Við höfðum
engu að tapa. Ég sæki nú þaðan vinnu í
sorpeyðingarstöðina í Keflavík viku í senn og
held þá til í hjólhýsi. Þetta er ekki löng leið að
keyra – flutningurinn í Reykholt er ein besta
ákvörðun sem við höfum tekið hjónin.“
Ertu búinn að ná fullri heilsu?
„Mér hefur aldrei liðið eins vel á ævinni eins
og nú. Ýmislegt hefur þó breyst, ég er ekki
eins mannblendinn og ég var, einbeitingin
er ekki alveg komin, ég les minna og horfi
minna á sjónvarp í frítímum. Áður hafði ég
áhuga á ljósmyndun en sinni því lítt nú. Ég á
því eitt og annað óunnið ennþá.
Ég var kominn á þann myrka stað að hugsa
um að taka eigið líf. Allt sem fyrir mig var
gert hjá VIRK kom mér til heilsu og vinnu á
ný. VIRK var mitt björgunarskip.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Mynd: Lárus Karl Ingason
19virk.is