Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Page 31
VIÐTAL
Veistu eitthvað um þá sem leita til þín
áður en þeir koma?
„Já, þá er ég búin að fá upplýsingar í
beiðni frá tilvísandi lækni. Einnig í svörum
einstaklingsins við spurningum sem hann
hefur svarað í kerfi VIRK í upphafi. Ég segi
því þeim sem til mín koma að ég hafi þessar
upplýsingar og fer yfir þær með viðkomandi
og þá bætast venjulega við nánari frásagnir.
Ég segi fólkinu að ég sé bundin trúnaði og
yfirleitt finn ég að það treystir mér.
Ég legg áherslu á að mæta mínum þjónustu-
þegum þar sem þeir eru staddir, ef svo má
orða það. Þegar manneskjan er komin inn
til mín þá á hún tímann minn; þetta segi
ég við nema sem eru stundum hjá mér í
náms- og starfsráðgjöf. Ég legg mig fram
um að hlusta vel og láta viðkomandi finna
að ég sé að einbeita mér að því sem hann
hefur að segja og að hann skipti máli.“
Hvaðan koma þínir þjónustuþegar?
„Ég starfa sem ráðgjafi hjá Bandalagi
starfsmanna ríkis og bæja og til mín koma
starfsmenn úr hinum ýmsu starfsgreinum
og með mismunandi menntun – allt upp
í háskólamenntun. En þeir eiga það allir
sameiginlegt að vera í stéttarfélagi BSRB.“
Hvernig er kynjahlutfallið hjá þeim sem
leita til þín á vegum VIRK?
„Meirihlutinn er konur en auðvitað koma
karlar líka í þjónustu hér. Í upphafi er fólkið
sem kemur fremur illa statt, ella myndi það
varla leita til VIRK. Það er hrjáð af andlegri
þreytu, streitu, kulnun, afleiðingum slysa
og veikinda og fleira mætti nefna. Sumar
starfsgreinar reyna mikið á líkamlega þann-
ig að með tímanum fer stoðkerfið að láta
undan síga. Oft líður fólki í slíkri stöðu illa,
því líkar starf sitt vel en getur ekki lengur
sinnt því.“
Ræðir fyrst um starf VIRK
Hvernig byrjar þú að ræða við þá sem
koma til þín?
„Áður heilsaði ég nýjum þjónustuþega
með handabandi en nú heilsumst við úr
fjarlægð. Áður bauð ég upp á kaffi og vatn
en þegar grímurnar komu til sögunnar var
það ekki hægt. Svo býð ég viðkomandi
sæti og ræði við hann um VIRK og starfið
þar. Síðan kemur að einstaklingsbundnum
upplýsingum. Eftir það skrái ég þær upp-
lýsingar um einstaklinginn sem máli skipta
inn í kerfi VIRK í samráði við hann.“
Hvað er það sem máli skiptir?
„Fyrst það sem hindrar fólk frá atvinnu-
þátttöku og svo hvaða markmið það setur sér
í endurhæfingunni. Einstaklingurinn stjórnar
alltaf ferðinni en ég er til aðstoðar. Framfarir
eru einnig skráðar og þau úrræði sem gripið
er til hverju sinni í starfsendurhæfingunni.
Í fyrstu hitti ég fólk einu sinni í viku, síðan
mánaðarlega ef allt er með eðlilegum hætti.
Þá er farið yfir hvernig málin ganga. Rætt um
hvert markmið fyrir sig og um framvindu sem
ég skrái svo oftast meðan einstaklingurinn er
hjá mér og fylgist með.
Ekki er samt allt skráð í hina svokölluðu
framvindu. Ýmislegt gerist í lífinu sem hefur
áhrif en á ekki heima í þessum upplýsingum.
En þetta „ýmislegt“ getur verið mikilvægt
og þá er það skráð inn í okkar sérstaka
vinnusvæði með samþykki viðkomandi
einstaklings. Þess má geta að við ráðgjafar
leggjum mikla áherslu á að draga fram
styrkleika einstaklingsins.“
Streita meira áberandi
en áður
Hefur orðið breyting í hópnum sem leitar
til þín á þessum ellefu árum sem þú hefur
unnið hjá VIRK?
„Það hefur auðvitað fjölgað mjög í hópn-
um. Ef ég ætti að nefna eitthvað eitt þá
finnst mér streita meira áberandi en áður
– án þess auðvitað að hafa gert neina
vísindalega rannsókn á þessu – þetta er
meira mín tilfinning. Kannski stafar þetta af
því að fólk verður fyrir meira áreiti nú en
áður – til dæmis vegna samfélagsmiðla.
Svo hefur hraðinn í þjóðfélaginu aukist. Í
stórum dráttum er þetta þó svipað.
Fólk leitar eftir þjónustu hjá VIRK vegna
andlegra erfiðleika, kvíða og þunglyndis og
svo eru það stoðkerfisvandamálin. Lengi
vel þolir fólk álag og streitu en svo gerist
kannski eitthvað sem fyllir mælinn og því
finnst það ekki geta meira. Ekki bætir úr
skák að stundum er fólk ekki með há laun,
til dæmis þeir sem eru einir að reka heimili
og sjá um börn. Fjárhagsáhyggjur valda oft
mjög miklum erfiðleikum.“
Hvernig er hægt að bregðast við slíkum
vanda?
„Fólk sem er í starfsendurhæfingu verður
að vera með trygga framfærslu. Sem
betur fer á fólk sem leitar til VIRK oft inni
veikindaleyfi. Nú kemur það gjarnan fyrr
í þjónustuna sem breytir miklu. Hér áður
kom fólk kannski ekki fyrr en eftir að
það var búið að nýta sinn veikindarétt.
Starfsemi VIRK er orðin þekkt í samfélaginu
sem leiðir til að fólk snýr sér fyrr til okkar.
Læknar benda þeim sem til þeirra leita líka
á þennan möguleika í ríkari mæli.
Þegar launum einstaklinga í veikindaleyfi
lýkur leiðbeinum við ráðgjafar VIRK
þeim hvert þeir geta leitað. Fyrst til síns
stéttarfélags og samhliða því gjarnan til
Sjúkratrygginga Íslands. Þegar þessir
þættir eru fullnýttir getur fólk sótt um
endurhæfingarlífeyri til Tryggingastofnunar.
Hann getur fólk einnig fengið í tiltekinn
tíma samhliða hlutavinnu þegar út á
vinnumarkaðinn kemur.“
Áhrifa Covid-19 gætir enn
ekki að ráði
Hvaða vandamál er algengast að fólki leiti
til VIRK með núna á tímum Covid-19?
„Hvað varðar kórónuveirufaraldurinn þá tel
ég að áhrifa hans sé ekki farið að gæta að
ráði í þeim hópi sem nú er í þjónustu hjá
VIRK. Ég hef allavega ekki enn sem komið
er orðið mikið vör við það. En auðvitað
hefur Covid-19 faraldurinn áhrif á þá sem
komnir voru í þjónustu VIRK þegar hann
hófst. Við höfum fundið það á fólki sem
var byrjað hjá okkur þá að því hefur fundist
ástandið erfitt.“
Þetta hefur gengið ótrúlega vel þótt hvorki
fjarfundir né símaviðtöl komi í staðinn fyrir að hitta
aðra manneskju. Við höfum leitt fólk í gegnum
þetta, hjálpað því að nota búnaðinn. Sumir hafa
verið mjög hikandi, kunnað lítið á tölvur. En í
heild hefur þetta sem sagt gengið vel.“
31virk.is