Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Síða 42
ATVINNULÍFSTENGLAR VIRK
Upplýsingar um einstaklinga í þjónustu hjá
atvinnulífstenglum 2020
V
IRK leggur áherslu á að skapa
fjölbreytt tækifæri fyrir einstaklinga
í þjónustu og styðja þá til endur-
komu inn á vinnumarkaðinn.
Á hverju ári ljúka fjölmargir einstaklinga
þjónustu hjá VIRK og eru virkir á
vinnumarkaði; fara í vinnu, nám eða virka
atvinnuleit. Árið 2020 voru 79% af þeim
virkir á vinnumarkaði við lok þjónustu.
Umtalsverður hluti þeirra fara aftur til sinna
fyrri starfa eða í ný störf með aðstoð ráðgjafa
VIRK í starfsendurhæfingu.
Þó er ávallt ákveðinn hluti einstaklinga
sem er enn með skerta starfsgetu við lok
þjónustu hjá VIRK. Þessi hópur þarf oft
aukna aðstoð við að komast inn á vinnu-
Menntun
Einstaklingar sem komu í þjónustu atvinnulífstengla
Háskólanám
Grunnskóli
Framhaldsskóli / Iðnnám
Réttindanám eða námskeið
(t.d. meirapróf)
35%
30%
27%
8%
Sérfræðistörf
Tækni- og sérmenntað
starfsfólk
Skrifstofustörf
Þjónustu-, umönnunar- og
sölustörf
Störf iðnaðarmanna og
sérhæfðs iðnverkafólks
Störf véla- og vélgæslufólks
Ósérhæfð störf
Hlutfallsleg skipting starfa eftir starfsgreinum
188 störf sem tókst að finna eftir sérstaka aðstoð atvinnulífstengla
14,4%
13,3%
45,2%
5,9%
14,9%
4,2%2,1%
Árið 2020 bárust 430 tilvísanir til atvinnu-
lífstengla frá ráðgjöfum VIRK fyrir þessa
sérstöku þjónustu og voru 135 þeirra enn
í virkri þjónustu hjá atvinnulífstengli við lok
ársins. Á árinu fundust 188 störf og 20
einstaklingar fóru í nám. Vinnuprófanir eru
oft notaðar til að fá betri mynd af vinnu-
getu einstaklinga og í mörgum tilfellum geta
þær endað í áframhaldandi starfi hjá fyrir-
tækinu. Árið 2020 voru 38 vinnuprófanir
settar af stað og af þeim sem þátt tóku
fóru 11 einstaklingar í störf í framhaldi af
vinnuprófun. Flestir, eða 9, hjá sama fyrir-
tæki og þeir voru í vinnuprófuninni hjá en 2
fóru í starf hjá öðru fyrirtæki. Auk þessa fóru
3 einstaklingar í nám við lok vinnuprófunar.
Grundvöllur farsællar atvinnutengingar er
gott samstarf við fyrirtæki og gegna atvinnu-
lífstenglar VIRK lykilhlutverki hér. Þeir tengja
einstaklinga við fyrirtæki eða stofnanir út frá
óskum beggja og aðstoða einstaklinginn,
en ekki síður vinnustaðinn, við aðlögun
og endurkomu til vinnu. Samstarf við
fyrirtæki og stofnanir hefur gengið vel og
viðtökur verið góðar en í gegnum allt þetta
samstarf hafa hundruð einstaklinga fengið
vinnu. Yfir 1.300 fyrirtæki eru skráð inni í
upplýsingakerfi VIRK í dag og er stór hluti
þeirra með skráða tengiliði en það auðveldar
öll samskipti við fyrirtækin þegar leitað er að
störfum hjá þeim. Af þessum fyrirtækjum
eru yfir 300 fyrirtæki búin að undirrita
sérstakan samstarfssamning við VIRK.
markaðinn á farsælan hátt og því stendur
honum til boða að þiggja þjónustu frá sér-
stökum atvinnulífstenglum sem starfa hjá
VIRK. Atvinnulífstenglar aðstoða meðal
annars við gerð ferilskrár og kynningarbréfs,
undirbúning fyrir atvinnuviðtöl og aðstoð við
atvinnuleitina sjálfa. Meginmarkmiðið er að
undirbúa þessa einstaklinga sem best fyrir
atvinnuleit og fylgja þeim síðan eftir, jafnvel
eftir að í starf er komið eða eins og þörf er á,
en ferlið er sniðið eftir þörfum hvers og eins.
42 virk.is