Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Qupperneq 45
VIRK
kynningarbréfs til verkfæra við ákvarðana-
töku. Einnig er bent á gagnlegar og áhuga-
verðar slóðir meðal annars um nám, störf og
vellíðan.
Undir Hver ert þú? er hægt að nálgast gagn-
virkt sjálfshjálparefni ætlað þeim sem eru að
velta fyrir sér framtíð sinni á starfsvettvangi,
en staka hluta efnisins má einnig nota til
sjálfseflingar.
Flest allir leiða einhvern tímann hugann
að því hvernig þeim líki í starfinu sínu og
hvort sé kominn tími til breytinga. Á slíkum
tímapunktum getur verið gagnlegt að renna
í gegnum Hver ert þú? og styrkja þannig
viðhorfin til núverandi stöðu og horfa fram
á við. Notandinn getur valið hvernig hann
vinnur sig í gegnum efnið. Hann getur unnið
það í einum rykk eða farið frá og komið að
þegar honum hentar.
Á Hver ert þú? getur notandinn skoðað atriði
sem hafa vægi fyrir hann í tengslum við
frammistöðu og val á störfum með því að
velja úr listum á vefnum. Hann getur skoðað
styrkleika sína, færni, viðhorf og ýmis praktísk
atriði sem hafa áhrif á ákvarðanir hans.
Auk þess getur hann skoðað hvernig störf
gætu hentað honum út frá áhugasviði og
valið úr um 600 störfum. Þá getur hann
safnað saman niðurstöðum úr listunum í eina
heildstæða mynd og bætt við upplýsingum
um fyrri starfsreynslu og menntun ásamt
framtíðardraumum.
Þegar allar þessar upplýsingar liggja fyrir á
einum stað er notandinn með mjög góða
yfirsýn yfir það sem hann hefur að bjóða,
þekkir sína styrkleika, færni og langanir
ásamt því hvaða störf honum finnast áhuga-
verð. Hann hefur þá góðan grunn til að
taka ákvarðanir um framtíð sína með tilliti
til starfa og starfsframa. Þessar upplýsingar
getur hann vistað á einkasvæði sínu á
vefnum, prentað út eða deilt með ráðgjafa
þegar það á við.
Efnið hentar vel einstaklingum sem vilja
gera breytingar á starfsferli og kynna sér leiðir
til þess eða finna út hvað þá langar að starfa
við í framtíðinni. Um nýmæli er að ræða þar
sem fólk getur nálgast gagnvirka starfsráðgjöf
á vefnum ásamt leiðbeiningum og verkfærum
til atvinnuleitar.“
CV
Starfsráðgjöf fyrir fólk af
erlendum uppruna
Einn af kostum þess að vera með starfsráð-
gjafarefni á vefnum er að hægt er að snara
textanum yfir á fjölda erlendra tungumála.
Þannig geta þeir sem hafa ekki gott vald
á íslensku unnið sig í gegnum Hver ert
þú? á tungumáli að eigin vali. Þýðingin er
ekki fullkomin og mismunandi góð eftir
tungumálum en notandanum gefst samt sem
áður tækifæri til að vinna með atvinnutengd
atriði svo sem eigin styrkleika og færni til að
finna sína leið inn á íslenskan vinnumarkað.
Raunar er hægt að snara öllu efni af Aftur
í vinnu yfir á erlend mál. Nokkuð sem er
mjög aðkallandi einmitt nú þegar sífellt fleiri
einstaklingar af erlendum uppruna standa
frammi fyrir breytingum á stöðu sinni hér.
Byggt á faglegum grunni
Atvinnulífstenglar VIRK lögðu saman fjöl-
breytta fagþekkingu sína og reynslu við gerð
efnisins á Aftur í vinnu og leggja þar til allt það
nýjasta sem er að finna tengt atvinnuleit.
Starfsráðgjafarefnið á Hver ert þú? byggja
þeir á faglegum grunni en efnið hefur þró-
ast út frá hugmyndafræði og verkefnum
Norman E. Amundson, en hann er vel
þekktur kanadískur prófessor sem hefur
gefið út fjölda rita í starfsráðgjöf. Þá byggir
framsetning starfalistanna á áhugasviðum
John Holland (Holland’s Interest Inventory)
og greiningu starfa hjá O*net OnLine -
www.onetonline.org. Leiðandi við gerð
efnisins var Líney Árnadóttir, náms- og
starfsráðgjafi og sérfræðingur hjá VIRK.
Góðar viðtökur
Umsagnir þeirra sem hafa unnið með efnið
eru á þá leið að það sé gaman að vinna
listana, efnið sé sjálfstyrkjandi og gagnist vel
við að taka ákvarðanir tengdar starfsþróun.
Flestum finnst það mjög góður kostur að geta
unnið að svona efni heima hjá sér og eiga
auðvelt með að vinna úr niðurstöðunum.
Starfsráðgjöf á vef hentar þannig vel þeim
sem eru vanir að vinna á vefnum og geta
hugsað sér að fara í gegnum svona efni upp á
eigin spýtur. Þeim sem finnst hins vegar gott
að leita til annarra til að ræða niðurstöðurnar
eða fá stuðning við ákvarðanatöku geta
leitað til vina eða sérfæðinga svo sem náms-
og starfsráðgjafa eða markþjálfa til að fá
aðstoð við áframhaldið.
Yfir starfsævina fikrar fólk sig áfram á
vinnumarkaði og leitar leiða til að mæta
þörf sinni fyrir fjárhagslegt öryggi, tilgang og
lífsfyllingu. Leiðirnar eru ólíkar og oft óljósar
og því er það von VIRK að aðgengilegt
sjálfshjálparefni um starfsráðgjöf komi að
góðum notum.
Undirbúningur Hver ert þú? Starfsval Ferilskrá Í starfi
45virk.is