Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Page 86
ÚTGÁFA VIRK
VIRK gefur út margvíslegt kynningar- og fræðsluefni fyrir
starfsmenn, þjónustuþega VIRK, almenning og stjórnendur í
atvinnulífinu. Hægt er að nálgast efnið á vefsíðu VIRK (virk.is)
en einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu VIRK og fá
senda bæklinga og fræðsluefni eftir þörfum.
Dagbók 2021
VIRK gefur út sérstaka dagbók fyrir einstaklinga sem eru í
starfsendurhæfingu á vegum VIRK. Henni er ætlað að aðstoða
einstaklinga við að efla starfsgetu sína og lífsgæði með skipulegri
markmiðssetningu og skráningu. Dagbókin er með vikuyfirliti
á hverri opnu ásamt fjölbreyttum möguleikum til skráningar á
markmiðum, líðan, virkni og árangri bæði fyrir árið í heild sinni,
hvern mánuð og hverja viku ársins.
Nýr vefur VIRK
Vefsíða VIRK (virk.is) hefur verið endurhönnuð og uppfærð.
Leitast var við að straumlínulaga upplýsingagjöf VIRK og gera
hana markvissari auk þess að bryddað er upp á ýmsum
nýjungum á vefnum. Á vefnum eru m.a. allar almennar upp-
lýsingar um starfsemi VIRK og starfsendurhæfingarferilinn,
upplýsingar fyrir atvinnurekendur og þjónustuaðila VIRK.
Aftur í vinnu á virk.is
Meðal nýjunga á nýjum vef VIRK eru góð ráð og verkfæri
fyrir atvinnuleit á undirsíðunni Aftur í vinnu ásamt gagnvirka
sjálfshjálparefninu Hver ert þú? sem nýtist til að styrkja
sjálfsmyndina og skoða hvert maður vill stefna í starfi eða á
starfsvettvangi. Önnur nýjung er safn virkniúrræða sem styðja
við, auka virkni og árangur í starfsendurhæfingu.
VelVIRK vefsíðan
Á VelVIRK síðunni (velvirk.is), sem hugsuð er sem stuðningur
við starfsmenn og stjórnendur á vinnustöðum, má finna
upplýsingar og gagnleg ráð í forvarnarskyni. Meginþema
síðunnar er hvernig við getum sem best aukið vellíðan á
vinnustaðnum og náð að halda jafnvægi í lífinu almennt.
Á vefsíðunni eru m.a. birt viðtöl við nokkra stjórnendur um
áhugaverð verkefni á sviði stjórnunar og mannauðsmála sem
fyrirtæki þeirra hafa prófað og/eða innleitt.
Virkjum góð samskipti
VIRK minnti á hugtökin umhyggju, jákvæðni, samkennd,
þakklæti, tillitssemi og góðvild og hvatti til góðra samskipta
í vitundarvakningu í fjölmiðlum og á netinu haustið 2020.
Kynningarherferð vitundarvakningarinnar vísaði inn á sérstaka
síðu á velvirk.is – Virkjum góð samskipti.
86 virk.is