Börn og menning - 2018, Qupperneq 21
21Með fjölbreytnina á bak við eyrað
speglar daglegt líf barna sem búa hér. Einnig var rætt
nokkuð um hvernig skortur á kennslu í myndlæsi veld-
ur því að foreldrar og aðrir sem kaupa barnabækur hafa
ekki endilega tilfinningu fyrir því hvað sé vel gert og
hvað ekki. Gæði barnabóka snúast ekki bara um fallegar
teikningar og texta sem virka saman, heldur að umfjöll-
unarefnið sé þess virði að segja frá því og það standist
tímans tönn.
Málstofan var bæði áhugaverð og spennandi. Að
henni lokinni benti Rán Flygenring á að höfundur
skrifar ekki endilega með ákveðinn lesanda í huga held-
ur fyrir sjálfan sig, til að koma frá sér þeirri sögu sem
hann telur að þurfi að heyrast – hvort sem sagan er ætl-
uð börnum, unglingum eða öðrum.
Í þau skipti sem undirrituð hefur verið viðstödd mál-
þing Mýrarinnar hafa tvö umræðuefni komið ítrekað
upp. Annars vegar er það skortur á fjármagni. Til að
bregðast við því hafa margir íslenskir höfundar óskað
eftir að íslenska ríkið fari hina svokölluðu norsku leið,
þ.e. kaupi ákveðið upplag af öllum útgefnum barna-
bókum og dreifi á bókasöfn. Hins vegar er það skortur
á myndritstjórn og kennslu í myndlæsi. Ritstýra þarf
myndefni af sömu kunnáttu og texta. Teikningarnar
eru oft taldar vera aukaefni, skraut til að bæta við þegar
búið er að fínpússa textann, og myndhöfundurinn sjálf-
ur er sérfræðingur svo að sjaldnast er rýnt að ráði í verk
hans. Kannski myndi aukin fræðsla bæði gera ritstjór-
um kleift að gefa út betra efni og gera það að verkum að
kaupendur verði líklegri til að velja barnabækur sem eru
í raun og veru listaverk.
Skilaboð til framtíðar
Nútímabörn alast upp með nær ótakmarkað magn af
sjónrænu efni allt í kringum sig. Efnið sýnir samt ekki
endilega heim sem þau geta öll tengt við. Þrátt fyrir
lítinn markað og lítið samfélag sem virðist einsleitt ættu
íslenskar barnabækur auðveldlega að geta sýnt hve fjöl-
breytilegt samfélagið er í raun.
Þó svo að okkur þyki þægilegt að sjá daglegt líf okkar
endurspeglast í bókum þurfum við líka að sjá framandi
veruleika og fjölbreytni mannlífsins lifna við í lesefninu.
Höfundar efnis fyrir börn hafa tækifæri til að sýna þeim
að íbúafjöldi heimsins er settur saman á allan mögu-
legan hátt.
Það er auðvelt að leyfa fleirum að sjá eigin veruleika,
möguleika og styrkleika í barnabókum. Það þarf bara
að hafa fjölbreytnina á bak við eyrað.
Höfundur er teiknari.
Góðir gestir á Mýrinni. Ljósmynd: Marloes Robjin.