Börn og menning - 2018, Side 23
23Lesendurnir sem munu bjarga heiminum
meðvituð um. Þær enduróma innra með okkur, því
þetta eru sögurnar sem við þurfum nauðsynlega á að halda
einmitt núna. Þær eru nýju verkfærin sem við þurfum
til að lifa af. Fantasíur vaxa og munu halda því áfram
eftir því sem bókmenntagreinin verður betri í að leysa
ný vandamál. Þau stærstu.
Raunsæisstefnan segir okkur gjarnan að manneskjur
séu berskjaldaðar, kjarklausar, eigingjarnar og ófull-
komnar. Fantasían rífur okkur upp úr rennusteininum,
dröslar okkur á fætur og segir: „Hlustið nú! Þetta er það
sem við getum! Það sem við búum yfir og getum orðið.“
Fantasían hvetur okkur og gefur okkur innblástur til að
standa í fæturna.
Ég er ánægð með að ný kynslóð hafi alist upp við
svokallaðan veruleikaflótta. Hún hefur lesið nógu
mikið af dystópíum til að vita að yfirvöld ljúga. Lesið
nógu mikið af vísindaskáldskap til að vita að tæknin er
ekki alltaf til bóta. Lesið nógu mikið af fantasíum til að
trúa því að ein manneskja geti skipt sköpum. Með auk-
inni áherslu á fjölbreytni hefur unga fólkið lært nokk-
uð enn mikilvægara: Að allir séu jafn mikilvægir, óháð
kyni, uppruna, trú eða kynhneigð, og það vissu ömmur
þess og afar ekki.
Af hverju eru fantasíur svona óskaplega vinsælar?
Það skiptir engu máli! Gleðjumst bara yfir því að svo
sé! Það er meira en gott, það er algjörlega nauðsynlegt.
Næst þegar einhver gagnrýnir þig fyrir að lesa óraunsæj-
ar bækur veistu hverju þú getur svarað. Ungt fólk les,
spilar og horfir á fantasíur af því það verður að gera það.
Það mun erfa heim sem er að falli kominn og það þarf
að hreinsa svínastíuna. Bjarga málunum. Fantasían leyf-
ir unga fólkinu að verða hetjur og við þurfum á hetjum
að halda sem aldrei fyrr. Við þurfum fólk með kjark og
þor til að verða stærra en lífið sjálft. Við þurfum von.
Þinn tími er kominn. Það ert þú, kæri lesandi, sem
lifir af ragnarökin þegar uppvakningarnir koma.
Siri Pettersen er norskur rithöfundur og teiknimyndasöguhöfundur og starfar einnig
að ýmiss konar hönnun og textagerð. Fyrsta skáldsaga hennar, Odinsbarn, kom út
árið 2013 og er hún jafnframt fyrsta bókin í þríleiknum Ravneringene. Siri skapaði
einstakan og flókinn heim með þríleiknum sem tilnefndur hefur verið til margra
verðlauna og þýddur á fjöldamörg tungumál. Í fyrra kom út eftir hana fantasíubókin
Bobla sem einnig hefur verið tilnefnd til verðlauna.
Siri hélt fyrirlesturinn „Hvers vegna lesendur fantasía munu bjarga heiminum“ á
Mýrinni í október 2018. Fyrirlesturinn byggist á greininni hér að ofan, sem var
frumbirt á vefnum Science Fiction Bokhandlen, www.sfbok.se.
Heimild: https://myrin.is/uti-i-myri-2018/gestir/siri-pettersen/
Ingibjörg Valsdóttir þýddi, með leyfi höfundar.
Siri Pettersen.
Ljósmynd: Lars Myhren
Holand.
Þríleikurinn Ravneringene hefur notið mikilla vinsælda. Hönnun: Siri Pettersen.