Bændablaðið - 25.03.2021, Side 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 202118
Nýlega ákváðu BYKO og Lely
Center Ísland að hefja sam
starf í því að bjóða kúabændum
lausnir við byggingu nýrra fjós
bygginga sem og breytinga á eldri
byggingum og viðbyggingum.
Samstarfið er byggt á þeim
grunni að það sé kúabændum til
hagsbóta á marga vegu.
Á undanförnum árum hafa
margir kúabændur byggt ný fjós og/
eða breytt gömlum meðal annars til
þess að uppfylla nýjar reglur um
aðbúnað gripa og dýravelferð. Sú
þróun heldur áfram og á hverju ári
bætast nýjar fjósbyggingar við.
Samstarfið hófst í
Búrfelli í Svarfaðardal
Í tilkynningu frá félögunum segir
að aðdraganda samstarfsins megi
rekja aftur til ársins 2018 þegar
BYKO og Lely Center Ísland
sáu um nýbyggingu og mjalta-
búnað fyrir bændur að Búrfelli í
Svarfaðardal. Í upphafi árs 2021
var tilkynnt að kúabúið á Búrfelli
í Svarfaðardal hefði verið nythæsta
kúabú landsins (per kú að með-
altali). Fjósbyggingin á Búrfelli
ásamt innréttingum er frá BYKO
og öll sjálfvirka mjaltatæknin í
fjósinu á Búrfelli er frá Lely Center
Ísland.
„Það er því ljóst að félögin í
sameiningu geta hjálpað bændum
að ná eftirtektarverðum árangri í
sínum búskap,“ segir Stefán Bragi
Bjarnason, framkvæmdastjóri Lely
Center Ísland.
Hugsað er til langrar framtíðar
Að sögn Stefáns Braga hyggjast
BYKO og Lely Center Ísland
bjóða kúabændum fjóslausnir þar
sem hugsað er til langrar fram-
tíðar. Tryggt verði að hönnun og
frágangur fjósbygginga, endurbóta
og viðbygginga sé á þann veg að
gert sé ráð fyrir og hugsað fyrir nú-
tíma tækni í kúabúskap og aukinni
sjálfvirkni við búskapinn.
BYKO hefur um árabil boðið
bændum fjölbreyttar lausnir fyrir
nýbyggingar og endurbætur í sveit-
um landsins
Bæði límtré og stál
„Við hjá BYKO getum boðið hvort
heldur sem er stálgrindar- eða lím-
trésbyggingar af öllum stærðum
og gerðum. Jafnframt munum
við hafa aðgang að fjölbreyttum
byggingalausnum sem Lely Center
Ísland hefur unnið með í sínum ver-
kefnum þar sem fyrst og fremst
er lögð áhersla á vinnuhagræði og
sjálfvirkni og þar af leiðandi aukna
arðsemi bændanna,“ segir Halldór
Kristinsson, verkefnastjóri bænda-
vara hjá BYKO.
BYKO varð nýlega í efsta sæti
í ánægjuvoginni fjórða árið í röð
á sviði byggingavöruverslana og
Lely Center Ísland er leiðandi í
innleiðingu sjálfvirkni í íslenskum
kúabúskap.
„Við bindum því miklar vonir
við samstarfið og trúum því að það
muni skila viðskiptavinum okkar,
kúabændum, verulegum ávinn-
ingi,“ segir Stefán Bragi.
Byggt á kjörorðum
beggja félaga
Samstarfið mun byggja á kjör-
orðum Byko og Lely sem eru:
Gerum þetta saman – Tryggjum
sjálfbæra, arðbæra og ánægjulega
framtíð í landbúnaði.
BYKO og Lely Center Ísland
í samstarf um fjósalausnir
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Fulltrúar samstarfsfélaganna Byko og Lely Center á Íslandi, talið frá vinstri: Jóhannes Kjartansson, sölumaður hjá
Lely, Stefán Bragi Bjarnason, framkvæmdastjóri Lely, Halldór Þ.W. Kristinsson, söluráðgjafi bændavöru hjá BYKO
og Þorsteinn Lárusson, sölustjóri tæknivöru hjá BYKO.
FRÉTTIR
Nýtt fjós með mjaltaþjóni var byggt á Búrfelli 2018:
Með afurðahæstu
kýr landsins 2020
Kúabúið að Búrfelli í Svarfaðardal
var afurðahæsta kúabú landsins
að meðaltali á árskýr á árinu
2020, samkvæmt skýrsluhaldi
Ráðgjafarmiðstöðvar landbún
aðarins. Þar mjólkaði hver kýr
að meðaltali 8.579 kg yfir árið.
Greinilegt er að byggingin
á nýja fjósinu í samvinnu við
Byko og mjaltaþjóninn frá Lely
Center á Íslandi eru að skila
góðum árangri samhliða natni í
fóðrun og um hirðu skepnanna hjá
þeim Guðrúnu Marinósdóttur og
Gunnari Þór Þórissyni.
Kýrnar voru að skila tæpum 8,6
tonnum af mjólk á einu ári, en á
Búrfelli eru 42,6 árskýr.
Fjallað var um þessa fjós-
byggingu í Bændablaðinu, en sú
uppbygging varð kveikjan að því
samstarfi sem nú er hafið á milli
Byko og Lely Center á Íslandi.
Í umfjölluninni kom fram að
nýja fjósið að Búrfelli var flutt
inn af Byko frá Póllandi og er
Búrfellsfjósið hið fyrsta sinnar
tegundar sem reist er hér á landi.
Það er 688 fermetra að stærð, og
þar er pláss fyrir 64 kýr auk smá-
kálfa að 6 mánaða aldri.
„Við höfum haft að leiðarljósi
við allar framkvæmdir hér að leita
bestu og hagkvæmustu kosta, en
lögðum mikinn metnað í það að
ná að semja við verktaka í okkar
heimabyggð, Dalvíkurbyggð, og
það tókst nánast að öllu leyti,“
sagði Gunnar Þór Þórisson, bóndi
á Búrfelli.
Kúnum líður betur
Guðrúnu Marinósdóttir sagði í sam-
tali við Bændablaðið að það hefði
vissulega áhrif á nyt kúnna að þeim
liði greinilega betur þar sem mun
rýmra væri um þær. Þá voru þau
áður með rörmjaltakerfi, en tóku
í notkun Lely mjaltaþjón í nýja
fjósinu.
Í samtölum við bændur sem hafa
verið að taka í notkun mjaltaþjóna
á liðnum misserum er ljóst að þeir
auka á margan hátt þægindin við
umhirðu kúnna, en eru í sjálfu sér
ekki endilega ávísun á betri árang-
ur í framleiðslu. Sumir nefna líka
ekki síðri árangur af mjaltagryfjum.
Margt annað getur líka spilað þar
inn í og þá skiptir hið fornkveðna
ekki minna máli, eða „veldur hver
á heldur“.
Fjósið er galvaníserað stál-
grindar hús, en framleiðandi hússins
er Rolstal í Póllandi. Það er klætt
samlokueiningum.
Loftræstikerfi er í nýja fjósinu
sem er viftukerfi, ábúendur á
Búrfelli tóku slíkt kerfi fram yfir
þakglugga sem gjarnan eru hafðir
á nýjum fjósum nú til dags, eink-
um vegna þess að á stundum og í
ákveðnum áttum gerir hávaðarok um
dalinn auk þess að vera mun ódýrari
kostur en þakgluggar. /HKr./MÞÞ
Nýja fjósið á Búrfelli. Mynd / GM