Bændablaðið - 25.03.2021, Síða 19

Bændablaðið - 25.03.2021, Síða 19
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 2021 19 Dagana 15.–18. apríl fer fram nýsköpunarviðburðurinn Hacking Norður land, sem er ætlað að virkja skapandi og lausnamiðaða hugsun, styðja við nýsköpun og fjölgun atvinnutækifæra á Norður landi. Í verkefninu, sem er svokallað lausnamót þar sem frumkvöðlaverkefni keppa sín á milli, er lagt upp með að unnið sé að sjálfbærri nýtingu auðlinda eins og vatns og orku á svæðinu til matvælaframleiðslu. Markmiðið er einnig að draga fram í sviðsljósið öflugt frumkvöðlastarf á svæðinu og tengja saman frumkvöðla í dreifbýli og þéttbýli á Íslandi. Áður hefur sams konar lausnamót verið haldið á Suðurlandi, Hacking Suðurland, þar sem verkefni um frumuræktun ávaxta bar sigur úr býtum. Stefnan er svo sett á sambærilegt lausnamót í öðrum landshlutum. Stafrænt lausnamót Hægt er að skrá sig til þátttöku alveg þangað til lausnamótið hefst þann 15. apríl, en það má gera í gegnum vefinn Hugmyndaþorp (eða slóðinni hackinghekla.is) en í gegnum þann vettvang fer lausnamótið líka að mestu fram – meðal annars til að tryggja að allir áhugasamir um allt Norðurland geti tekið þátt. „Viðburðurinn hefst með opnunar viðburði og vefstofu þar sem rætt verður um þau tækifæri sem felast í auðlindum svæðis­ ins. Föstudaginn 16. apríl hefst svo lausnamótið sjálft sem stend­ ur í 48 klukkustundir í gegnum Hugmyndaþorp, sem er stafrænn vettvangur til samsköpunar, þróað­ ur af sprotafyrirtækinu Austan mána í samstarfi við Hacking Hekla. Sam starfs teymi Hacking Norðurland mun ferðast á milli frumkvöðlasetra á svæðinu meðan á lausnamótinu stendur og geta þátttakendur nærri þeim setrum nýtt sér möguleikann á því að vinna að hugmyndum sínum þar. Útkoman úr lausnamótinu getur verið stafræn lausn, vara, þjónusta, verkefni, hugbúnaður, vélbúnað­ ur eða markaðsherferð. Hacking Norðurland lýkur sunnudaginn 18. apríl með lokaviðburði þar sem dómnefnd velur þrjú bestu verk­ efnin sem hljóta peningaverðlaun auk aukavinninga,“ segir Svava Björk Ólafsdóttir, verkefnastjóri og stofnandi Hacking Hekla. Hvað eigum við að gera við vöggugjöfina? Um samstarfsverkefni er að ræða eft­ irfarandi aðila: Hacking Hekla, Eims, Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Samtaka sveitar félaga á Norðurlandi eystra, Nýsköpunar í Norðri og Nordic Food in Tourism. Verkefnið er styrkt af Íslandsbanka. Sesselía Barðdal, framkvæmda­ stjóri Eims, hvetur áhugasama frum­ kvöðla til þátttöku. „Matur, orka og vatn eru lykillinn að sjálfbærni og við fengum þessar mögnuðu auð­ lindir í vöggugjöf hér á Norðurlandi. Hvað svo – hvað ætlum við að gera til að mæta framtíðinni? Við viljum kanna einmitt það á lausnamótinu Hacking Norðurland og hlökkum til að fá sem flesta með okkur í lið yfir helgina,“ segir hún. /smh SÁÐVARA SS 2021 Sáðvörulista SS 2021 má finna inn á www.buvorur.is Grasfræ Grænfóður Bygg Hafrar Litur Listaverð án vsk. Magn á bretti Hvítt / Grænt 11.290 kr 15 Svart 11.060 kr 15 Rúlluplast Tenospin | 750mm x 25µm x 1500m Litur Listaverð án vsk. Magn á bretti Hvítt - ÁN KASSA* 12.590 kr 15 Rúlluplast Tenospin | 750mm x 25µm x 1700m Verð eru gefin upp án vsk og með fyrirvara um prentvillur Litur Listaverð án vsk. Magn á bretti Hvítt - 1900 m 12.990 kr 15 Grænt - 2400 m - ÁN KASSA* 16.300 kr 15 Rúlluplast Tenoplus | 750mm x 21µm x 1900m / 2400 m Undirplast, net og garn Stærð Listaverð án vsk. TrioBale Compressor undirplast 1400 x 0,020 x 1800 m 27.527 kr TrioBale Compressor undirplast* 1400 x 0,017 x 2200 m 30.490 kr Westfalia net 123 x 3000 m 24.200 kr Westfalia net 130 x 3000 m 24.400 kr Cobra Miljö rúllugarn - 3.000 kr Cobra Wire stórbaggagarn - 4.100 kr RÚLLUPLAST 2021 *Takmarkað magn Fosshálsi 1, Reykjavík - 575-6071 | Ormsvelli 4, Hvolsvelli - 575-6099 Búvörur SS | www.buvorur.isBændablaðiðSmáauglýsingar 56-30-300 Matvælaframleiðsla – Hacking Norðurland: Virkjun sköpunarkraftana til sjálfbærrar nýtingar auðlinda

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.