Bændablaðið - 25.03.2021, Blaðsíða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 202124
LÍF&STARF
Eins og kom fram í síðasta blaði
þó hóf Helga Gunnarsdóttir,
dýralæknir hesta, nýlega dokt
orsnám í hestavísindum við
Landbúnaðarháskóla Íslands.
Helga útskrifaðist frá Dýralækna
skólanum í Hannover í Þýskalandi
árið 2002 og lauk þriggja ára
sérfræðinámi í skurðlækningum
stórra dýra frá Háskólanum í
Ghent í Belgíu árið 2012.
Helga hefur alls um 20 ára starfs
reynslu við hestalækningar, bæði hér
heima og erlendis. Til að kynnast
Helgu betur og fá betra innsýn inn í
hennar líf og starf þá settist blaða
maður niður með henni og spurði
hana nokkurra spurninga.
Fædd og uppalin
í Breiðholtinu í Reykjavík
– Fyrsta spurningin er einföld, hver
er Helga Gunnarsdóttir?
„Ég er fædd í Reykjavík
og uppalin í Breiðholtinu. Ég
gekk í Breiðholtsskóla og
útskrifaðist sem stúdent frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Ég lauk almennu dýralæknanámi frá
Dýralæknaháskólanum í Hannover í
Þýskalandi og flutti heim til Íslands
eftir nám.
Ég er gift Baldvini Esra Einars
syni og við eigum tvo syni, Styrkár,
14 ára og Flóka, 6 ára. Við búum
á Akureyri og ég rek þar Dýra
læknaþjónustu Eyjafjarðar, „Dýrey“,
ásamt tveimur öðrum dýra læknum,
Aðalbjörgu Jónsdóttur og Helgu
Ragnarsdóttur. Við þjónustum allt
Eyjafjarðarsvæðið, erum með þjón
ustusamning í Þingeyjarsýslu og
erum með alla þjónustu sem bænd
ur, hestamenn og gæludýraeigend
ur þurfa. Við bjóðum í tengslum
við það upp á sólarhringsþjónustu
alla daga, allt árið um kring. Ég
fer einnig um allt land og þjónusta
hestamenn og býð upp á sérhæfða
þjónustu í tengslum við mína sér
hæfingu sem hestadýralæknir.“
Með áhuga á hestum alla tíð
– Hefur þú alltaf haft áhuga á
hestum og landbúnaði og ertu sjálf
í hestum og með marga hesta?
„Já, ég hef alltaf haft áhuga á
hestum frá því ég man eftir mér.
Fjölskylda mín stundaði reyndar
ekki hestamennsku þannig að ég
þurfti að bera mig eftir björginni.
Ég var farin að þvælast mjög ung
niðri í NeðriFák svokallaðan, sem
voru gömlu hesthúsin sem standa
enn við Bústaðaveg í Reykjavík.
Þar gat ég umgengist hesta og feng
ið að fara á bak. Ég var líka í sveit
sem barn og unglingur.
Ég fór líka út sem hesta aupa
ir til Sviss í tvö sumur og svo var
ég í vinnu hjá Benedikt Líndal og
Sigríði Ævarsdóttur í tvö sumur að
Staðarhúsum í Borgarfirði.
Ég eignaðist minn fyrsta hest um
fermingu, hann var keyptur þriggja
vetra og átti ég hann þar til hann var
felldur í hárri elli. Í dag á ég þrjú
hross en ég vildi að ég hefði meiri
tíma til að stunda hestamennskuna
en oft víkur hún fyrir löngum vinnu
degi.“
Ætlað mér að verða dýralæknir
– Hvað kom til á sínum tíma að þú
ákvaðst að verða dýralæknir og
dreifst þig í það nám?
„Ég hef alltaf ætlað mér að verða
dýralæknir, man ekki eftir að hafa
velt öðru starfi fyrir mér. Í þá daga
sem ég var að sækja um skólavist
var erfitt að komast inn í skóla og
ég hafði þá hugsað mér til vara að
komast inn á Hóla í reiðmennsku
nám. Ég komst inn á Hóla og var að
pakka niður í þann skóla þegar svar
kemur frá Dýralæknaháskólanum
að ég hefði fengið inngöngu þar
líka. Ég þurfti þarna að velja á
milli,“ segir Helga og hlær.
– Þú bættir við þig þriggja ára
sérfræðinámi í skurðlækningum
stórra dýra frá Háskólanum í Ghent í
Belgíu árið 2012. Af hverju ákvaðstu
að gera það og hvað fannst þér mest
heillandi við skurðlækningar?
„Fyrst vil ég segja að eftir
almenna dýralæknanámið kom ég
heim og stundaði dýralækningar
á Norðausturlandi, nánar tiltekið
á Eyjafjarðarsvæðinu. Það er fjöl
breytt svæði fyrir dýralækna að
vinna á, blómlegur landbúnaður,
mikil hestamennska og svo líka
fjöldi smádýraeigenda. Á þessum
tíma stundaði ég blandaða vinnu en
fann strax að hugur minn var í „stóru
dýrunum“ og snemma fór mig að
langa að mennta mig meira á því
sviði, sérstaklega hestalækningum.
Þessi hugsun festi sig enn meiri í
sessi eftir að ég eignaðist eldri son
minn og ég fór markvisst að leita að
möguleikum til frekari menntunar.
Kollegi minn hafði verið í starfs
námi við Dýralæknaháskólann í
Ghent í Belgíu og kom heim og
sagði mér frá því hvað honum hafði
fundist hestaspítalinn við háskólann
áhugaverður. Ég kynnti mér spítal
ann og möguleikum á framhalds
námi. Við þann spítala voru í boði
þrjár stöður á ári fyrir svokallaða
„intern“ lækna. Það eru útskrifaðir
dýralæknar sem vinna innanhúss á
háskólasjúkrahúsinu, hafa umsjón
með inniliggjandi sjúklingum,
skipuleggja þá dýra læknanema sem
þurfa að taka vaktir á spítalanum
og eru í rauninni milliliðir fyrir þá
dýralækna sem eru fastráðnir við
háskólann.
Ég fór út og kynnti mig og sótti
um stöðu sem ég og fékk. Þetta
var mjög lærdómsríkt ár, botnlaus
vinna, lítið sofið. Hestaspítalinn við
Dýralæknaháskólann í Ghent er með
þeim stærri í Evrópu, þar eru um 120
stíur fyrir inniliggjandi sjúklinga og
mikil umferð. Þegar ég lauk þessu
„intern“ ári þá þyrsti mig í meira
nám.“
Erfiðasti tími sem ég hef upplifað
– Þú varst ekki hætt að læra núna,
eða hvað?
„Nei, nei, því á tveggja ára fresti
var í boði ein staða til að sækja um
sem skurðlæknanemi. Ég hafði svo
sem engar væntingar um að fá þessa
stöðu enda margir um hituna. Ég
sótti um og fékk þessa stöðu og við
tók þriggja ára sérnám við spítalann.
Þetta var erfiðasti tími sem ég hef
upplifað, ég átti barn og mann sem
ég sá varla og ég gekk mjög nærri
mér í vinnu. En ég kynntist mörgu,
kynntist mörgum af þeim bestu í
þessu fagi og ég hefði aldrei viljað
missa af þessu. Ég fékk mjög mikla
klíníska reynslu, ég lærði vísinda
lega hugsun og nálgun á fagið og
fékk að kenna dýralæknanemum á
lokaári þeirra sem mér fannst mjög
gaman.“
Vinna mín snýst jöfnum höndum
um að eiga við neyðartilvik
– Hvað er það helsta sem er að hrjá
íslenska hestinn og kallar á hjálp frá
dýralækni?
„Það er erfitt að nefna það í stuttu
máli hvað það helsta er sem hrjáir
íslenska hestinn. Íslenski hesturinn
er hraustur og heilbrigður í grunninn
og við hér á Íslandi erum það heppin
að geta í flestum tilfellum haldið
hesta á sem náttúrulegastan máta.
Vinna mín snýst jöfnum hönd
um um að eiga við neyðartilvik, þ.e.
hluti sem geta ekki beðið, eins og
sár sem þarf að sauma eða veikindi
af völdum hrossasóttar og svo hinn
hlutinn, sem eru kannski ekki bráða
einkenni sem þarfnast tafarlausrar
athygli, það getur verið allt frá því
að vera einföld heilbrigðisskoðun
sem er oft framkvæmd á hverju ári,
ráðgjöf um atferli og fóðrun eða að
vera flókin skoðun vegna óljósra
einkenna sem erfitt er að henda
reiður á.“
Dýralækningar eru í
grunninn erfitt starf
– Hvað er erfiðast við starfið og
hvað er skemmtilegast?
„Dýralækningar eru í grunninn
erfitt starf. Hugurinn er, allavega
hjá mér, nánast alltaf við sjúklinga
og tilfelli og það eru ófá kvöldin
þar sem ég hef verið að velta vöng
um yfir hinum ýmsu tilfellum sem
ég mæti. Nálgun á tilfellin eru allt
önnur en í mannalækningum, tilfelli
sem er óljóst þarf að púsla saman og
setja í samhengi. Það er ekki hægt
að spyrja dýrin eða fá þeirra álit á
bata eða afturför.
Öll smáatriði skipta máli í dýra
lækningum og upplýsingar sem virð
ast í fljótu bragði ómerkilegar geta
skipt höfuðmáli. Kostnaður skiptir
líka alltaf máli í þessu starfi, þar sem
dýrin eru ekki partur af almanna
tryggingum og eigandi þarf að bera
þann kostnað sjálfur sem þarf ef
eitthvað hendir.
Það felst í því mikil ábyrgð að
eiga dýr og þetta er þáttur sem fólk
gerir sér oft ekki grein fyrir. Það er
oft erfitt að þurfa að viðurkenna það
að það er ekki alltaf fjárhagslegt
bolmagn til að gera vissa hluti og
hendur manns eru bundnar. Ég vil
í þessu samhengi hvetja alla dýra
eigendur til að kynna sér tryggingar
fyrir dýrin sín og íhuga þann þátt
dýraeignar vel.
Skemmtilegast við starfið er þessi
gríðarlega fjölbreytni, enginn dagur
eins og auðvitað samskiptin við dýr
og menn,“ segir Helga og brosir út
í annað.
Við getum verið afskaplega
stolt af hestinum okkar
– Ef þú horfir yfir sviðið á hestana á
Íslandi, eru þeir almennt ekki mjög
hraustir og flottir, hestakyn, sem við
getum verið stolt af?
„Í sérnáminu mínu kynntist ég
auðvitað alls kyns hestakynjum. Við
hérna á Íslandi erum bara vön okkar
hesti og höfum í rauninni engan
samanburð. En hestamennska er
svo gríðarlega fjölbreytt og hest
arnir mjög svo mismunandi. Sama
daginn gat ég verið að vinna með 60
kg falabella smáhest yfir í að skoða
belgískan dráttarhest sem vegur yfir
900 kg.
Það var alveg hreint frábært að
fá að kynnast öllum þessum fjöl
breytileika og ég bý gríðarlega að
því í dag. Við getum verið afskap
lega stolt af hestinum okkar. Hann er
auðlind og í rauninni alveg ótrúlegt
að eyþjóð norður í Atlantshafi geti
státað sig af sínu eigin hestakyni.
Íslenski hesturinn er líka einstak
ur að því leyti að hann er svo fjöl
breyttur og mikill félagi. Hann
spannar svo mikið, hann er seigur
ferðahestur, úthaldssamur gangna
hestur, grimmur keppnishestur á
hringvelli og svo bara besti vinur
inn í sunnudagsreiðtúrnum. Einn
og sami hesturinn getur jafnvel inni
haldið allt þetta.“
Hugmyndin að doktorsverkefninu
byrjaði að mótast árið 2018
– Þú ert fyrsti nemandinn til að
hefja doktorsnám í hestavísindum
við Landbúnaðarháskóla Íslands.
Hvernig varð sú ákvörðun til og
hvernig sérð þú námið fyrir þér og
hvað viltu fá út úr því?
„Hugmyndin að doktors verk
efninu byrjaði að mótast árið 2018
þegar ég fékk tækifæri til að aðstoða
alþjóðlegan rannsóknarhóp sem
Falleg mynd af Helgu Gunnarsdóttur og hryssu sem hún var að lækna, en góður vinur hennar, sem er atvinnuljósmyndari
og heitir Brynjar Gunnarsson, tók myndina. Hann fylgdi henni í einn dag og tók myndir af henni í vinnunni. Þessi
hryssa hafði slasast á auga og þurfti Helga að fjarlægja það. Hryssan var hjá Helgu á meðan hún var að jafna sig
og þarna eru þær að tala aðeins við hvor aðra. Myndir / Úr einkasafni
Helga, sem er fyrsti doktorsneminn á sviði dýralækninga við íslenskan
háskóla. Ef fólk hefur fyrirspurnir eða hugsanlega hest eða hesta sem það
langar til að láta skoða, þá er hægt að hafa samband við Helgu í gegnum
Facebook-síðuna hennar, Helga Gunnarsdóttir - Dýralæknir hesta.