Bændablaðið - 25.03.2021, Qupperneq 25

Bændablaðið - 25.03.2021, Qupperneq 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 2021 25 var að safna gögnum um hreyf- ingu íslenska hestsins að Hólum í Hjaltadal. Þar var hópurinn í boði Hólaskóla og Sigríðar Björnsdóttur, sérgreinalæknis íslenska hestsins. Mér finnst mikilvægt að íslenskir dýralæknar séu með í því að starfa að rannsóknum er varða heilbrigði íslenska hestsins. Þetta er jú okkar hestakyn og við erum upprunaland þess. Íslenski hesturinn er fjöregg sem við eigum að varðveita og vera landið sem fólk leitar alltaf til varðandi hestinn. Við finnum þenn- an hest okkar mjög víða orðið og eðlilega hafa aðrar þjóðir skoðun á hestinum og vilja taka þátt í að efla hans framgang og varðveita heilsu og eiginleika. Á þessum tímapunkti sá ég tæki- færi til þess að fá að nýta mér hluta af þeim gögnum sem unnin voru á þess- um tíma til að skrifa tvær fræðigrein- ar og fékk ég styrk til þess. Í fram- haldinu settumst við Sigríður niður og sáum fljótt að þarna var mikill efniviður og ekki bara úr þessum gögnum heldur möguleiki á að vinna dýpra með hugmyndir okkar. Okkur langaði að vinna þetta sem mest út frá Íslandi og þar sem Sigríður var að taka við gestaprófessorsstöðu við Hvanneyri þá fannst okkur kjörið að kanna þann möguleika. Það var unnin mikil undirbún- ingsvinna og á þar Sigríður mikinn hluta þar sem hún brennur fyrir þessu verkefni jafn mikið og ég. Einnig er mjög mikils virði að fá vísindahópinn frá Uppsala í lið með okkur. Þetta er líka í fyrsta skipt- ið sem íslenskur dýralæknir vinn- ur doktorsverkefni frá íslenskum háskóla þannig að þetta er verðmætt fyrir okkur og áhugavert.“ -Verkefnið þitt felst í því að meta ávinning hlutlægra mælinga á helti samanborið við hefðbundna sjón- ræna heltigreiningu í þeim tilgangi að auka heilbrigði, einingu og vel- ferð íslenska hestsins. Enn fremur að bæta þekkingu á áhrifum heltis á hreyfimynstur og ganglag íslenska hestsins og bæta þannig aðferðir við sjónrænt mat á helti. Á mannamáli, hvað þýðir þetta? „Íslenski hesturinn býr yfir fimm gangtegundum. Hann er smærri en mörg hestakyn og hann hefur styttri skreflengd. Hann er harður af sér og kvartar seint. Vandamál sem tengjast helti, eða stoðkerfinu hreinlega, sér- staklega ef einkenni eru væg, geta því verið lengi að malla og kannski ekki uppgötvuð fyrr en vandamálið er orðið stærra og alvarlegra. Væga tegund af helti er oft erfitt að meta sjónrænt, þ.e. að horfa á hestinn hreyfa sig og sjá hvort hann sé haltur eða ekki. Helti er jafnframt stundum ruglað saman við annað, s.s misstyrk eða hreinlega eðlilegt ósamræmi í hreyfingum. Afar fá hross eru með fullkomið samræmi í hreyfingu. Síðustu árin hafa rannsóknir á sviði hlutlægrar greiningar á helti aukist mikið. Hlutlæg heltisgreining gengur út á það að mæla með þráð- lausum nemum sem staðsettir eru á líkama hestsins, hreyfingu hestsins í hverju skrefi. Þessa þætti er ég að fara að skoða, bæði hreyfingar heilbrigðra hesta og svo hreyfingar þeirra sem eru haltir og koma til mín sem sjúklingar. Von mín er sú að með þessari doktorsvinnu takist okkur að kort- leggja vissa þætti í hreyfingu íslenska hestsins sem breytast þegar hesturinn er haltur. Þetta á því að nýtast okkur í framtíðinni þegar við erum að vinna með þætti eins og helti og hvernig hesturinn breytir hreyfingunni sam- fara því,“ segir Helga. Að fá að eyða tíma með þeim sem mér þykir vænt um – Svona að lokum, hver er helstu áhugamál þín og hvað gerir þú til að tæma hugann og gera eitthvað allt annað en þú gerir dags daglega? „Helstu áhugamál mín eru, fyrir utan starfið mitt, að fá að eyða tíma með þeim sem mér þykir vænt um. Ég kann alltaf að meta það betur og betur. Ég hef gaman af því að lesa, fara í leikhús og út að borða. Svo er ég alltaf að vinna í því að reyna að gera ekki neitt stundum og hvíla mig hreinlega. – Og allra síðasta spurningin. Vorið og sumarið, hvernig leggst það í þig? Er eitthvað sérstakt á dagskrá, eitthvað skemmtilegt, sem þú stefnir á að gera? „Já, vorið og sumarið leggjast vel í mig, ég vona að kófið fari aðeins að sleppa af okkur hendinni og leyfi aðeins frelsi þegar sólin hækkar. Ég er að fara að ferma eldri drenginn minn í vor og þá kemur fjölskyldan hingað norður og eyðir góðum tíma saman.“ /MHH Bústólpi ehf - fóður og áburður • Oddeyrartanga • 600 Akureyri bustolpi@bustolpi.is • Sími 460 3350 • www.bustolpi.is KRAFTBLANDA Inniheldur Effekt Midi Island steinefnablöndu KRAFTBLANDA-30 • 30% fiskimjöl • Óerfðabreytt hráefni • Lífrænt selen KRAFTBLANDA-15 • 15% fiskimjöl • Óerfðabreytt hráefni • Lífrænt selen RAFBYLGJUMÆLINGAR OG VARNIR! Kem á staðinn og framkvæmi fyrstu mælingu ókeypis. Uppl. gefa Garðar Bergendal í síma 892-3341 og Rósa Björk Árnadóttir í síma 776-7605. Leitið upplýsinga á www.gardar.info Garðar byrjaði að mæla rafbylgjur sem kom úr tenglum, tölvum, farsímum og ljósum. Allar þessar bylgjur hafa áhrif á fólk og skepnur og geta valdið ýmsum kvillum, svo sem: Lamba- og ærdauði gæti verið út af rafmagni ‒ Mígreni ‒ Höfuðverk ‒ Svefntruflunum ‒ Vöðvabólgu ‒ Exemi ‒ Þurrk í húð vegna tölvu ‒ Fótverkjum ‒ Júgurbólgu ‒ Myglusvepp ‒ Skepnudauða ‒ Fósturskaða í dýrum Helga segist stundum líka hafa tíma til að vera hestakona, samhliða starfi sínu. Þarna vann hún bikar á litlu kvennamóti hjá Létti á Akureyri. Hesturinn heitir Geisli frá Akureyri og er í eigu góðrar vinkonu hennar. Geisli er henni mjög kær því hryssan sem hann er undan slasaðist illa þegar hún var ung. Helga átti þátt í að koma henni til þeirrar heilsu að vera ræktunarhryssa og Geisli er fyrsta folaldið sem var undan henni. Í Evrópu er töluverður fjöldi asna haldnir sem gæludýr. Þeir eru mjög krefjandi sjúklingar og hafa sannarlega sína skoðun á hlutunum. Þarna er Helga að skoða asna sem kom inn til þeirra á hestaspítalann í Ghent. Helga vann í afleysingum á hestaspítala í Osló, Noregi sem heitir Bjerke. Á þessari mynd er hún að gera hrossasóttaruppskurð á Fjord-hesti sem kom inn til spítalans um miðja nótt. Hann var með snúning á víðgirni og stíflu í smáþörmum. Hesturinn náði sér að fullu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.