Bændablaðið - 25.03.2021, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 25.03.2021, Blaðsíða 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 202126 LÍF&STARF Námskeiðinu Matarsmiðjan Beint frá býli lokið á Austurlandi: Mikill áhugi og gróska í austfirskri matvælaframleiðslu Námskeiðinu Matarsmiðjan Beint frá býli, sem Austurbrú og Hallormsstaðaskóli stóðu fyrir í góðu samstarfi, lauk nýverið. „Fólk sér vaxandi tækifæri í mat- vælaframleiðslu af ýmsu tagi hér fyrir austan, það er mikil gróska í þessari grein og áhuginn greini- legur,“ segir Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir, verkefnastjóri Matarauðs Austurlands hjá Austurbrú. Námsleiðin er unnin samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnu- lífsins og aðlöguð að austfirsku umhverfi. Ellefu nemendur luku náminu og voru útskrifaðir fyrr í þessum mánuði. Verkefnin sem þeir unnu að voru fjölbreytt og endur- spegluðu þá grósku sem fyrir hendi er í fjórðungnum. Bóklegt og verklegt nám Halldóra Dröfn segir að fyrirkomu- lag námsins hafi verið með þeim hætti að fyrir áramót var farið yfir bóklega hlutann, þar sem m.a. var komið inn á hugmyndavinnu, gerð markaðsáætlana, verk- og kostn- aðaráætlanir og fleira. Nemendur fengu fræðslu um matvælamarkað- inn á Íslandi og kynningu frá MAST og Samtökum smáframleiðenda matvæla. Eins var farið yfir helstu fjármögnunarleiðir og unnið að gæðahandbók. Bóklegi hlutinn var rafrænn. Á vorönn fór verklegt nám fram í Hallormsstaðaskóla, þar sem nemar fengu kynningu á hreinlæti og örveirufræði, vélum og tækjum til matvælaframleiðslu, næringargildi hráefna, uppskriftum, aukaefnum og merkingum. Halldóra segir að mikil áhersla hafi verið lögð á að miða seinni hluta námskeiðsins við þarfir hvers og eins nemanda og þau verkefni sem hann vann að. Nemendur höfðu aðgang að vott- uðu tilraunaeldhúsi í skólanum. Bryndís Fiona Ford skólameistari og Sigurður Eyberg Jóhannesson fagstjóri höfðu umsjón með nám- skeiðinu. Dagsferð í Berufjörð Á önninni var farið í dags- ferð í Berufjörð og komið við á Djúpavogi. Fyrst var staldrað við hjá hjónunum í Lindarbrekku, Bergþóru Valgeirsdóttur og Eið Gísla Guðmundssyni sem stunda þar hefðbundinn búskap en hafa undanfarin ár þróað vörur úr hreindýrakjöti, gæsabringum og ærkjöti. Þau hafa sjálf byggt að- stöðuna frá grunni. Þá var komið við hjá William Óðni Lefever og Gretu Mjöll Samúelsdóttur, sem stofnuðu Lefever Sause Co. fyrir nokkrum árum, fyrirtæki sem fram- leiðir sterkar sósur. Rán Freysdóttir hjá veitingastaðnum Við Voginn kynnti svonefnda „heimaplatta“ þar sem eingöngu má finna mat úr Djúpavogshreppi. Þá kom hópurinn við hjá Búlandstindi þar sem þeir kynntu sér vinnsluna, laxaslátrun og vinnslu uppsjávarfiska. Auk þess heimsótti hópurinn Steinasafn Auðuns. Fjölbreytt og spennandi verkefni Halldóra segir að nemendur hafi verið á mismunandi stigi þegar þeir byrjuðu í haust, sumir voru þegar komnir af stað með svo gott sem fullunna vöru en aðrir mættu með áhugann að vopni, með eða án hug- myndar í farteskinu. „Sumir vildu auka við þekkingu sína á mark- aðnum og ýmsu sem viðkemur því að koma vörunni á framfæri en aðrir brunnu í skinninu að fara út í ein- hvers konar matvælaframleiðslu,“ segir hún en nemendur komu víða að, frá Djúpavogi, Stöðvarfirði, Héraði, Seyðisfirði og Borgarfirði eystra. Meðal þess sem þeir unnu að má nefna að geitur komu við sögu, rauður rabarbari, þorskur, ull, ís, jerky, hljóðvist, fjallagrös, ferða- menn, koníak, pylsur, fiskisósa og margt annað sem Halldóra segir að verði gaman að fylgjast með áfram. Flestir nemanna ætla sér ótrauðir áfram með sína vöru þegar þar að kemur og sjá því fyrir sér að sækja um styrk úr Matvælasjóði fyrir sín verkefni. Halldóra segir að boðið verði upp á námskeiðið að nýju en ekki ljóst sem stendur hvort það verði strax næsta haust eða beðið fram á haustið 2022. „Áhuginn er fyrir hendi og við sjáum til hvernig mál þróast,“ segir hún. /MÞÞ Ellefu nemendur luku námskeiðinu Matarsmiðjan Beint frá býli sem Austurbrú og Hallormsstaðaskóli stóðu fyrir en útskrift var fyrr í þessum mánuði. Á myndinni eru frá vinstri: Halla Eiríksdóttir, Pála Svanhildur Geirsdóttir, Helga Rún Steinsdóttir, Þóra Björk Nikulásdóttir, Bergþóra Valgeirsdóttir, Angelika Ingrid Hofer, Jens Einarsson, Bryndís Fiona Fond, skólameistari í Hallormsstaðaskóla, Sigurður Eyberg Jóhannesson, kennari í Hallormsstaðaskóla, Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir, verkefnastjóri Austurbrú. Myndir / Austurbrú Eggin í Gleðivík vekja alltaf gleði og kátínu. Hópurinn kynnti sér starfsemi Búlandstinds í ferð sinni um Djúpavog og Berufjörð. Angelika Ingrid kynnir sína hugmynd. Halla Eiríksdóttir kynnir sína hug- mynd fyrir námskeiðsfulltrúum. William Óðinn Lefever gerði nemendum grein fyrir sínu fyrirtæki, Lefever Sause Co. Heimaplatti sem er í boði á veitingastaðnum Við Voginn á Djúpavogi, en hann samanstendur af matvælum úr heimahéraði. Pála og tveir nemendur úr sjálfbærnibraut Hallormsstaðaskóla á kynningu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.