Bændablaðið - 25.03.2021, Qupperneq 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 202126
LÍF&STARF
Námskeiðinu Matarsmiðjan Beint frá býli lokið á Austurlandi:
Mikill áhugi og gróska í austfirskri matvælaframleiðslu
Námskeiðinu Matarsmiðjan
Beint frá býli, sem Austurbrú og
Hallormsstaðaskóli stóðu fyrir
í góðu samstarfi, lauk nýverið.
„Fólk sér vaxandi tækifæri í mat-
vælaframleiðslu af ýmsu tagi hér
fyrir austan, það er mikil gróska
í þessari grein og áhuginn greini-
legur,“ segir Halldóra Dröfn
Hafþórsdóttir, verkefnastjóri
Matarauðs Austurlands hjá
Austurbrú.
Námsleiðin er unnin samkvæmt
námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnu-
lífsins og aðlöguð að austfirsku
umhverfi. Ellefu nemendur luku
náminu og voru útskrifaðir fyrr í
þessum mánuði. Verkefnin sem þeir
unnu að voru fjölbreytt og endur-
spegluðu þá grósku sem fyrir hendi
er í fjórðungnum.
Bóklegt og verklegt nám
Halldóra Dröfn segir að fyrirkomu-
lag námsins hafi verið með þeim
hætti að fyrir áramót var farið yfir
bóklega hlutann, þar sem m.a. var
komið inn á hugmyndavinnu, gerð
markaðsáætlana, verk- og kostn-
aðaráætlanir og fleira. Nemendur
fengu fræðslu um matvælamarkað-
inn á Íslandi og kynningu frá MAST
og Samtökum smáframleiðenda
matvæla. Eins var farið yfir helstu
fjármögnunarleiðir og unnið að
gæðahandbók. Bóklegi hlutinn var
rafrænn.
Á vorönn fór verklegt nám fram í
Hallormsstaðaskóla, þar sem nemar
fengu kynningu á hreinlæti og
örveirufræði, vélum og tækjum til
matvælaframleiðslu, næringargildi
hráefna, uppskriftum, aukaefnum
og merkingum. Halldóra segir að
mikil áhersla hafi verið lögð á að
miða seinni hluta námskeiðsins
við þarfir hvers og eins nemanda
og þau verkefni sem hann vann að.
Nemendur höfðu aðgang að vott-
uðu tilraunaeldhúsi í skólanum.
Bryndís Fiona Ford skólameistari
og Sigurður Eyberg Jóhannesson
fagstjóri höfðu umsjón með nám-
skeiðinu.
Dagsferð í Berufjörð
Á önninni var farið í dags-
ferð í Berufjörð og komið við á
Djúpavogi. Fyrst var staldrað við
hjá hjónunum í Lindarbrekku,
Bergþóru Valgeirsdóttur og Eið
Gísla Guðmundssyni sem stunda
þar hefðbundinn búskap en hafa
undanfarin ár þróað vörur úr
hreindýrakjöti, gæsabringum og
ærkjöti. Þau hafa sjálf byggt að-
stöðuna frá grunni. Þá var komið
við hjá William Óðni Lefever og
Gretu Mjöll Samúelsdóttur, sem
stofnuðu Lefever Sause Co. fyrir
nokkrum árum, fyrirtæki sem fram-
leiðir sterkar sósur. Rán Freysdóttir
hjá veitingastaðnum Við Voginn
kynnti svonefnda „heimaplatta“
þar sem eingöngu má finna mat úr
Djúpavogshreppi. Þá kom hópurinn
við hjá Búlandstindi þar sem þeir
kynntu sér vinnsluna, laxaslátrun
og vinnslu uppsjávarfiska. Auk
þess heimsótti hópurinn Steinasafn
Auðuns.
Fjölbreytt og spennandi verkefni
Halldóra segir að nemendur hafi
verið á mismunandi stigi þegar þeir
byrjuðu í haust, sumir voru þegar
komnir af stað með svo gott sem
fullunna vöru en aðrir mættu með
áhugann að vopni, með eða án hug-
myndar í farteskinu. „Sumir vildu
auka við þekkingu sína á mark-
aðnum og ýmsu sem viðkemur því
að koma vörunni á framfæri en aðrir
brunnu í skinninu að fara út í ein-
hvers konar matvælaframleiðslu,“
segir hún en nemendur komu víða
að, frá Djúpavogi, Stöðvarfirði,
Héraði, Seyðisfirði og Borgarfirði
eystra.
Meðal þess sem þeir unnu að
má nefna að geitur komu við sögu,
rauður rabarbari, þorskur, ull, ís,
jerky, hljóðvist, fjallagrös, ferða-
menn, koníak, pylsur, fiskisósa og
margt annað sem Halldóra segir að
verði gaman að fylgjast með áfram.
Flestir nemanna ætla sér ótrauðir
áfram með sína vöru þegar þar að
kemur og sjá því fyrir sér að sækja
um styrk úr Matvælasjóði fyrir sín
verkefni.
Halldóra segir að boðið verði
upp á námskeiðið að nýju en ekki
ljóst sem stendur hvort það verði
strax næsta haust eða beðið fram
á haustið 2022. „Áhuginn er fyrir
hendi og við sjáum til hvernig mál
þróast,“ segir hún. /MÞÞ
Ellefu nemendur luku námskeiðinu Matarsmiðjan Beint frá býli sem Austurbrú og Hallormsstaðaskóli stóðu fyrir en útskrift var fyrr í þessum mánuði. Á
myndinni eru frá vinstri: Halla Eiríksdóttir, Pála Svanhildur Geirsdóttir, Helga Rún Steinsdóttir, Þóra Björk Nikulásdóttir, Bergþóra Valgeirsdóttir, Angelika
Ingrid Hofer, Jens Einarsson, Bryndís Fiona Fond, skólameistari í Hallormsstaðaskóla, Sigurður Eyberg Jóhannesson, kennari í Hallormsstaðaskóla,
Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir, verkefnastjóri Austurbrú. Myndir / Austurbrú
Eggin í Gleðivík vekja alltaf gleði og kátínu.
Hópurinn kynnti sér starfsemi Búlandstinds í ferð sinni um Djúpavog og Berufjörð.
Angelika Ingrid kynnir sína hugmynd.
Halla Eiríksdóttir kynnir sína hug-
mynd fyrir námskeiðsfulltrúum.
William Óðinn Lefever gerði
nemendum grein fyrir sínu fyrirtæki,
Lefever Sause Co.
Heimaplatti sem er í boði á veitingastaðnum Við Voginn á Djúpavogi, en
hann samanstendur af matvælum úr heimahéraði.
Pála og tveir nemendur úr sjálfbærnibraut Hallormsstaðaskóla á kynningu.