Bændablaðið - 25.03.2021, Qupperneq 34

Bændablaðið - 25.03.2021, Qupperneq 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 202134 LÍF&STARF Móðir Jörð í Vallanesi á Fljótsdalshéraði fagnar 25 ára afmæli lífrænnar vottunar: Orkuskipti við kornþurrkunina í Vallanesi næstkomandi haust – Nýr vefur hefur nýlega verið tekinn í gagnið til að geta þjónað heimamarkaði betur Einn atkvæðamesti framleið- andi á lífrænt vottaðri matvöru á Íslandi er Móðir Jörð í Vallanesi á Fljótsdalshéraði, sem fagnar um þessar mundir að 25 ár eru frá því að framleiðsla þeirra og land fékk lífræna vottun. Hjónin Eymundur Magnússon og Eygló Björk Ólafsdóttir standa saman að búrekstrinum í Vallanesi og starfsemi Móður Jarðar. Eymundur hóf búskap þar árið 1979, fyrst í kúabúskap en síðar grænmet- is- og kornrækt. Móðir Jörð sem vörumerki verður til í kringum árið 1990 og fyrstu vörurnar verða til. Eygló kemur svo að Vallanesi árið 2009 en hún er viðskiptafræðing- ur að mennt. Með sinn áhuga á matargerð og reynslu af markaðs- málum hefur umfang vörulínunnar stækkað og ásýnd Móður Jarðar tekið töluverðum breytingum með tilkomu hennar, en þau hjónin hafa bæði brennandi áhuga á nýsköpun. Eygló hefur verið virk í starfi Slow Food-hreyfingarinnar á Íslandi og er formaður VOR, félags framleiðenda í lífrænum landbúnaði. Móðir Jörð virðist í stöðugri sókn, stöðugt er unnið að vöruþró- un og ferðaþjónusta er þar vaxandi. Þau ætla sér að nýta afurðir úr eigin skógrækt til knýja kornþurrkun sína í framtíðinni og hafa nýlega opnað nýjan vef, www.modirjord.is. Fyrsta vottunin í nafni Soil Association Að sögn Eymundar knúðu nokkrir frumkvöðlar í lífrænni framleiðslu á sínum tíma á um að lagður var grunnur að vottunarkerfi á Íslandi .„Upphaflega var vottunin frá Soil Association í Bretlandi. Vottunarstofan Tún var stofnuð 1994, en fyrsta vottunarskírteinið fyrir Vallanes var gefið út árið 1995 í nafni Soil Association. Íslensk löggjöf tók síðan gildi árið 1997. Móðir Jörð verður hins vegar til sem vörumerki um 1990 og þótti mjög sérstakt á þeim tíma að bændur væru með sitt eigið vörumerki. Vörur frá Móður Jörð hafa nú verið í dreifingu í verslunum á Íslandi í rúm 30 ár og er vörumerkið sýnilegt í öllum helstu matvöruverslunum,“ segir Eymundur. Fullunnar vörur frá 2004 Í dag er Móðir Jörð líklega einkum þekkt af vörunum, en framan af var kornrækt og kartöfluræktun megin uppistaðan í starfsemi Móður Jarðar. Eymundur segir að sú þróun að búa til fullunnar vörur hafi orðið til árið 2004, til að koma grundvelli undir heilsársstarfsemi. Þá hafi hann þróað fyrst tilbúin grænmetisbuff sem njóta að hans sögn mikilla vinsælda. „Buffin innihalda allt að 98 prósent hrá- efni úr eigin ræktun. Hnetusteik er ný vara frá okkur í sömu línu og hefur fengið mjög góðar viðtökur,“ segir hann. Nýtt skeið í vöruþróun hófst þegar Eygló kom til liðs við Móður Jörð um 2009 í kjölfar hrunsins. Þá var lag að kynna ís- lenskar vörur til leiks og hafist var handa við að þróa fleiri vörur úr grænmeti, m.a. sultað grænmeti s.s. Rauðrófugló, auk þess sem stór lína af súrkáli byrjaði að fæðast. Móðir Jörð varð fyrst framleiðenda til að kynna Íslendingum ferskt súrkál og annað sýrt grænmeti og telur vörulínan nú 10 uppskriftir. Við höfum auk þess lagt áherslu á að þróa vörur og lausnir úr byggi, bæði sem almenna neysluvöru og einnig sem matarminjagripi. „Markmiðið er að rækta grunn- hráefnið sjálf og nýta sem mest það land sem við höfum til umráða og fullvinna hvað það hráefni sem okkur þykir vera skynsamlegt að rækta eða nýta. Þegar við búum ekki sjálf yfir því hráefni, sem vissulega kemur fyrir, þá leitumst við eftir að kaupa það frá öðrum íslenskum framleiðendum með lífræna vottun. Við sjáum vel fyrir okkur að geta keypt lífrænt vottað korn og græn- meti af öðrum ræktendum á Íslandi en við erum enn sem komið er þau einu á landinu með vottaða ræktun á korni til manneldis.“ Asparhúsið hýsir grænkera- veitingastað Eygló segir að viss tímamót hafi orðið í búrekstrinum í Vallanesi árrið 2017, þegar þau opnuðu verslun og veitingastað sem þau nefna Asparhúsið. „Það er byggt úr ösp, heimafengnu timbri, en þeim var plantað í Vallanesi 1986. Þar bjóðum við upp á grænmetisrétti úr íslensku hráefni, hollan mat úr því ferskasta hverju sinni og í takt við árstíðirnar. Við notum mikið bygg og þetta hús gegnir því miklu hlutverki að kenna fólki að nota bygg sem er frábært og hollt heilkorn en það má töfra girni- lega rétti úr því með einföldum hætti. Hér getur fólk líka keypt ferskt græn- meti en við setjum líka upp markaði af og til yfir sumartímann,“ segir Eygló. Nýjar húðvörur í þróun Með vaxandi umfangi í Vallanesi og aukinni framleiðslu hefur þrengt að starfsaðstöðunni jafnt og þétt. Því hefur verið ráðist í að gera upp gamla fjósið á bænum, að sögn Eyglóar, til að auka vinnslurýmið og bæta geymsluskilyrði fyrir ferskt grænmeti. Þetta gerir að verkum að hráefnið nýtist betur og við getum átt hráefni í framleiðsluvörur okkar lengur fram á vetur. Auk þess fáum við betri aðstöðu fyrir vinnslu á olíu og jurtum sem bera munu með sér nýjungar á vormánuðum. Við höfum ræktað repju til olíugerðar í nokkur ár og nýtur hún vaxandi vinsælda og margir matreiðslumenn hafa tekið ástfóstri við hana. Við hyggjumst vinna meira úr repjunni og erum t.a.m. að kynna tvær húðolíur til leiks á næstu vikum en olían hefur mikla kosti, bæði í snyrtivörur auk þess að vera góð alhliða matarolía. Nuddolía var reyndar fyrsta framleiðsluvara Móður Jarðar á níunda áratugnum og Lífolía er þeirra þekktust,“ segir Eygló. Vaxandi ferðaþjónusta „Aðsóknin í Asparhúsið hefur verið vaxandi á þeim fjórum árum sem nú eru liðin frá opnun þess en Íslendingar hafa verið okkar stærsti kúnnahópur, við erum að fá í kringum átta þúsund gesti á ári. Við höfum einnig verið vel kynnt í Frakklandi og Þýskalandi þar sem býlið hefur ratað inn í mikilvægar ferðahandbækur. Á framleiðslustað er eðlilegt að bjóða upp á ýmsar sérvörur og allt það fers- kasta auk vara sem ekki eru komnar í almenna dreifingu. Nú færum við þetta framboð á vefinn en við sjáum að við getum þjónað heimamarkaði betur með aðgengi að sérvörum og jafnvel í fersku grænmeti þar sem hefð er komin fyrir því að bjóða kassa með ferskustu uppskerunni á hverjum tíma sumar og haust,“ segir Eygló og vísar þar til þess að nýlega var tekinn nýr vefur Móður Jarðar í gagnið. „En vissulega er markmiðið að stækka markaðssvæðið og til að auðvelda útflutning verður vefurinn jafnframt á ensku. Margir erlend- ir ferðamenn sem hafa heimsótt Asparhúsið hafa pantað vörur þegar heim er komið. Eftirspurnin er því greinilega til staðar.“ Stefna árlega á 100 tonna kornrækt Kornræktin í Vallanesi er nokkuð um- fangsmikil og er eingöngu til mann- eldis. Eymundur segir að þau rækti aðallega bygg og af og til hveiti. „Við höfum komið okkur upp línu af byggi í mörgum útgáfum; Bankabygg, byggmjöl, byggflögur og Perlubygg Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.lci.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 ZETOR VARAHLUTIR Eymundur Magnússon og Eygló Björk Ólafsdóttir í fallegum kornakri í Vallanesi. Myndir / Móðir Jörð Móðir Jörð hóf framleiðslu á súrkáli árið 2012 og byggir línuna á græn- meti úr eigin ræktun. Í Asparhúsinu er boðið upp á grænmetisfæði úr íslensku hráefni. Asparhúsið er byggt úr ösp og stendur í hjarta býlisins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.