Bændablaðið - 25.03.2021, Blaðsíða 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 202136
LÍF&STARF
Ljósmyndaklúbburinn Blik:
Kötlu-íshellirinn í Mýrdalsjökli eitt af undrum veraldar
Ljósmyndaklúbburinn Blik fór
í helgarferð til Víkur í Mýrdal
dagana 5.–7. mars síðastliðinn til
að sjá og skoða Kötlu-íshellinn
í Mýrdalsjökli. Ákveðið var
að njóta liðsinnis Southcoast
Adventure til fararinnar enda
þeir með reglulegar ferðir inn að
Kötlujökli.
Fór hópurinn á tveimur vel
útbúnum fjallabílum sem út af fyrir
sig er hreint ævintýri. Þegar komið
var inn eftir dreifðu fararstjórarn
ir, sem jafnframt voru ökumenn
irnir, mannbrodd
um og hjálmum til
allra, enda hluti af
öryggisbúnaði sem
til þarf við heim
sóknir í íshella og
jökla.
Þægileg aðkoma
Veðrið var ein stak
lega milt og smá
þokusuddi til að byrja
með en rofaði til fljót
lega eftir að komið var
í hellinn og varð eins
og best var á kosið. Um
10 mínútna gangur er
frá bílastæðinu að hell
inum og frekar þægileg
ganga fyrir alla sem yfir
höfuð geta gengið.
Í she l l i r inn í
Kötlujökli hefur mynd
ast undan far in ár mest
af leysingarvatni og
yfirborðs bráðnun í jökl
inum, mismikið vatn
rennur um hellinn og fer það eftir
árstíma hvort sé fært inn í hellinn
eða ekki. Þessa helgi var mjög lítið
vatn á ferðinni og auðvelt að skoða
sig um í hellinum og taka myndir,
sem var tilgangur ferðarinnar fyrst
og fremst.
Hellis opið er frekar stórt, um 25
til 30 metrar, og dvöld um
við þarna á annan tíma við mynda
tök ur eða þar til næsti hópur mætti
á svæðið, þá var genginn smáspölur
suður fyrir íshellinn að ísdal sem þar
hefur myndast undanfarin ár. Þar var
okkur bent á hvernig íshellar mynd
ast. þetta svæði er í jaðri gígs eins
öflugasta eldfjalls landsins, Kötlu,
og er svæðið hálfgerð paradís ljós
myndarans, endalausar ísmyndanir
alls staðar í kring hvert sem litið var
og myndefni óþrjótandi.
Eitt af undrum veraldar
Íshellirinn í Kötlujökli er breytilegur
frá degi til dags, en er alltaf mögnuð
sýn, eiginlega eitt af undrum ver
aldar. Katla, sem gaus síðast árið
1918, og ummerki á svæðinu bera
með sér hrikalegar hamfarir sem
gosið olli. Leiðsögumennirnir út
skýrðu fyrir okkur hvernig landið
breyttist í þessum hamförum.
Einstaklega skemmtileg og fróðleg
ferð, sem vakti löngun hjá okkur
öllum um fleiri ferðir til að fræðast
enn meir um okkar yndislega og stór
brotna land. Svæðið í kringum Vík
var svo skoðað og myndað, meðal
annars Hjörleifshöfði, Reynisfjall,
Reynisfjaran, Dyr hóla ey og víðar.
Stefnan er að fara í fleiri ferðir
út á land, bæði dagsferðir og helg
arferðir.
Við hvetjum þá sem hafa áhuga
á að vera með okkur í Ljósmynda
klúbbnum Blik að hafa samband
við klúbbinn á blik.is eða Sólveigu
Stolzenwald í síma 863 7273 og fá
frekari upplýsingar. /KSW
Hópur Blikafélaga í Kötlu-íshellinum í byrjun mars. Myndir / Kristín Snorradóttir Waagfjörð
Átján verkefni fá styrki úr
Samfélagssjóði Fljótsdals
Samfélagssjóður Fljótsdals var
formlega stofnaður í apríl árið
2020 með veglegu fjárframlagi
frá Fljótsdalshreppi.
Markmið og tilgangur sjóðsins
er að styrkja fjárhagslega verk
efni á sviði atvinnu, nýsköpunar,
umhverfis, velferðar og menningar
sem stuðli að jákvæðri samfélags
þróun og/eða eflingu atvinnulífs í
Fljótsdal.
Einstaklingar, félög og aðrir lög
aðilar geta fengið styrki úr sjóðnum
óháð búsetu enda uppfylli verkefni
sem óskað er eftir að verði styrkt
skilyrði sem fram koma í markmið
um sjóðsins og skilyrði úthlutunar
reglna sem stjórn skal setja sjóðnum.
Stjórn sjóðsins ákveður styrki til
einstakra verkefna og hvernig þeir
greiðast til styrkþega.
Stjórn Samfélagssjóðsins aug
lýsti eftir umsóknum um styrki
eftir miðjan janúar og bárust alls 30
umsóknir. Heildarkostnaður verk
efna var 75 milljónir kr. og sótt um
35 milljónir kr.
Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að
veita styrki til alls 18 verkefna að
upphæð 12.800.000 kr.
Samfélagssjóður Fljótsdals styrkþegar 2021
1.700.000 Framleiðslulína fyrir flettingu á trjábolum Skógarafurðir ehf.
1.700.000 Tilraun varðandi útfærslu Coanda inntaks
fyrir litlar virkjanir.
Sveinn Ingimarsson
1.300.000 Sauðagull – Vinnuaðstaða Sauðagull Ann-Marie Schultz
1.000.000 Heimasíða Helga Hall Heiðveig Agnes Helgadóttir
850.000 Vetraruppbygging ferðaþjónustu Óbyggðasetrið ehf – Steingrímur Karls.
850.000 Lambi – Landbúnaðartengdur iðnaðarklasi
í Fljótsdal
Óstofnað félag – Einar Sveinn Friðriksson
800.000 Fjallahjól Sólrún Júlía Hjartardóttir
700.000 Náttúruskólinn – Útipúkar og píslir Umf. Þristur
600.000 Sauðagull – Markaðssetning Sauðagull Ann Marie Schultz
600.000 Könglar Dagrún Drótt Valgarðsdóttir og Emma
Charlotta Ärmänen
500.000 Viðarkynntur hitari fyrir baðtunnu G. J. Smíði ehf – Guðni Jónsson
500.000 Vöruhönnun á buxnasniði fyrir börn með
sérþarfir
Saumadraumur slf. Halla Auðunardóttir
300.000 Fjársjóðsleit fyrir fjölskyldur Gunnarsstofnun f.h. Upphéraðsklasinn
300.000 Charma ull úr Fljótsdal Emma Charlotta Ärmänen
300.000 Hlutir úr bræddu plasti Jónas Bragi Hallgrímsson
300.000 Framleiðsluáhöld úr íslenskum
skógarafurðum
Aðalbjörg Ósk Guðmundsdóttir
300.000 Skinnaverkun Jósef Valgarð Þorvaldsson
200.000 Stafræn ganga til Gautavíkur Gunnarsstofnun – Skúli Björn Gunnars.
Styrkþegar við úthlutunarathöfn fór fram í Óbyggðasetrinu 18. mars 2021. Mynd / Friðrik Indriðason
Fögur framtíð í Fljótsdal er sam-
félagsverkefni sem stofnað var til
með samfélagsþingi árið 2019.
Eitt af áhersluverkefnum eftir
það þing var að stofna verkefna-
sjóð til stuðnings nýsköpunar,
menningar og atvinnuskap-
andi verkefnum í Fljótsdal og
ber nú nafnið Samfélagssjóður
Fljótsdals.
Fljótsdalur er einstakur.
Landslag er fjölbreytt og stórbrot
ið með fögrum fossum á borð við
Hengifoss, Strútsfoss, Slæðufoss
auk fossaröðum í Jökulsá og
Kelduá svo eitthvað sé nefnt,
klettabeltum og Tröllkonuhlaupi,
viðurkenndu Ramsar votlendi á
borð við Eyjabakka og Snæfellsnes,
austurgátt Vatnajökulsþjóðgarðs.
Blómlegt ræktarland og skógi
vaxnar hlíðar einkenna líka dalinn
sem gefa af sér einstakar afurð
ir; fóður, matvæli og bygginga r
efnivið.
Helstu atvinnugreinar Fljótsdals
eru ferðaþjónusta en tugþúsundir
ferðamanna og útivistarfólks heim
sækja dalinn á hverju ári. Ýmis
fyrirtæki þjónusta ferðamanninn,
s.s. Snæfellsstofa, Skriðuklaustur,
Klausturkaffi, Hengifoss guest
house, Óbyggðasetrið og
Laugafell, svo einhver séu nefnd.
Iðnaður skipar stóran sess en
Fljótsdalsstöð Landsvirkjunar er
einn fjölmennasti vinnustaðurinn
í Fljótsdal. Sauðfjárrækt er megin
grein landbúnaðar. Dilka kjötið er
rómað fyrir einstakt skógarbragð
en auk þess eru unnar afurðir úr
sauðamjólk. Fljóts dalurinn er vel
þekkt skógræktarsvæði og afurð
ir eftirsókna r verðar, s.s. jóla
tré, húspanill, pallaefni, parket,
girðinga staurar og stikur.
Fögur framtíð í Fljótsdal