Bændablaðið - 25.03.2021, Blaðsíða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 2021 41
SAMFÉLAGSRÝNI
Formaður stjórnar Votlendissjóðs,
Þröstur Ólafsson, svarar grein
undirritaðs (Bændablaðið
25.02.2021) í síðasta Bændablaði
(11.03). Þar er mikið um vandlæt
ingar og þá ekki síst um faðerni
Votlendissjóðs. Má segja að það
hafi verið að vonum og er sjálf
sagt að biðjast velvirðingar á
ónákvæmni í því að bendla hinu
opinbera við getnað sjóðsins.
Skoðum þó þennan þátt ögn
nánar, með eftirfarandi tilvitnun í
hlutverk sjóðsins, samkvæmt vef-
síðu hans:
,,Votlendissjóðurinn er sjálfs
eigna sjóður fjármagnaður af sam
félagslega ábyrgum fyrirtækjum og
einstaklingum. Hlutverk sjóðsins er
að vinna að því að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda með endur
heimt votlendis, í samstarfi við land
eigendur, ríki, sveitarfélög, fyrirtæki,
félagasamtök og einstakl inga.“
Ennfremur:
,,Öll endurheimt Votlendis
sjóðsins er unnin í samvinnu við
Landgræðsluna sem heldur utan
um landsbókhald endurheimtar fyrir
Ísland og staðfestir endurheimt á
þá skrá.“
Það er vissulega ofsagt í grein
undirritaðs að sjóðurinn sé skilgetið
afkvæmi hins opinbera. Hins vegar
kemur fram að ríkið, sveitarfélög eru
samstarfsaðilar að sjóðnum ásamt
Landgræðslunni, – öll mjög öflugir
opiberir aðilar sem koma þannig
sterklega að uppeldi hans.
Stóra málið er að verkefnið í
heild kostar í sjálfu sér það sama,
hverjir svo sem eiga þarna hlut að
máli.
Vissulega hafa miklir fram-
kvæmda-og bjartsýnismenn í mörg-
um tilfellum, farið offari í skurð-
greftri, á meðan loftslagsvá slíkra
framkvæmda var ókunn. Fullyrða
má þó að verið sé að bera í barma-
fullan lækinn (skurðinn), þegar full-
yrt er í sömu heimild að ,,Um 4.200
km2 votlendis hafa verið ræstir fram
hér á landi, en einungis 570 km2
þess lands eru nýttir til jarðræktar.“
Samkvæmt þessu var losun gróð-
urhúsalofttegunda úr framræstu
votlendi á Íslandi árið 2013 metin
11,7 milljónir tonna CO2 ígildi, en
heildarlosun gróðurhúsalofttegunda
hér á landi árið 2013 var 16,6 millj-
ónir tonna CO2 ígilda. Út frá þessu
ætti losun framræslunnar vera rúm
70% heildarlosunar.
Annað er upp á teningnum,
þegar tveir doktorar, Þorsteinn
Guðmundsson og Guðni Þorvaldsson
við Landbúnaðarháskóla Íslands
(Bændablaðið 25.01.2018) reiknuðu
út frá áætlaðri heildarlengd skurða
upp á 32.000 km að framræst land
alls á landinu sé um 1.600 km2, sem
ætti að minnka hlutdeild framræsl-
unnar í losun CO2 ígildis úr áður
nefndum 11,7 milljónum tonna í
um 4,7 milljónir, eða um 60% og
heildarlosun landsins úr fyrrnefnd-
um 70% niður í um 49%.
Að auki telja þeir LbhÍ menn
upp fjölmörg atriði, sem enn gætu
minnkað þessa hlutdeild framræslu
í losun gróðurhúsalofttegunda.
Helstu skekkjuvaldarnir sem þeir
félagar nefna af mikilli hógværð eru
óvissa um stærð þurrkaðs votlendis,
breytileika í magni lífræns efnis í
votlendi sem taka þarf tillit til og
takmarkaðar innlendar mælingar á
losun sem gerir það að verkum að
erlendir stuðlar eru notaðir. Bent
er einnig á framhaldsgrein þeirra
LbhÍ manna um þessi efni í Bbl.
22.02.2018.
Hér er ekki rými til frekari um -
fjöllunar um nefndar greinar þeirra
Þorsteins og Guðna, en mjög fróð-
legt áhugasömum að kynna sér vel
efni þeirra.
Aðalatriðið er að taka til ræktun-
ar, gróður, sem er eftirsóttur og bind-
ur mikið kolefni, og kolefnisjafna
þannig óæskileg loftslagsáhrif fram-
ræslunnar að miklu eða öllu leyti.
Í þessu sambandi er áhugavert að
vitna ögn í nýlega grein í tímaritinu
Forest Ecology and Management
(482 (2021) 118861), eftir
Brynhildi Bjarnadóttur og fleiri.
Brynhildur birti samandregið yfir-
lit yfir rann sóknina í blaðinu ,,Við
skógaeigendur“, sem hún nefndi
,,Kolefnisbinding í asparskógi á
framræstri mýri á Suðurlandi“. Þar
kom eftirfarandi m. a. fram:
,,Á árunum 2014-2017 fór fram
viðamikið rannsóknarverkefni á
rúmlega 20 ára gömlum asparskógi
sem stendur á framræstri mýri, svo-
nefndri Sandlækjarmýri, í Skeiða-
og Gnúpverjahreppi. Mark mið rann-
sóknarinnar var að skoða kolefn-
ismálin í vistkerfi þar sem fram
fara bæði losun á kolefni (vegna
framræslu mýrarinnar) og binding
á kolefni (fyrir tilstuðlan trjánna).“
Eitt af höfuðmarkmiðum rann-
sóknarinnar var, hvort skógurinn
hefði náð að vega upp losun á koltví-
sýringi vegna framræslunnar.
Niðurstöðurnar voru áhugaverð-
ar. Umtalsverð kolefnisbinding átti
sér stað á svæðinu í heild á ársgrund-
velli. Að meðaltali bundust um 7,14
t C á ha á ári sem sýndi að uppsöfnun
kolefnis í vistkerfinu á þessum tíma-
punkti var bæði mikil og hröð.“
Varðandi nefnt höfuðmarkmið
rannsóknarinnar, kom eftirfarandi
fram:
,,Tölurnar úr Sandlækjarmýri
gefa til kynna að við rúmlega 20 ára
aldur vegi skógurinn upp alla losun
vegna framræslunnar og gott betur
en það, enda um talsverða kolefn-
isbindingu á svæðinu að ræða. Þessi
rannsókn bendir því til þess, að rækt-
un skógar á framræstri mýri sé bæði
fljótvirk og jákvæð loftslagsaðgerð.“
Efnislega kom fram hjá Brynhildi
í tölvupósti til undirritaðs:
Lykiltalan þar er 7,14 t C ha/ári
– sem er jákvæður kolefnisjöfnuð
ur í vistkerfi sem samanstendur af
skógi á framræstri mýri. Þannig
að sú landnýting að planta skógi í
framræst mýrlendi, hefur jákvæð
loftslagsáhrif, eins og endurheimt
votlendis, þar sem verið er að
stoppa losun sem er á bilinu 14
t C ha/ári.
Þessi niðurstaða er í algjörru
ósamræmi við villandi fullyrðingar
Þrastar og sýnir mátt skógræktar til
kolefnisjöfnunar á framræstu landi
langt umfram alhæfingu Þrastar
þegar vel er að málum staðið.
Þá má nefna skógrækt víðar en
í famræstu landi til frekari kolefn-
isbindingar.
Dæmi hér um má sjá á með-
fylgjandi mynd frá árangur-
sríkri uppgræðslu á annars illa
gróðursnauðri Grásteinsheiði við
Húsavík frá Skógræktinni, sem
fylgir greininni ,,Frjósamt samlífi
birkis og lúpinu hjálpar til við að
endurreisa birkiskóga“ Þar sem
hvor tegund vex ein og sér eiga
báðar í erfiðleikum með að lifa af.
Vaxi þær saman blómstra þær hins
vegar báðar og binda vafalaust drjúgt
kolefni auk þess að stöðva gróður-og
landeyðingu.
Samhliða aukinni fæðuþörf
heimsins virðist tilgangur Vorlendis-
sjóðs snúast um það eitt að fórna
framræstum gróðurlendum með því
að molda yfir framræsluskurðina og
eyðileggja með því nánast alla rækt-
unarmöguleika í vatnssósa mýrum.
Tilgangurinn birtist ekki síst í dýrum
heilsíðuauglýsingum og áróðri í fjöl-
miðlum til að egna fyrir eigendur
slíkra landareigna til fylgis við upp-
átækið.
Fyrir utan skógrækt, sem rædd
hefur verið hér að framan, hefur
undirritaður nefnt ýmsa aðra
lífvænlega ræktunarkosti í fyrri
grein sinni, s.s. eins og ræktun
uppskerumikilla jurta eins og
korntegundir, repju og skógrækt.
Þá hefur ræktun og nýting á
iðnaðarhampi nokkuð borið á góma.
Þar er um svo mikla fjölbreytni að
ræða að hér verður látið nægja að
benda áhugasömum á að fara inn á
,,Rannsókna- og þróunarsetur Geisla
í Gautavík (hampur)“ á Fésbókinni,
hafi menn ekki gert það nú þegar.
Mjög áhugavert og gefur fyrirheit
um mikla kolefnisbindingu og
atvinnumöguleika í framtíðinni.
Vitandi um slíka valkosti og
miklu fleiri fram yfir skurðamoldun
Votlendissjóðs er vart hægt að
verjast þeirri hugsun að líkja þessu
fyrirbrigði við eins konar útfararstofu
í því að jarðsetja metnaðarfull
bjargráð, sem byggja á lífskrafti en
ekki feigðarflani.
Í staðinn fyrir þessa einstefnu
Votlendissjóðs með sitt ein-
strengings lega ráð, hefði verið nær
að stofna framsækinn félagsskap eða
starfshóp um stórfellt átak til kolefn-
isbindingar með því að græða landið
í sínum víðasta skilningi og nýta til
þess allt frá frjósömu framræslulandi
og til uppgræðslu vangróinna heiðar-
landa af ýmsum toga. Slíkt þarf að
byggja á þekkingu í gegnum, reynslu
og vísindi. Til þess höfum við gott og
öflugt fagfólk og reynsliríka og ráða-
góða bændur. Mikilvægast af öllu
er þó að víðtæk samstaða náist um
verkefnið og að stjórnvöld beri gæfu
til að átta sig á málinu og sameinist
í að ná árangi sem fyrst á þessum
vettvangi.
Tek undir eftirfarandi, sem
Brynhildur Bjarnadóttir nefndi í
bréfskrifum við undirritaðan: „Versta
sviðsmyndin er að láta framræsta
landið standa óhreyft.“
Þessum orðum geta flestir verið
sammála. Mikilvægt er hins vegar að
finna metnaðarfyllri og búmannlegri
leiðir til að hemja allt skurðayfirklór.
Þórarinn Lárusson
Fosshálsi 1, Reykjavík - 575-6071 | Ormsvelli 4, Hvolsvelli - 575-6099
Búvörur SS | www.buvorur.is
Orkurík og lystug kjarnfóðurblanda fyrir
hross í mikilli þjálfun. Gefur keppnis-
og kynbótahrossum þá aukaorku sem
þau þurfa. Fitan í fóðrinu eykur úthald
og dregur úr myndun mjólkursýru.
Inniheldur ekki hafra.
EQUSANA POWER FLAKES
Hvað gæti verið sameiginlegt með
Votlendissjóði og útfararstofu?
Þórarinn Lárusson.
Árangursrík uppgræðsla á annars illa gróðursnauðri Grásteinsheiði við Húsavík. Mynd / Skógræktin