Bændablaðið - 25.03.2021, Qupperneq 41

Bændablaðið - 25.03.2021, Qupperneq 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 2021 41 SAMFÉLAGSRÝNI Formaður stjórnar Votlendissjóðs, Þröstur Ólafsson, svarar grein undirritaðs (Bændablaðið 25.02.2021) í síðasta Bændablaði (11.03). Þar er mikið um vandlæt­ ingar og þá ekki síst um faðerni Votlendissjóðs. Má segja að það hafi verið að vonum og er sjálf­ sagt að biðjast velvirðingar á ónákvæmni í því að bendla hinu opinbera við getnað sjóðsins. Skoðum þó þennan þátt ögn nánar, með eftirfarandi tilvitnun í hlutverk sjóðsins, samkvæmt vef- síðu hans: ,,Votlendissjóðurinn er sjálfs­ eigna sjóður fjármagnaður af sam­ félagslega ábyrgum fyrirtækjum og einstaklingum. Hlutverk sjóðsins er að vinna að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með endur­ heimt votlendis, í samstarfi við land­ eigendur, ríki, sveitarfélög, fyrirtæki, félagasamtök og einstakl inga.“ Ennfremur: ,,Öll endurheimt Votlendis­ sjóðsins er unnin í samvinnu við Landgræðsluna sem heldur utan um landsbókhald endurheimtar fyrir Ísland og staðfestir endurheimt á þá skrá.“ Það er vissulega ofsagt í grein undirritaðs að sjóðurinn sé skilgetið afkvæmi hins opinbera. Hins vegar kemur fram að ríkið, sveitarfélög eru samstarfsaðilar að sjóðnum ásamt Landgræðslunni, – öll mjög öflugir opiberir aðilar sem koma þannig sterklega að uppeldi hans. Stóra málið er að verkefnið í heild kostar í sjálfu sér það sama, hverjir svo sem eiga þarna hlut að máli. Vissulega hafa miklir fram- kvæmda-og bjartsýnismenn í mörg- um tilfellum, farið offari í skurð- greftri, á meðan loftslagsvá slíkra framkvæmda var ókunn. Fullyrða má þó að verið sé að bera í barma- fullan lækinn (skurðinn), þegar full- yrt er í sömu heimild að ,,Um 4.200 km2 votlendis hafa verið ræstir fram hér á landi, en einungis 570 km2 þess lands eru nýttir til jarðræktar.“ Samkvæmt þessu var losun gróð- urhúsalofttegunda úr framræstu votlendi á Íslandi árið 2013 metin 11,7 milljónir tonna CO2 ígildi, en heildarlosun gróðurhúsalofttegunda hér á landi árið 2013 var 16,6 millj- ónir tonna CO2 ígilda. Út frá þessu ætti losun framræslunnar vera rúm 70% heildarlosunar. Annað er upp á teningnum, þegar tveir doktorar, Þorsteinn Guðmundsson og Guðni Þorvaldsson við Landbúnaðarháskóla Íslands (Bændablaðið 25.01.2018) reiknuðu út frá áætlaðri heildarlengd skurða upp á 32.000 km að framræst land alls á landinu sé um 1.600 km2, sem ætti að minnka hlutdeild framræsl- unnar í losun CO2 ígildis úr áður nefndum 11,7 milljónum tonna í um 4,7 milljónir, eða um 60% og heildarlosun landsins úr fyrrnefnd- um 70% niður í um 49%. Að auki telja þeir LbhÍ menn upp fjölmörg atriði, sem enn gætu minnkað þessa hlutdeild framræslu í losun gróðurhúsalofttegunda. Helstu skekkjuvaldarnir sem þeir félagar nefna af mikilli hógværð eru óvissa um stærð þurrkaðs votlendis, breytileika í magni lífræns efnis í votlendi sem taka þarf tillit til og takmarkaðar innlendar mælingar á losun sem gerir það að verkum að erlendir stuðlar eru notaðir. Bent er einnig á framhaldsgrein þeirra LbhÍ manna um þessi efni í Bbl. 22.02.2018. Hér er ekki rými til frekari um - fjöllunar um nefndar greinar þeirra Þorsteins og Guðna, en mjög fróð- legt áhugasömum að kynna sér vel efni þeirra. Aðalatriðið er að taka til ræktun- ar, gróður, sem er eftirsóttur og bind- ur mikið kolefni, og kolefnisjafna þannig óæskileg loftslagsáhrif fram- ræslunnar að miklu eða öllu leyti. Í þessu sambandi er áhugavert að vitna ögn í nýlega grein í tímaritinu Forest Ecology and Management (482 (2021) 118861), eftir Brynhildi Bjarnadóttur og fleiri. Brynhildur birti samandregið yfir- lit yfir rann sóknina í blaðinu ,,Við skógaeigendur“, sem hún nefndi ,,Kolefnisbinding í asparskógi á framræstri mýri á Suðurlandi“. Þar kom eftirfarandi m. a. fram: ,,Á árunum 2014-2017 fór fram viðamikið rannsóknarverkefni á rúmlega 20 ára gömlum asparskógi sem stendur á framræstri mýri, svo- nefndri Sandlækjarmýri, í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Mark mið rann- sóknarinnar var að skoða kolefn- ismálin í vistkerfi þar sem fram fara bæði losun á kolefni (vegna framræslu mýrarinnar) og binding á kolefni (fyrir tilstuðlan trjánna).“ Eitt af höfuðmarkmiðum rann- sóknarinnar var, hvort skógurinn hefði náð að vega upp losun á koltví- sýringi vegna framræslunnar. Niðurstöðurnar voru áhugaverð- ar. Umtalsverð kolefnisbinding átti sér stað á svæðinu í heild á ársgrund- velli. Að meðaltali bundust um 7,14 t C á ha á ári sem sýndi að uppsöfnun kolefnis í vistkerfinu á þessum tíma- punkti var bæði mikil og hröð.“ Varðandi nefnt höfuðmarkmið rannsóknarinnar, kom eftirfarandi fram: ,,Tölurnar úr Sandlækjarmýri gefa til kynna að við rúmlega 20 ára aldur vegi skógurinn upp alla losun vegna framræslunnar og gott betur en það, enda um talsverða kolefn- isbindingu á svæðinu að ræða. Þessi rannsókn bendir því til þess, að rækt- un skógar á framræstri mýri sé bæði fljótvirk og jákvæð loftslagsaðgerð.“ Efnislega kom fram hjá Brynhildi í tölvupósti til undirritaðs: Lykiltalan þar er 7,14 t C ha/ári – sem er jákvæður kolefnisjöfnuð­ ur í vistkerfi sem samanstendur af skógi á framræstri mýri. Þannig að sú landnýting að planta skógi í framræst mýrlendi, hefur jákvæð loftslagsáhrif, eins og endurheimt votlendis, þar sem verið er að stoppa losun sem er á bilinu 1­4 t C ha/ári. Þessi niðurstaða er í algjörru ósamræmi við villandi fullyrðingar Þrastar og sýnir mátt skógræktar til kolefnisjöfnunar á framræstu landi langt umfram alhæfingu Þrastar þegar vel er að málum staðið. Þá má nefna skógrækt víðar en í famræstu landi til frekari kolefn- isbindingar. Dæmi hér um má sjá á með- fylgjandi mynd frá árangur- sríkri uppgræðslu á annars illa gróðursnauðri Grásteinsheiði við Húsavík frá Skógræktinni, sem fylgir greininni ,,Frjósamt samlífi birkis og lúpinu hjálpar til við að endurreisa birkiskóga“ Þar sem hvor tegund vex ein og sér eiga báðar í erfiðleikum með að lifa af. Vaxi þær saman blómstra þær hins vegar báðar og binda vafalaust drjúgt kolefni auk þess að stöðva gróður-og landeyðingu. Samhliða aukinni fæðuþörf heimsins virðist tilgangur Vorlendis- sjóðs snúast um það eitt að fórna framræstum gróðurlendum með því að molda yfir framræsluskurðina og eyðileggja með því nánast alla rækt- unarmöguleika í vatnssósa mýrum. Tilgangurinn birtist ekki síst í dýrum heilsíðuauglýsingum og áróðri í fjöl- miðlum til að egna fyrir eigendur slíkra landareigna til fylgis við upp- átækið. Fyrir utan skógrækt, sem rædd hefur verið hér að framan, hefur undirritaður nefnt ýmsa aðra lífvænlega ræktunarkosti í fyrri grein sinni, s.s. eins og ræktun uppskerumikilla jurta eins og korntegundir, repju og skógrækt. Þá hefur ræktun og nýting á iðnaðarhampi nokkuð borið á góma. Þar er um svo mikla fjölbreytni að ræða að hér verður látið nægja að benda áhugasömum á að fara inn á ,,Rannsókna- og þróunarsetur Geisla í Gautavík (hampur)“ á Fésbókinni, hafi menn ekki gert það nú þegar. Mjög áhugavert og gefur fyrirheit um mikla kolefnisbindingu og atvinnumöguleika í framtíðinni. Vitandi um slíka valkosti og miklu fleiri fram yfir skurðamoldun Votlendissjóðs er vart hægt að verjast þeirri hugsun að líkja þessu fyrirbrigði við eins konar útfararstofu í því að jarðsetja metnaðarfull bjargráð, sem byggja á lífskrafti en ekki feigðarflani. Í staðinn fyrir þessa einstefnu Votlendissjóðs með sitt ein- strengings lega ráð, hefði verið nær að stofna framsækinn félagsskap eða starfshóp um stórfellt átak til kolefn- isbindingar með því að græða landið í sínum víðasta skilningi og nýta til þess allt frá frjósömu framræslulandi og til uppgræðslu vangróinna heiðar- landa af ýmsum toga. Slíkt þarf að byggja á þekkingu í gegnum, reynslu og vísindi. Til þess höfum við gott og öflugt fagfólk og reynsliríka og ráða- góða bændur. Mikilvægast af öllu er þó að víðtæk samstaða náist um verkefnið og að stjórnvöld beri gæfu til að átta sig á málinu og sameinist í að ná árangi sem fyrst á þessum vettvangi. Tek undir eftirfarandi, sem Brynhildur Bjarnadóttir nefndi í bréfskrifum við undirritaðan: „Versta sviðsmyndin er að láta framræsta landið standa óhreyft.“ Þessum orðum geta flestir verið sammála. Mikilvægt er hins vegar að finna metnaðarfyllri og búmannlegri leiðir til að hemja allt skurðayfirklór. Þórarinn Lárusson Fosshálsi 1, Reykjavík - 575-6071 | Ormsvelli 4, Hvolsvelli - 575-6099 Búvörur SS | www.buvorur.is Orkurík og lystug kjarnfóðurblanda fyrir hross í mikilli þjálfun. Gefur keppnis- og kynbótahrossum þá aukaorku sem þau þurfa. Fitan í fóðrinu eykur úthald og dregur úr myndun mjólkursýru. Inniheldur ekki hafra. EQUSANA POWER FLAKES Hvað gæti verið sameiginlegt með Votlendissjóði og útfararstofu? Þórarinn Lárusson. Árangursrík uppgræðsla á annars illa gróðursnauðri Grásteinsheiði við Húsavík. Mynd / Skógræktin
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.