Bændablaðið - 25.03.2021, Page 43

Bændablaðið - 25.03.2021, Page 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 2021 43 Í Bændablaðinu þann 11. mars sl. var fjallað um skýrslu dr. Hólmfríðar Sveinsdóttur um til- raunaverkefni um heima slátrun haustið 2020. Markmið verk- efnisins var að leita leiða til þess að auðvelda bændum að slátra sauðfé heima til markaðssetningar þannig að uppfyllt væru skilyrði regluverks um matvælaöryggi og gætt væri að dýravelferð og dýraheilbrigði. Lagt var upp með að afurðir af gripum sem slátrað væri í tilraunaverkefninu færu ekki á markað. Undirrituð telja nauðsynlegt að rýna nánar í skýrsluna og skoða hvernig tekist hefði að uppfylla sett skilyrði. Alls tóku 25 bæir þátt í verkefn- inu. Á 11 bæjum fór heilbrigðis- skoðun dýralækna fram á staðnum en á 14 bæjum með rafrænum hætti. Í athugasemdum dýralækna vegna heilbrigðisskoðunar kom í ljós að bæði var verulegur skortur á þekk- ingu bænda varðandi framkvæmd verkefnisins og að meiri þekkingar er þörf, bæði um aðbúnað og vinnu- brögð. Sama gildir um þekkingu á reglugerð nr. 856/2016 um lítil mat- vælafyrirtæki og hefðbundin mat- væli en markmið reglugerðarinnar er að auðvelda sláturhúsum og litlum matvælafyrirtækjum að uppfylla kröfur í hollustuhátta- og eftirlits- reglugerðum. Ekki kemur fram í skýrslunni hvers vegna þátttakendur höfðu ekki kynnt sér reglugerðina. Einnig kemur fram að skortur hafi verið á lágmarks hreinlætisaðstöðu í nokkrum tilfellum og einnig er bent á hættu af jarðvegsmengun (lister- íu). Aðrar sjúkdómsvaldandi örverur eins og E. coli (STEC), Salmonella og Clostridium geta borist með kjöt- afurðum í fólk. Því miður bendir allt til að E. coli (STEC) bakterían sé hluti af örveruflóru íslenskra naut- gripa og sauðfjár og því full ástæða til að vanda vinnubrögð í slátrun og kjötvinnslu. Í niðurstöðum dýralækna kemur fram að ekki náðist að ljúka heilbrigðis skoðun á fullnægjandi hátt með rafrænni heilbrigðisskoðun á neinum bæ. Helstu ástæður voru að dýralæknir taldi að ekki væri hægt að fullvissa sig um fullnægj- andi skoðun á eitlum. Einnig hafi verið erfitt að meta hvort hreinlæti við meðferð afurða hefði verið gætt, þar sem myndskeið og myndir hafi ekki verið af þeim gæðum að hægt væri að meta t.d. hár á skrokkum. Að meðaltali tók það dýralækninn rúmlega hálftíma á lamb að fram- kvæma rafræna heilbrigðisskoðun og rita skýrslu. Því má ljóst vera að þessi aðferð við heilbrigðisskoðun gekk ekki upp og er vonandi út úr myndinni. Það var sjálfsagt að reyna hana, en niðurstaðan kemur ekki á óvart. Hvað varðar velferð sláturdýra þá voru sumir bændur ekki meðvitaðir um það stress sem getur skapast hjá dýrum þegar þeim er lógað. Einnig hafi verið erfitt að dæma af myndum eða myndskeiðum hvort deyfing var nægjanleg við blóðgun þar sem erfitt reyndist að greina viðbrögð í auga (Corneal-reflex) eða andardrátt. Ekki kemur fram hvort velferð hafi verið sinnt og þá hvernig. Annað Ekki kom fram í skýrslunni, hvernig staðið var að förgun úrgangs og áhættuvefja. Mikilvægt er að rétt sé að þessu staðið þótt kostnaður geti verið umtalsverður. Dýralæknar höfðu ekki eftirlit með sýnatökum eða kælingu á kjöti. Lagafyrirmæli Greinarhöfundar hafa áður fjallað um heimaslátrun, td. í Bbl. 1. nóv. 2018, en þar er m.a. fjallað um lög og reglur sem um þetta gilda og þær fjölmörgu hættur sem neytendum getur stafað af því að kaupa heima- slátrað kjöt á frjálsum markaði. Það hefur alltaf verið skoðun undirrit- aðra að lagafyrirmæli séu afar skýr og heimild til heimaslátrunar mjög þröng, sbr. lok 5. greinar laga um slátrun nr. 96/1997. Aðeins eigandi lögbýlis má slátra sínu eigin búfé heima á sjálfu lögbýlinu og afurð- anna má aðeins neyta á bænum. Það sé því óheimilt að selja þessar afurðir eða dreifa þeim á annan hátt frá lög- býlinu, svo sem til gjafa, vinnslu, söltunar eða frystingar. Að því tilskildu að dýravelferð sé í heiðri höfð, förgun úrgangs sé með löglegum hætti og afurðanna sé einungis neytt heima á bænum er ekkert við heimaslátrun að athuga. Aðrir og betri möguleikar í stöðunni Rétt er í þessu sambandi að vekja sérstaka athygli á áðurnefndri reglu- gerð nr. 856/2016. Reglu gerðin var sett með stoð í þremur lögum, um matvæli, um dýrasjúkdóma og um velferð dýra og einnig eru ákvæðin í samræmi við Evrópureglugerðir þar að lútandi, enda gildir sama matvælalöggjöf á öllu EES svæð- inu. Markmið með setningu reglu- gerðarinnar var m.a. að auðvelda bændum að koma sér upp litlum sláturhúsum og matvælafyrir- tækjum, þar sem hvergi væri slegið af lágmarks kröfum um dýravelferð, matvælaöryggi, neytendavernd og förgun úrgangs. Þótt góður vilji sé hjá sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra til að styðja við sauðfjárbændur í erfiðri fjárhagsstöðu þeirra, gæti verið heillavænlegra að styðja við upp- byggingu og rekstur lítilla sláturhúsa sem uppfylltu ofangreinda reglu- gerð, sbr. sláturhúsið í Borgarnesi og í Seglbúðum í Skaftárhreppi. Flutningar sláturfjár yrðu styttri og bændur gætu sjálfir unnið við slík hús. Þónokkrir bændur hafa komið sér upp viðurkenndri vinnsluað- stöðu, fá sitt kjöt til baka frá viður- kenndu sláturhúsi og vinna úr þeim afurðir til sölu beint frá býli. Heimaslátrun getur líka verið óæskileg út frá markaðssjónar- miðum, samanber framsýna yfir- lýsingu þv. framkvæmdastjóra LS sem birtist í grein um þetta efni í Bændablaðinu 16. okt. 2001: „Landssamtök sauðfjár­ bænda taka undir með yfirdýra­ læknisembættinu og vilja einnig benda á það að heimaslátrun getur aldrei uppfyllt sömu kröfur og eftirlit með sláturafurðum eins og tíðkast í sláturhúsum. Þar að leiðandi býður heimaslátrun uppá stóraukna hættu á alls konar sýkingum í kjöti sem geta haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir kindakjötsmarkaðinn í heild sinni. Það er ekki forsvaranlegt að nokkrir aðilar stefni afkomu sauð­ fjárbænda í hættu með slíku athæfi. Einnig er það fé sem slátrað er heima hvergi til á pappírum í formi birgða eða sölu sem gerir allt eftirlit með birgðum erfiðara og allt sölu­ og markaðsstarf ómarkvissara” Að undanförnu hefur dregið úr sölu á kindakjöti og offramboð er á lambakjötsmarkaðnum. Að okkar mati mun hugsanleg sala á heimaslátruðu kjöti ekki breyta afkomumöguleikum greinarinnar sem slíkrar. Möguleg matareitrun vegna neyslu á heimaslátruðu kjöti eða gölluð vara myndi gera erfiða stöðu sauðfjárbænda enn verri vegna áhrifa á sölu á öllu kinda- kjöti. Niðurstaða Undirrituð telja niðurstöðu verk­ efnisins þá að ekki sé nægilega tryggð velferð dýra eða heilnæmi afurðanna. Því hafi ekki verið sýnt fram á raunhæfa möguleika til markaðssetningar afurða af heima slátruðum gripum. Sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra kynnti nýlega Aðgerðar- áætlun til eflingar íslensks land- búnaðar og er það vel. Einn liður í áætluninni var átak til að ýta undir möguleika bænda til heimafram- leiðslu beint frá býli. Það er gríðarlega mikilvægt að við útfærslu þessa átaks sé hvergi slegið af lágmarkskröfum um dýra- velferð, matvælaöryggi og neytenda- vernd. Neytendur og skattgreiðendur eiga rétt á að fjármunir sem eyrna- merktir eru þessu verkefni séu nýttir samkvæmt þessum kröfum. Halldór Runólfsson, fv. yfir­ dýralæknir og skrifstofustjóri landbúnaðar­ og matvælamála í atvinnuvega­ og nýsköpunarráðuneytinu. Katrín Andrésdóttir, fv. héraðs­ dýralæknir, lýðheilsufræðingur og heilbrigðisfulltrúi. Tveggja punkta festing við dráttarvélina og hæð stillanleg með vökvatjakk. Stillanlegur hræristútur. Galvanisering er staðalbúnaður. Super 3000 - 10 fet / 3,05 m djúpar kr. 1.258.000 án vsk Super 3000 - 9 fet / 2,75 m djúpar kr. 1.210.000 án vsk Super 4800 - dæla/hræra 9 fet / 2,75m djúp kr. 1.524.000 án vsk 20 fet / 6,1m kr. 788.000 án vsk 25 fet / 7,6 m kr. 879.000 án vsk Haugdælur: Hrærur: Eigum haugdælur og hrærur frá NC til á lager Margverðlaunað fyrir nýsköpun og hönnun Norsk hönnun og framleiðsla í 65 ár. Áratuga reynsla á Íslandi. Getum útvegað Duun skádælur með skömmum fyrirvara Vesturhraun 3 // 210 Garðabær // 480 0000 Austurvegur 69 // 800 Selfoss // 480 0400 aflvelar.is // sala@aflvelar.is SAMFÉLAGSRÝNI Heimaslátrun, heilnæmi afurða og velferð dýra Halldór Runólfsson. Mynd / LBR Katrín Andrésdóttir. Mynd / Sigurður Bogi FÆRIBÖND RYÐFRÍ STÁLSMÍÐI JÁRN- SMÍÐI fyrir allan matvælaiðnað í öllum stærðum og gerðum Sérsmíðum úr hágæða efnum Hönnum og smíðum eftir þínum óskum. SÉRSMÍÐI OG FÆRI- BÖND PLAST SMÍÐI Fyrir matvæla- iðnaðinn. Hönnun, smíði, uppsetning og þjónusta. Við sérsmíðum lausn sem hentar þér! Hafðu samband í síma 587 1300 Miðhraun 2 • 210 Garðabær • Sími 587 1300 • kapp@kapp.is • www.kapp.is Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.