Bændablaðið - 25.03.2021, Page 51

Bændablaðið - 25.03.2021, Page 51
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 2021 51 Garðyrkjufélag Íslands var stofnað árið 1885 og fagnar 136 ára afmæli á þessu ári og er það með elstu félögum landsins. Helsti hvatamaður að stofnun félagsins var Hans Jakob George Schierbeck landlæknir og var hann formaður þess í átta ár. Schierbeck var einnig helsti hvatamaður að útgáfu Garðyrkjuritsins. Björk Þorleifsdóttir, ritstjóri Garðyrkjuritsins og verkefnastjóri fræðslu og miðlunar Grasagarðsins í Reykjavík, segir að fyrsta tölu­ blað ritsins hafi komið út árið 1895. „Ritið kom út á hverju ári til 1901 og flutti margs konar fróðleik um ræktun og garðyrkju en mest um matjurta­ rækt. Eftir það var hlé á útgáfunni til 1920 þegar það fór að koma aftur út og og samfleytt til 1934 að tveimur árum undan­ teknum, 1926 og 1931, en þau ár fengu félagar í Garðyrkjufélaginu bækurnar Hvannir og Rósir eftir Einar Helgason í staðinn. Aftur varð hlé á útgáfu ritsins frá 1935 til 1937 en það hefur komið samfellt út síðan þá.“ Björk segir að þrátt fyrir að hún hafi einungis stýrt útgáfu tveggja tölu­ blaða Garðyrkju ritsins sé starfið skemmtilegt og gefandi en á köflum stressandi líka, sérstaklega þegar líður að útgáfu og að það eru ekki allir búnir að skila greinum til birtingar. „Ég var í ritnefnd í nokkur ár áður en ég varð ritstjóri og vissi því að hverju ég gekk.“ Nauðsyn matjurtaræktar „Schierbeck landlæknir var áhuga­ maður um matjurtarækt og lagði mikla áherslu á að kenna fólki að rækta matjurtir, enda veitti ekki af þar sem skyrbjúgur og hörgulsjúk­ dómar voru algengir í landinu fyrr á tímum. Auk Schierbeck skrifuðu Árni Thorsteinsson landfógeti og Einar Helgason garðyrkjumaður og fleiri í fyrstu árgangana, sem hefur stundum verið kallað gamla garðyrkjuritið, auk þess sem þeir voru í stjórn félagsins.“ Hluti af Búnaðarfélagi Íslands Í upphafi tuttugustu aldar varð Garðyrkjufélagið hluti af Búnaðar­ félagi Íslands, eða eins og segir í Garðyrkjuritinu 1901: „Fundi hefur lengi eigi verið á komið í Garðyrkjufélaginu og bíður hann úr þessu búnaðarþingsins í sumar, kemur þá til álita, hvort Garðyrkjufélagið eigi að halda áfram, sem sérstakt félag, eða renna inn í Búnaðarfélag Íslands, sem þá tæki að sér allar skyldur. Hins íslenzka garðyrkjufélags.“ Garðyrkjufélagið var endur­ reist sem sjálfstætt félag 1918 og hefur starfað sem slíkt síðan þá. Auk Garðyrkjuritsins hefur Garðyrkjufélagið staðið fyrir útgáfu bóka um gróðurhúsaræktun, skrúð­ garðyrkju, matjurtarækt og sveppi. Fylgir tíðarandanum Björk segir að við skoðun sjáist að Garðyrkjuritið hefur fylgt tíðarand­ anum og umfang þess aukist. „Fyrstu árin er mikið fjallað um matjurtir og þar mætt ákveðinni þörf og auk þess að gefa út ritið flutti það inn fræ og tæki og svo var farið um landið með fræ og fólki kennd matjurtarækt. Samkvæmt fundargerð félagsins frá 6. ágúst 1897 voru til dæmis gerðar til­ raunir með „kálrapi í Berufirði, Eskifirði, Seyðisfirði, Vopnafirði og í Eyjafirði, en vegna íss, sem tálmaði för gufuskipsins í kringum landið í júní, hefði eigi getað orðið gjörð með það á Vestfjörðum, eins og til var ætlast.“ Í fyrstu árgöngunum er einnig talsvert um ræktun inni­ eða stofublóma eins pottaplöntur voru kallaðar á þeim tíma. Fyrstu árgangarnir voru í litlu broti en það hefur stækkað og síðufjöldinn aukist. Eftir að ritið fór að koma út aftur óx áhugi á ylrækt og ræktun í vermireitum. Það var fjallað um áburðargjöf og verkfæri en eftir því sem líður á tuttugustu öldina og í kjölfar aukins innflutnings á plöntum er farið að fjalla meira um skrúðgarða og skrautplöntur. Í fyrsta Garðyrkjuritinu eftir hrun, 2009, var umfjöllun um matjurtir og ræktun þeirra sérlega áberandi enda jókst áhugi almennings á matjurtaræktun gríðarlega í kjöl­ far hrunsins og það rit sýndi vel að Garðyrkjuritið er með puttann á púlsinum. Sama er uppi núna á tímum COVID­19 þegar fólk kemst ekki til útlanda að skoða fallega garða; mér sýnist 101. tölublaðið bera keim af því og höfundar vera að fjalla um nærumhverfi sitt. Ritið er með þykkara móti í ár, rúmlega 60 síður og með yfir 250 myndum, og mun stærra en það var í fyrra og greinilegt að fólki lá mikið á hjarta, og reyndar var það svo að þessu sinni að við fengum óvenju mikið af efni og eigum við nokkrar góðar greinar til góða fyrir næsta rit.“ Öflugt áhugamannafélag „Garðyrkjufélagið er öflugt áhugamannafélag og innan þess eru starfandi klúbbar áhugafólks um til dæmis rósir, matjurtir og sígræn­ ar plöntur svo dæmi séu nefnd og hvert um sig með virka starfsemi. Nýlega voru öllu tölublöð Garðyrkjuritsins frá 1939 til 2014 gerð aðgengileg á heimasíðu félags­ ins, gardurinn.is, auk nokkurra annarra rita sem félagið hefur gefið út og er það mikill akkur fyrir allt áhugafólk um garðyrkju. Frá upphafi hafa meðlimir í félaginu skrifað megnið af efninu í ritinu sjálfir og yfirleitt er um áhugafólk að ræða og svo eru auð­ vitað sérfræðingar inni á milli. Að sjálfsögðu eru sumir afkastameiri en aðrir og yfirleitt mikill eldmóður og ástríða í því sem höfundarnir eru að senda frá sér en hér er um fólk að ræða sem elskar að rækta,“ segir Björk Þorleifsdóttir, ritstjóri Garðyrkjuritsins. /VH BÆKUR BLÖÐ& MENNING Garðyrkjufélag Íslands gefur út 101. árgang Garðyrkjuritsins: Garðyrkjuritið hefur fylgt tíðarandanum Björk Þorleifsdóttir, ritstjóri Garðyrkjuritsins og verkefnastjóri fræðslu og miðlunar Grasagarðsins í Reykjavík. Mynd / HKr. Forsíða fyrsta árgangs garðyrkju­ ritsins 1885. Forsíða 101. tölublaðs Garðyrkju­ ritsins 2021. Myndin sýnir Polemon ium kiushianum, sem er af ætt jakobsstiga en hefur ekki enn fengið íslenskt heiti. Forsíður Garðyrkjuritsins gegnum árin. Hans Jakob George Schierbeck, landlæknir og einn af stofnendum Garðyrkjufélags Íslands og frum­ kvöðull að útgáfu Garðyrkju ritsins. Lágmynd gerð af Helga Gíslasyni. KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is LOFTPRESSUR Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI Gerðu kröfur - hafðu samband við Gunnar í síma 590 5135 og kynntu þér þína möguleika. Við bjóðum upp á allar stærðir og gerðir af Ingersoll Rand loftpressum. Mjög hjóðlátar og einfaldar í viðhaldi. Bjóðum upp á þjónustusamninga og leggjum mikla áherslu á að veita góða viðgerðar- og varahlutaþjónustu. Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 GRAFAGRINDUR GOTT ÚRVAL

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.