Bændablaðið - 25.03.2021, Síða 51
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 2021 51
Garðyrkjufélag Íslands var
stofnað árið 1885 og fagnar 136
ára afmæli á þessu ári og er
það með elstu félögum landsins.
Helsti hvatamaður að stofnun
félagsins var Hans Jakob George
Schierbeck landlæknir og var hann
formaður þess í átta ár. Schierbeck
var einnig helsti hvatamaður að
útgáfu Garðyrkjuritsins.
Björk Þorleifsdóttir, ritstjóri
Garðyrkjuritsins og verkefnastjóri
fræðslu og miðlunar Grasagarðsins
í Reykjavík, segir að fyrsta tölu
blað ritsins hafi komið út árið 1895.
„Ritið kom út á hverju ári til 1901
og flutti margs konar
fróðleik um ræktun
og garðyrkju en
mest um matjurta
rækt. Eftir það var
hlé á útgáfunni til
1920 þegar það fór að
koma aftur út og og
samfleytt til 1934 að
tveimur árum undan
teknum, 1926 og 1931,
en þau ár fengu félagar
í Garðyrkjufélaginu
bækurnar Hvannir
og Rósir eftir Einar
Helgason í staðinn.
Aftur varð hlé á útgáfu
ritsins frá 1935 til 1937
en það hefur komið
samfellt út síðan þá.“
Björk segir að þrátt
fyrir að hún hafi einungis
stýrt útgáfu tveggja tölu
blaða Garðyrkju ritsins
sé starfið skemmtilegt
og gefandi en á köflum
stressandi líka, sérstaklega
þegar líður að útgáfu og að það eru
ekki allir búnir að skila greinum til
birtingar.
„Ég var í ritnefnd í nokkur ár áður
en ég varð ritstjóri og vissi því að
hverju ég gekk.“
Nauðsyn matjurtaræktar
„Schierbeck landlæknir var áhuga
maður um matjurtarækt og lagði
mikla áherslu á að kenna fólki að
rækta matjurtir, enda veitti ekki af
þar sem skyrbjúgur og hörgulsjúk
dómar voru algengir í landinu fyrr
á tímum. Auk Schierbeck skrifuðu
Árni Thorsteinsson landfógeti og
Einar Helgason garðyrkjumaður
og fleiri í fyrstu árgangana, sem
hefur stundum verið kallað gamla
garðyrkjuritið, auk þess sem þeir
voru í stjórn félagsins.“
Hluti af Búnaðarfélagi Íslands
Í upphafi tuttugustu aldar varð
Garðyrkjufélagið hluti af Búnaðar
félagi Íslands, eða eins og segir í
Garðyrkjuritinu 1901:
„Fundi hefur lengi eigi verið á
komið í Garðyrkjufélaginu og bíður
hann úr þessu búnaðarþingsins í
sumar, kemur þá til álita, hvort
Garðyrkjufélagið eigi að halda
áfram, sem sérstakt félag, eða renna
inn í Búnaðarfélag Íslands, sem
þá tæki að sér allar skyldur. Hins
íslenzka garðyrkjufélags.“
Garðyrkjufélagið var endur
reist sem sjálfstætt félag 1918
og hefur starfað sem slíkt síðan
þá. Auk Garðyrkjuritsins hefur
Garðyrkjufélagið staðið fyrir útgáfu
bóka um gróðurhúsaræktun, skrúð
garðyrkju, matjurtarækt og sveppi.
Fylgir tíðarandanum
Björk segir að við skoðun sjáist að
Garðyrkjuritið hefur fylgt tíðarand
anum og umfang þess aukist.
„Fyrstu árin er mikið fjallað um
matjurtir og þar mætt ákveðinni
þörf og auk þess að gefa út ritið
flutti það inn fræ og tæki og svo var
farið um landið með fræ og fólki
kennd matjurtarækt. Samkvæmt
fundargerð félagsins frá 6. ágúst
1897 voru til dæmis gerðar til
raunir með „kálrapi í Berufirði,
Eskifirði, Seyðisfirði, Vopnafirði
og í Eyjafirði, en vegna íss, sem
tálmaði för gufuskipsins í kringum
landið í júní, hefði eigi getað orðið
gjörð með það á Vestfjörðum, eins
og til var ætlast.“
Í fyrstu árgöngunum er einnig
talsvert um ræktun inni eða
stofublóma eins pottaplöntur
voru kallaðar á þeim tíma. Fyrstu
árgangarnir voru í litlu broti en
það hefur stækkað og síðufjöldinn
aukist.
Eftir að ritið fór að koma út
aftur óx áhugi á ylrækt og ræktun
í vermireitum. Það var fjallað um
áburðargjöf og verkfæri en eftir
því sem líður á tuttugustu öldina
og í kjölfar aukins innflutnings á
plöntum er farið að fjalla meira
um skrúðgarða og skrautplöntur.
Í fyrsta Garðyrkjuritinu eftir hrun,
2009, var umfjöllun um matjurtir
og ræktun þeirra sérlega áberandi
enda jókst áhugi almennings á
matjurtaræktun gríðarlega í kjöl
far hrunsins og það rit sýndi vel
að Garðyrkjuritið er með puttann
á púlsinum.
Sama er uppi núna á tímum
COVID19 þegar fólk kemst ekki til
útlanda að skoða fallega garða; mér
sýnist 101. tölublaðið bera keim af
því og höfundar vera að fjalla um
nærumhverfi sitt.
Ritið er með þykkara móti í ár,
rúmlega 60 síður og með yfir 250
myndum, og mun stærra en það
var í fyrra og greinilegt að fólki lá
mikið á hjarta, og reyndar var það
svo að þessu sinni að við fengum
óvenju mikið af efni og eigum við
nokkrar góðar greinar til góða fyrir
næsta rit.“
Öflugt áhugamannafélag
„Garðyrkjufélagið er öflugt
áhugamannafélag og innan þess eru
starfandi klúbbar áhugafólks um til
dæmis rósir, matjurtir og sígræn
ar plöntur svo dæmi séu nefnd og
hvert um sig með virka starfsemi.
Nýlega voru öllu tölublöð
Garðyrkjuritsins frá 1939 til 2014
gerð aðgengileg á heimasíðu félags
ins, gardurinn.is, auk nokkurra
annarra rita sem félagið hefur gefið
út og er það mikill akkur fyrir allt
áhugafólk um garðyrkju.
Frá upphafi hafa meðlimir í
félaginu skrifað megnið af efninu
í ritinu sjálfir og yfirleitt er um
áhugafólk að ræða og svo eru auð
vitað sérfræðingar inni á milli. Að
sjálfsögðu eru sumir afkastameiri
en aðrir og yfirleitt mikill eldmóður
og ástríða í því sem höfundarnir
eru að senda frá sér en hér er um
fólk að ræða sem elskar að rækta,“
segir Björk Þorleifsdóttir, ritstjóri
Garðyrkjuritsins.
/VH
BÆKUR BLÖÐ& MENNING
Garðyrkjufélag Íslands gefur út 101. árgang Garðyrkjuritsins:
Garðyrkjuritið hefur fylgt tíðarandanum
Björk Þorleifsdóttir, ritstjóri Garðyrkjuritsins og verkefnastjóri fræðslu og
miðlunar Grasagarðsins í Reykjavík. Mynd / HKr.
Forsíða fyrsta árgangs garðyrkju
ritsins 1885.
Forsíða 101. tölublaðs Garðyrkju
ritsins 2021. Myndin sýnir Polemon ium
kiushianum, sem er af ætt jakobsstiga
en hefur ekki enn fengið íslenskt heiti.
Forsíður Garðyrkjuritsins gegnum árin.
Hans Jakob George Schierbeck,
landlæknir og einn af stofnendum
Garðyrkjufélags Íslands og frum
kvöðull að útgáfu Garðyrkju ritsins.
Lágmynd gerð af Helga Gíslasyni.
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
LOFTPRESSUR
Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI
Gerðu kröfur - hafðu samband við Gunnar
í síma 590 5135 og kynntu þér þína möguleika.
Við bjóðum upp á allar stærðir
og gerðir af Ingersoll Rand loftpressum.
Mjög hjóðlátar og einfaldar í viðhaldi.
Bjóðum upp á þjónustusamninga og leggjum mikla áherslu
á að veita góða viðgerðar- og varahlutaþjónustu.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
GRAFAGRINDUR
GOTT ÚRVAL