Bændablaðið - 25.03.2021, Qupperneq 52
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 202152
Undanfarin ár hefur Ráðgjafar
miðstöð landbúnaðarins unnið
að söfnun og úrvinnslu rekstrar
gagna frá sauðfjárbúum. Gagna
grunnurinn telur nú alls gögn frá
100 sauðfjárbúum árið 2019 en
síðasta sumar var gert átak í því
að fjölga þátttökubúum.
Í 15. tbl. Bændablaðsins árið
2020 var gerð grein fyrir helstu
niðurstöðum verkefnisins fyrir árið
2018 Í 3. og 4. tbl. Bændablaðsins
árið 2019 var gerð grein fyrir
niðurstöðum verkefnisins 2014-
2017 en í þessari grein ætlum við
að skoða niðurstöður fyrir 2019
og þróun lykiltalna yfir öll árin frá
2014.
Líkt og upplýsingarnar í töflu
1 gefa til kynna telur gagna-
safnið núna tæp 14% af heildar-
dilkakjötsframleiðslu ársins 2019.
Landfræðilega dreifast búin
þannig að á Vesturlandi eru 24 bú,
Vestfjörðum 14 bú, Norðurlandi
vestra 12 bú, Norðurlandi eystra 30
bú, Austurlandi 14 bú og Suðurlandi
6 bú.
Áhrif af afurðaverðslækkun
áranna 2016 og 2017 sjást vel í töflu
2 og enn er talsvert í að afurðaverði
ársins 2014 sé náð. Hins vegar sést
einnig að ásetningshlutfall hefur
lækkað samhliða hækkun opin-
berra greiðslna sem sýnir að búin
í þessu verkefni hafa keypt nokkuð
af greiðslumarki í upphafi árs 2019.
Rekstrarkostnaður hefur hækkað líkt
og framleiðslukostnaður dilkakjöts
gefur til kynna. Það er þó enn tals-
verður munur á afkomu búanna sem
taka þátt líkt og upplýsingar í töflu 3
sýna þegar munurinn á framlegð búa
í efsta og neðsta þriðjung er borinn
saman eftir árum.
Munurinn á framlegð búanna
í efsta og neðsta þriðjungi hefur
minnkað en verið nokkuð stöðugur
síðustu þrjú ár, þ.e. á milli 9.000 og
10.000 krónur. Á meðalbúinu skv.
töflu 1 sem hefur 500 kindur hefur
bú í efsta þriðjungi 5 milljón krónum
meira úr að moða til að greiða fastan
kostnað, laun og borga af lánum en
sambærilegt bú í neðsta þriðjungi.
Mynd 1 sýnir framleiðslukostnað
þátttökubúa árið 2019 eftir reiknuðum
afurðum og stærðarflokkun búa.
Afurðameiri búin hafa lægri
framleiðslukostnað reiknaðan á kíló
en þau afurðaminni. Þegar búunum
er skipt í þrjá stærðarflokka, þ.e. bú
með færri en 400 kindur, 401-600
kindur og fleiri en 600 kindur. Þá
er framleiðslukostnaður á stærstu
búunum árið 2019, 1.028 kr/kg, á
búunum með 401-600 kind er hann
1.149 kr/kg og á búum með færri
en 400 kindur er hann 1.227 kr/kg.
Þegar framleiðslukostnaður
er skoðaður eftir þriðjungum eru
búin í efsta þriðjungi með lægsta
kostnaðinn árið 2019 eða 983 kr/kg.
Á búum í miðjunni er hann 1.149
kr/kg og í neðsta þriðjungi er hann
1.284 kr/kg.
Líkt og mynd 1 sýnir er breyti-
leikinn einnig mikill innan stærðar-
flokka þannig sóknarfærin eru jafnt
hjá stærri búum og þeim sem minni
eru.
Áframhald verkefnis
Það eru víða tækifæri til að bæta
reksturinn á hverju búi fyrir sig en
engin ein lausn hentar öllum. Það er
oft gott að bera sig saman við aðra
og velta fyrir sér hvort hlutirnir
þurfi að vera með þeim hætti sem
þeir eru, ef dæmi sýna að önnur
sambærileg bú ná betri árangri með
minni tilkostnaði og meiri afurðum
en manns eigið bú.
Liður í góðri bústjórn er að vanda
utanumhald á öllum skráningum,
hvort sem það er í skýrsluhaldi
eða bókhaldi. Eftirtekt vakti við
úrvinnslu bókhaldsgagna að
sundurliðun þeirra var langbest hjá
þeim bændum sem færa bókhaldið
sitt að miklu leyti sjálfir og er
hér tilefni til að hvetja bændur til
dáða ásamt því að gera þá kröfu að
bókhaldið nýtist þeim sem stýritæki
í búrekstri, en ekki eingöngu til skila
á gögnum til ríkisskattstjóra.
Með góðu liðsinni þróunar-
fjármuna búgreinanna skv.
reglugerð um almennan stuðning
við landbúnað höfum við fengið
tækifæri til að halda þessu verkefni
áfram. Sauðfjárbændur er enn og
aftur boðið að ganga til liðs við
okkur í þessu mikilvæga verkefni.
Ávinningurinn af verkefninu er
margvíslegur en fyrst og fremst
er þetta eini gagnagrunnurinn sem
gefur raunverulega mynd af afkomu
sauðfjárbænda og jafnframt eini
gagnagrunnurinn sem gefur bændum
færi á að sjá hvernig þeir standa
rekstrarlega í samanburði við aðra
í sambærilegum rekstri. Verkefnið
er bændum að kostnaðarlausu og
framlag þróunarfjármuna gefur
okkur færi á að borga þátttakendum
fyrir gögnin sem við fáum til
úrvinnslu.
Við bjóðum nýja þátttakendur
velkomna um leið og við óskum
þess að núverandi þátttakendur
verði áfram með okkur í liði, það er
afar þýðingarmikið að fá að halda
samfellt utan um þróun í rekstri
þátttökubúanna, bæði fyrir þá
bændur og verkefnið í heild.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
HAUGHRÆRUR
Markaðsráð kindakjöts auglýsir eftir
umsóknum í sjóðinn.
Markaðsráð kindakjöts annast vörslu fjármuna
vegna verkefna sjóðsins á yfirstandandi ári og
óskar eftir umsóknum í sjóðinn.
Umsóknarfrestur er til 1. júní 2021.
Umsóknareyðublöð og reglur sjóðsins fást hjá
framkvæmdastjóra Markaðsráðs í netfanginu
haflidi@bondi.is.
MARKAÐSSJÓÐUR
SAUÐFJÁRAFURÐA
Afkomuvöktun sauðfjárræktar 2017–2019
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Eyjólfur Ingvi Bjarnason
ráðunautur, Búfjárræktar-
og þjónustusvið
eyjólfur@rml.is
María Svanþrúður Jónsdóttir
ráðunautur, Rekstrar-
og þjónustusvið
msj@rml.is
Lykiltölur úr rekstrarbókhaldi
Tafla 2 – Lykiltölur eftir árum – taka þarf tillit til fjölda búa sbr. töflu 1 við túlkun talna
2014 2015 2016 2017 2018 2019
Ásetningshlutfall 1,05 1,09 1,09 1,11 1,08 0,99
Framleiðslukostnaður kr/kg 1.097 1.123 1.055 1.018 1.032 1.133
Afurðatekjur kr/kind 14.947 14.088 13.376 9.779 10.215 11.575
Opinberar greiðslur kr/kind 11.678 11.668 11.835 13.397 12.513 14.340
Framlegð kr/kind 14.014 14.097 13.693 12.783 12.031 13.915
EBITDA kr/kind 8.081 8.287 7.807 7.155 6.023 7.436
Skýrsluhaldsgögnin 2019
Tafla 4 – Munur á meðaltali skýrsluhaldsniðurstaða
hjá þátttökubúum og búum í skýrsluhaldinu með
fleiri en 200 skýrslufærðar ær
Skýrsluhald
200 ær eða fleiri
Reiknuð kg fullorðnar ær 29,8 27,8
Fædd lömb fullorðnar 1,92 1,83
Til nytja fullorðnar 1,76 1,66
Reiknuð kg veturgamlar ær 13,1 11,2
Fædd lömb veturgamlar 1,1 0,94
Til nytja veturgamlar 0,8 0,69
Fallþungi 16,6 16,9
Gerð 9,4 9,1
Fita 6,2 6,2
Þátttökubú
Tafla 3 – Þróun framlegðar pr kind 2014-2019
Ár Efsti 1/3 Neðsti 1/3 Munur
2014 20.276 7.891 12.385
2015 19.447 8.953 10.494
2016 17.825 9.631 8.194
2017 17.264 7.653 9.611
2018 16.899 7.402 9.497
2019 18.759 8.858 9.901
Tafla 1 – Lykiltölur gagnasafns eftir árum
Ár Fjöldi búa Hlutfall framleiðslu
Innlagt dilkakjöt
kg/kind Fjöldi áa/bú
2014 56 7,10% 22,2 505,4
2015 63 7,70% 21,2 506,9
2016 64 7,90% 22,4 512,3
2017 95 11,70% 22,4 504,1
2018 99 12,70% 22,9 513,8
2019 100 13,80% 22,6 500,3
Gagnasafnið 2014-2019