Bændablaðið - 25.03.2021, Síða 62
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 202162
Sundlaugin í Lundi
Norðurþing auglýsir eftir rekstraraðila að
Sundlauginni í Lundi.
Norðurþing auglýsir eftir áhugasömum rekstraraðila að sundlauginni í
Lundi í Öxarfirði. Rekstrartímabil er frá 1. júní 2021– 31. ágúst 2021.
Sundlaugin skal rekin sem almenningslaug með þeim öryggiskröfum sem
gilda fyrir sundlaugarmannvirki. Fyrir frekari upplýsingar og/eða
umsóknareyðublöð hafið samband við íþrótta- og tómstundafulltrúa
Norðurþing, Kjartan Páll Þórarinsson kjartan@nordurthing.is
Umsóknum skal skilað fyrir kl. 8.00 þann 17. apríl 2021.
Vesturhrauni 3 • 210 Garðabær • s: 480 0000
Austurvegi 69 • 800 Selfossi • s: 480 0400
www.aflvelar.is • sala@aflvelar.is
VINNUR HEILAN VINNUDAG ÁN ÞESS AÐ HLAÐA
Rafhlöðudrifin lausn fyrir kröfuharða garðyrkjumenn,
verktaka og sveitafélög sem vilja taka græna skrefið
og vinna með aflmiklum tækjabúnaði sem slær
háværum bensíntækjum ekkert við í afköstum.
Einfalt í vinnslu því rafhlöðuna er hægt að tengja við
hekkklippu, sláttuorf, greinarsög, sláttuvél og blásara
og að auki er hægt að vinna fullan vinnudag án þess
að hlaða. 3 ára ábyrgð á rafhlöðum frá framleiðanda.
Hafið samband og fáið tilboð í lausn sem hentar
ykkar þörfum og leggið heyrnarhlífunum.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
DRIFSKÖFT
OG DRIFSKAFTAEFNI
STRÚKTÚR ehf | Bæjarflöt 9 | 112 Reykjavík | struktur@struktur.is | Sími: 588 6640
Nú á allt að seljast. Eigum þessar lengdir á lager.
Litað bárujárn
Þykkt: 0,60 mm
Breidd: 1045 mm
Klæðir: 988 mm
3.600 kr m² m/vsk.
40% afsláttur meðan birgðir endast
2.160 kr m² m/vsk
RAL 8012 Dumbrautt
Lengd: 6.700 mm
Lengd: 6.940 mm
RAL 9005 Svart
Lengd: 4.800 mm
Plata = 6,7 * 0,988 = 6,62 m2
Nánari upplýsingar hjá sölumönnum.
NYTJAR HAFSINS
Hrognkelsaveiðar hafnar á svæði A
Sjávarútvegsráðherra hefur birt
tvær reglugerðir sem varða grá-
sleppuveiðar. Annars vegar reglu-
gerð um hrognkelsaveiðar 2021 og
hins vegar reglugerð um breytingu
á reglugerð um nýtingu afla og
aukaafurða. Veiðar á svæð A eru
leyfðar frá 23. mars.
Reikna má með að ráðgjöf
Hafrannsóknastofnunar um leyfi-
legan heildarafla á vertíðinni verði
birt 31. mars.
Í reglugerðinni um veiðar segir
meðal annars að allar veiðar á grá-
sleppu í fiskveiðilandhelgi Íslands
séu óheimilar nema að fengnu sérs-
töku leyfi Fiskistofu.
Bátum með leyfi til veiða á
grásleppu er heimilt að veiða með
hrognkelsanetum. Bátum sem hafa
leyfi til veiða með krókaaflamarki
er óheimilt að stunda veiðar með
rauðmaganetum, nema að fengnu
sérstöku leyfi Fiskistofu.
Grásleppuveiðileyfi
Fiskistofu er heimilt að veita þeim
bátum leyfi til grásleppuveiða, sem
rétt áttu til slíkra leyfa á vertíðinni
1997, sbr. reglugerð nr. 58/1996,
eða leiða rétt sinn frá þeim bátum,
enda hafi þeir leyfi til veiða í at-
vinnuskyni, sbr. lög nr. 116/2006,
um stjórn fiskveiða.
Umsækjandi um leyfi skal
í umsókn greina hvenær hann
muni hefja grásleppuveiðar með
lagningu neta ásamt því að til-
greina fjölda hrognkelsaneta og
teinalengd nets. Hver bátur getur
einungis haft eitt grásleppuveiði-
leyfi á hverri grásleppuvertíð.
Veiðisvæði og veiðitímabil
Grásleppuveiðileyfi hvers báts skal
gefið út til 25 samfelldra daga og
skal bundið við ákveðið veiðisvæði
og veiðitímabil eins og hér greinir:
A. Faxaflói, frá línu réttvísandi
vestur frá Garðskagavita
64°04,90 N 022°41,40 V að
línu réttvísandi vestur frá
Dritvíkurtanga (-flögum)
64°45,00 N 023°55,30 V. Innan
veiðitímabilsins frá og með 23.
mars til og með 30. júní.
B. Breiðafjörður, svæði 1 frá línu
réttvísandi vestur frá
Dritvíkurtanga (-flögum)
64°45,00 N 023°55,30 V að
línu réttvísandi vestur frá
Bjargtöngum 65°30,20 N
024°32,10 V. Innan veiði-
tímabilsins frá og með
23. mars til og með 30.
júní. Breiðafjörður, svæði
2 innan línu sem dregin
er úr Krossnesvita vestan
Grundarfjarðar 64°58,30 N
023°21,40 V í Lambanes
vestan Vatnsfjarðar 65°29,30
N 023°12,60 V. Innan veiði-
tímabilsins frá og með 20. maí
til og með 12. ágúst.
C. Vestfirðir, frá línu réttvísandi
vestur frá Bjargtöngum
65°30,20 N 024°32,10 V að
línu réttvísandi norður frá Horni
66°27,40 N 022°24,30 V. Innan
veiðitímabilsins frá og með 23.
mars til og með 30. júní.
D. Húnaflói, frá línu réttvísandi
norður frá Horni 66°27,40 N
022°24,30 V að línu réttvísandi
norður frá Skagatá 66°07,20
N 020°05,90 V. Innan veiði-
tímabilsins frá og með 23. mars
til og með 30. júní.
E. Norðurland, frá línu réttvís andi
norður frá Skagatá 66°07,20 N
020°05,90 V að línu réttvísandi
austur frá Fonti á Langanesi
66°22,70 N 014°31,90 V. Innan
veiðitímabilsins frá og með 23.
mars til og með 30. júní.
F. Austurland, frá línu réttvísandi
austur frá Fonti á Langanesi
66°22,70 N 014°31,90 V
að línu réttvísandi austur
frá Hvítingum 64°23,90 N
014°28,00 V. Innan veiði-
tímabilsins frá og með 23. mars
til og með 30. júní.
G. Suðurland, frá línu réttvísandi
austur frá Hvítingum 64°23,90
N 014°28,00 V að línu rétt-
vísandi vestur frá Garðskagavita
64°04,90 N 022°41,40 V. Innan
veiðitímabilsins frá og með 23.
mars til og með 30. júní.
Óheimilt er að stunda veiðar með
rauðmaganetum frá 16. júní til 31.
desember. /VH
Grásleppuveiðileyfi hvers báts er
gefið út til 25 samfelldra daga og
skal bundið við ákveðið veiðisvæði
og veiðitímabil. Mynd / VH