Morgunblaðið - 25.02.2021, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 25.02.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2021 Jón Magnússon hæstarétt-arlögmaður skrifar á blog.is um félagana Róbert Spanó Mannrétt- indadómstólsforseta og Recep Tayyip Erdogan Tyrk- landsforseta: „Skömmu eftir að Erdogan nánast einræðisherra í Tyrklandi kvaddi Róbert Spanó for- seta Mannréttinda- dómstóls Evrópu með miklum gagn- kvæmum kærleika af beggja hálfu, skipaði hann félaga sinn og flokks- bróður rektor í helsta háskóla í Tyrklandi, BOUN sem stendur fyr- ir Bosporus University í Konst- antínópel nú Istanbul.    Fjölmargir stúdentar við skól-ann voru ósáttir við að flokks- líkamabarn úr flokki Erdogan yrði rektor við skólann og mótmæltu því kröftuglega, en þó frið- samlega. Erdogan hefur látið handtaka meir en 250 stúdenta vegna þessara mótmæla og ekki nóg með það. Húsleit hefur verið framkvæmd hjá mörgum þeirra og fjölskyldur þeirra teknar til spurn- inga og yfirheyrslu hjá lögreglu. Þannig er nú farið að í mannrétt- indaríkinu Tyrklandi.    En að sjálfsögðu hefur Erdoganvaðið fyrir neðan sig og segir að stúentarnir sem leyfðu sér að mótmæla, séu ekki mótmælendur heldur hryðjuverkamenn. Sé svo, þá eru þetta fyrstu mótmæli hryðjuverkafólks, sem fara frið- samlega fram dögum saman.    En skyldi Mannréttinda-dómstóllinn kaupa skýringu Erdogan eða hafa eitthvað um þetta mál að segja yfir höfuð?“ Róbert Spanó Mannréttindafröm- uður minnir á sig STAKSTEINAR Recep Tayyip Erdogan Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Að mati fiskifræðinga á Hafrann- sóknastofnun er ekki ástæða til að bregðast sérstaklega við fréttum af loðnugöngum í norðanverðum Faxa- flóa og í Skjálfanda og nálægt Grímsey. Birkir Bárðarson fiskifræðingur segir að við skoðun gagna frá Polar Amaroq telji þeir að innan við 100 þúsund tonn hafi verið í torfu í Faxa- flóa sem skipið sigldi yfir á mánudag. Þarna sé að öllum líkindum á ferð- inni fremsti hluti göngunnar, sem áður var mæld úti af Austfjörðum. Varðandi loðnufréttir að norðan þá hafi rannsóknaskipið Bjarni Sæ- mundsson orðið vart við loðnu á fyrr- nefndum slóðum, en ekki mikið magn. Nokkur loðnuskip voru að veiðum undan Þjórsárósum í gær, en stór hluti uppsjávarskipanna mun fara til loðnuveiða og hrognatöku eftir helgi. Fram kemur á heimasíðu Loðnu- vinnslunnar á Fáskrúðsfirði að Hof- fellið hafi á þriðjudag komið til hafn- ar með tæp 1.600 tonn af kolmunna. Aflinn fékkst vestur af Írlandi og segir á heimasíðunni að veiðiferðin hafi gengið vel, en veður geti verið vont á þessu svæði. Um 800 mílur eru af miðunum til Fáskrúðsfjarðar. Núna verður Hoffellið gert klárt til loðnuveiða. áij@mbl.is Ekki brugðist frekar við loðnufréttum  Innan við 100 þúsund tonn í Faxaflóa  Skip að veiðum undan Þjórsárósum Morgunblaðið/Börkur Kjartansson Á miðunum Jón Kjartansson að veiðum undan suðurströndinni. Hafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS), segir hugsanlegt að stofnunin muni árlega þurfa að meta óhagræði Íslands- pósts vegna al- þjónustubyrði og ákvarða framlag- ið út frá því. Þá að því gefnu að regluverkinu eða tilhögun alþjón- ustutilnefningar verði ekki að öðru leyti breytt. En PFS hefur ákvarðað að ÍSP skuli fá 509 milljónir króna vegna óhagræðis af alþjónustu árið 2020. Telja skilyrðin uppfyllt „Ríkið hefur tekið ákvörðun um að niðurgreiða póstþjónustu sam- kvæmt nánari útfærslu í póstlögum. Um það gildir ákveðið regluverk um ríkisstyrki. Það er ekki heimilt að veita fé til ríkisstyrkja úr ríkissjóði nema að uppfylltum skilyrðum. Við vorum að athuga hvort þau skilyrði hefðu verið uppfyllt og við teljum svo vera. En það ber að nefna að við erum ekki það stjórnvald sem fer með ákvarðanir um hvort ríkis- styrkur sé löglegur eða ólöglegur. Það er ESA sem fer með þá ákvörð- un,“ segir Hrafnkell. PFS hafi ritað bréf til fjármálaráðherra vegna þessarar ákvörðunar með afriti til samgönguráðherra. Kominn tími á endurskoðun „Í okkar aðferðafræði er byggt á bókhaldslegri aðgreiningu sem út- færir kostnaðargrunninn og við segj- um í ákvörðuninni að kominn sé tími á að endurskoða þennan kostnaðar- grunn. Ef sú endurskoðun leiðir til þess að kostnaður hafi ekki verið rétt færður þá kunni að koma til endur- greiðslna að einhverju leyti. Þetta eru hlutir sem þarf sífellt að endur- skoða,“ segir Hrafnkell. Rík ástæða sé til að gera það í þessu tilviki. Til dæmis sé póstmagn að dragast saman um 20% en pakka- magn að aukast. Þannig að innbyrðis hlutföllin í kostnaðarlíkaninu eru á fleygiferð,“ segir Hrafnkell. PFS stefni að því að ljúka endur- skoðun á líkaninu upp úr miðju ári. „Það gæti komið til endurgreiðslu eða ekki. Við vitum ekki hver nið- urstaðan verður.“ baldura@mbl.is Póstákvörðunin mögulega árleg  Forstjóri PFS bendir á fækkun bréfa Hrafnkell V. Gíslason Baðinnréttingar Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is. 2 0 0 0 — 2 0 2 0 Tímabundin opnunartími vegna Covid–19 Mán. – Föst. 10–17 Laugardaga 11–15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.