Morgunblaðið - 25.02.2021, Síða 11

Morgunblaðið - 25.02.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2021 Mörkin 6 - 108 Rvk. s:781-5100 Opið: 11-18 virka daga og 11-15 laugardaga. www.spennandi-fashion.is VOR 2021 ÞÆGINDI OG HÖNNUN Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Nýjar vörur Skipholti 29b • S. 551 4422 Skoðið laxdal.is TRAUS Í 80 ÁR NÝJAR VORVÖRUR FRÁSkoðið // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is NÝ SENDING Stjórn Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur (ÍMR) hefur sent for- manni skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur, Skúla Helgasyni, bréf þar sem mótmælt er áformum um svonefnt íslenskuver fyrir erlend börn í risi Vitastígsálmu Austurbæj- arskóla. Eins og fram kom á mbl.is í vik- unni hafa Hollvinnasamtök Austur- bæjarskóla haft húsnæðið til afnota fyrir skólamunasafn. Hollvinir hafa einnig mótmælt þessum áformum. Íbúasamtökin benda á að aðgengi að rýminu sé slæmt, flóttaleiðir langar og það standist ekki nútíma- kröfur um skólahúsnæði barna. „Skemmst er að minnast þess að árið 2010 kom upp eldur í risi skól- ans sem frístundamiðstöð hverfisins hafði þá til umráða og var þá hætt að nota það rými fyrir nemendur. Stjórn ÍMR vill benda á að Austur- bæjarskóli hefur yfir betra húsnæði að ráða þar sem aðgengi er gott og það stenst nútímakröfur, en það er Spennistöðin sem stendur sunnan við skólann. Austurbæjarskóli hefur þetta húsnæði til umráða kl. 8-14 virka daga en hefur lítið notað það frá árinu 2014 þegar Spennistöðin, félags og menningarmiðstöð mið- borgarinnar, var opnuð. Þá hefur Reykjavíkurborg einnig fengið Vörðuskóla til umráða og væri þar mögulegt framtíðarhúsnæði fyrir ís- lenskuver,“ segir í bréfi ÍMR. Vilja samtökin að hollvinir skólans fái áfram afnot af húsnæðinu undir skólamunasafnið. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Austurbæjarskóli Skólamunasafn- ið hefur verið í risi skólans. Skólamunasafnið hafi húsnæðið áfram  Íbúasamtök miðborgarinnar mótmæla íslenskuveri í risi Austurbæjarskóla Opnað hefur verið fyrir umsóknir í viðskiptahraðalinn Startup Super- Nova. Allt að tíu sprotafyrirtæki verða valin til þátttöku og mun hvert þeirra hljóta fjárstyrk að upphæð einni milljón króna. Einnig fá þau aðgang að vinnuað- stöðu og njóta leiðsagnar reyndra frumkvöðla, fjárfesta, stjórnenda og ráðgjafa, segir í fréttatilkynn- ingu. Hraðallinn fer nú fram í annað sinn en síðasta vor ákváðu Nova og Icelandic Startups að taka höndum saman og stuðla að stofnun nýrra fyrirtækja og fjölgun atvinnutæki- færa til að vinna á móti samdrætti í efnahagslífinu í kjölfar veirufarald- ursins. Stjórnendur Startup Super- Nova hafa fundið fyrir miklum áhuga á þátttöku í hraðlinum vegna bágs atvinnuástands og rekja það til aukins atvinnuleysis, m.a. á með- al sérfræðinga og millistjórnenda. GAN Ventures-sjóðurinn fjár- festir árlega í 15 sprotafyrir- tækjum sem fara í gegnum hraðla innan GAN. Sprotar Aðstandendur Startup Super- nova, viðskiptahraðals fyrir sprota. Tíu sprotafyrirtæki í viðskiptahraðli

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.