Morgunblaðið - 25.02.2021, Side 41

Morgunblaðið - 25.02.2021, Side 41
UMRÆÐAN 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2021 Meistarastykkin okkar þarfnast meistara. Munurinn felst í Gaggenau. Búðu til eigið meistaraverk með tækjunum okkar. Nýju gufuofnarnir og ofnalínan öll eru heill heimur fyrir sig og bíða eftir meistaratöktum þínum. Sérhver Gaggenau-vara hefur skýra hönnun, er gerð úr einstökum gæðaefnum og stendur sig eins og atvinnumennirnir gera kröfur um. Þannig hefur málum verið háttað allt frá 1683. gaggenau.com Við þurfum að setja í lög að öll opinber fyrirtæki opni bókhaldið sitt og lýsa með hvaða hætti það skuli gert. Nú eru liðin tæplega fimm ár frá því að fyrsti opinberi aðilinn opnaði bókhaldið sitt á Ís- landi og nægileg reynsla er því komin á þetta verklag. Lausnirnar eru til og við þurfum bara að inn- leiða þær. Undirbúningur opnunar Þegar opnað er á opinber gögn þarf að meta hvort gögnin gætu innihaldið eitthvað sem brýtur lög- bundinn trúnað, persónufrelsi eða önnur borgaraleg réttindi ein- staklinga. Stundum þarf því að breyta gögnum áður en þau eru birt. Þetta getur verið vandasamt verk og það þarf að gæta vel að öllum sjónarmiðum. Stundum þarf einnig að flokka gögnin með öðrum hætti en gert er í frumgögnunum til að tryggja að auðveldara sé að birta þau. Gæta þarf þess að slíkar breytingar á gögnum séu ekki mis- notaðar, t.d. notaðar til að fela gögn sem valdhafinn vill ekki að almenningur sjái. Gagnsæi breytinga Aðferðir við að undirbúa gögn til birtingar þurfa því að vera skjal- festar og gagnsæjar rétt eins og gögnin sjálf. Það er ekki nóg að segjast vera með gagnsæ gögn ef ekki er gagnsæi varðandi vinnslu gagnanna. Allar skilgreiningar um leyfilegar breytingar þurfa að vera skráðar og reglulega þarf að end- urmeta hvort nægilega góð ástæða sé fyrir því að breyta gögnunum á þann hátt sem gert er. Trúnaðarráð gagnsæis Best væri að einhvers konar trúnaðarráð gagnsæis, eða annar ábyrgur aðili, bæri ábyrgð á og fengi svigrúm til að meta þessa hluti og slíkt ráð fengi þá aukinn aðgang að gögnum. Trúnaðarráðið gæti þá skoðað og metið þau gögn sem ekki eru birt opinberlega vegna þessara skilgreininga um leyfilegar breytingar gagnanna. Trúnaðarráð ætti þá að staðfesta reglulega að gagnsæið virki. Gagnsæið leiðir til aðhalds og umbóta í opinberum rekstri Eins og þekkt er þá er nið- urstaða gagnavinnslu aldrei betri en gæði undirliggjandi gagna (gar- bage in, garbage out). Ef gögnin eru ekki færð inn rétt er ekki hægt að ætlast til þess að fá rétta niðurstöðu. Reynslan sýnir að þetta getur verið töluvert vanda- mál hjá opinberum aðilum. Gagnsæi gerir kröfu um að grunn- gögnin séu nákvæm og rétt. Auð- vitað á öll gagnavinnsla hjá op- inberum aðilum að vera nákvæm og rétt svona yfirhöfuð svo hægt sé að nýta gögnin rétt t.d. við ákvarðanatöku. Þetta er hins veg- ar vandamál víða og krafan um réttleika gagna er oft ekki lykil- krafa í starfseminni. Þegar gögn eru opnuð kemur oft í ljós að þau eru gölluð. Gagnsæið ætti því að geta leitt til aðhalds og umbóta í opinberum rekstri. Birtingarform gagnanna Hvernig birtum við svo gögnin almenn- ingi? Birtingarmynd gagnanna skiptir miklu máli ef almenn- ingur á að geta nýtt sér opin gögn. Hanna þarf birt- inguna með aðferðum notendamiðaðrar hönnunar. Að sjálf- sögðu á einnig að vera hægt að sækja beint undirliggjandi gögn svo hver sem er geti stemmt af birt- ingarmynd gagnanna og útbúið sínar eigin birtingarmyndir. Byrjum á að opna bókhald RÚV Við megum ekki slaka á kröfunni um aukið aðgengi að opinberum gögn- um. Við ættum að ganga lengra og setja í lög að gögn sem mega vera opin eigi að vera opin og aðgengi- leg. Af hverju er t.d. stofnun eins og RÚV ekki með opið bókhald? Rík- isfjölmiðill sem fer að hluta með fjórða valdið eins og stundum er sagt. Hjá RÚV væri einnig mik- ilvægt að sjá hvað hvert dagskrár- efni kostar í framleiðslu og hverjir auglýsa mest í fjölmiðlum RÚV. Ekki er nóg að sýna eingöngu ytri kostnað vegna dagskrárefnis held- ur þarf einnig að færa innri kostn- að á efnið, t.d. skv. aðferðum að- gerðatengdrar kostnaðarút- hlutunar (Activity Based Costing). Setjum í lög að opinberir aðilar opni bókhaldið sitt Eftir Ingimar Þór Friðriksson » Við þurfum að setja í lög að öll opinber fyrirtæki opni bókhaldið sitt og lýsa með hvaða hætti það skuli gert. Ingimar Þór Friðriksson Höfundur er með BS í tölvunarfræði og MBA-gráðu, er forstöðumaður upplýsingatæknideildar Kópavogs- bæjar, pírati og frambjóðandi í próf- kjöri Pírata í Reykjavík 2021. ingimarthor@gmail.com Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.