Morgunblaðið - 25.02.2021, Page 52
Ljósmynd/Sigurjón Pétursson
Víða um land má finna góðar göngu-
leiðir. Fjölmörg sveitarfélög hafa
unnið frábært starf í uppbyggingu
göngu- og útivistarsvæða og stikað
og merkt gönguleiðir í sinni byggð.
Eins hafa ferðafélög og einkaaðilar
lagt sitt af mörkum og komið að upp-
byggingu útivistarsvæða. Rann-
sóknir sýna að vel skipulögð og að-
gengileg útivistarsvæði eru
mikilvægur hluti af lífsgæðum íbúa.
Ferðafélag Íslands og Valtitor hafa
lengi átt samstarf og staðið fyrir upp-
setningu á gönguleiðaskiltum á fjöl-
förnum gönguleiðum bæði í byggð og
óbyggðum. Það þarf þó ekki alltaf að
leita langt yfir skammt og bestu
gönguferðirnar eru oft heiman frá og
í nærumhverfinu. Þegar ferðast er
um landið má finna góðar gönguleiðir
þar sem upphafsstaður er aðgengi-
legur í byggð eða við þéttbýli.
Álftanes og Bessastaðatjörn
Góður upphafs- og endastaður er
bílastæðið við Kasthúsatjörn. Gengið
er meðfram sjávarsíðunni og um-
hverfis Bessastaðatjörn. Hressandi
ganga um ósnortnar fjörur, með
seltuilm í lofti, sjávarnið í eyrum og
ekki spillir víðsýnið. Leiðin er rúm-
lega 6 km og gengið á stígum alla
leið.
Þrastaskógur
Í Þrastaskógi er fjöldi merktra að-
gengilegra göngustíga og vegalengd-
ir við allra hæfi. Lengsti stígurinn er
2,6 km en aðrar merktar leiðir eru
frá um 50 til tæplega 800 m langar og
víða eru leiktæki fyrir börn. Þrasta-
skógur er í einstaklega fallegu um-
hverfi við Sogið í um klukkustundar
akstursfjarlægð frá höfuðborg-
arsvæðinu, í eigu Ungmennafélags
Íslands.
Seltjarnarnes
Lagt á bílastæðinu við Gróttu og
gengið þar í fjörunni og síðan um-
hverfis golfvöll Seltjarnarness, út á
Búðagranda og Bakkagranda, að
Nestjörn og aftur að bílastæði.
Gönguleiðin liggur um friðsælt og
fallegt svæði við sjóinn. Gengið er um
malbiksstíga, fjöru og túngötur.
Leiðin er um 3,5 km.
Dimmuborgir við Mývatn
Dimmuborgir austan Mývatns
draga nafn sitt af einstökum hraun-
myndunum og þær eru friðlýst nátt-
úruvætti. Í Dimmuborgum eru vel
merktar gönguleiðir við allra hæfi og
þar má stunda náttúruskoðun á öll-
um tímum ársins. Lengsti stígurinn í
Dimmuborgum, Kirkjuhringur, er
u.þ.b. 2,3 km langur. Frá bílastæði í
Dimmuborgum er einnig hægt að
ganga á Hverfell/Hverfjall og njóta
þaðan útsýnis yfir Mývatnssveit.
Búrfell og Búrfellsgjá
Gangan hefst frá bílastæði við
Heiðmerkurveg, suðaustan við Vífils-
staðahlíð í Garðabæ. Þar er skilti sem
skýrir leiðina, hversu löng hún er og
helstu kennileiti. Gönguleiðin er um
3,6 km og mjög þægileg yfirferðar.
Þegar komið er á Búrfell er leiðin
greið ofan í gíginn. Síðan er gengin
sama leið til baka að bílastæði.
Haukafell austan
við Hornafjörð
Haukafell er mjög fjölskylduvænt
útivistarsvæði á Mýrum, austan við
Hornafjörð. Afleggjari frá þjóðvegi 1
er skammt sunnan við bæinn Við-
borðssel. Gönguleiðin er um 2,5 km
hringleið og best er að byrja ofan
tjaldsvæðis og ganga upp hlíðina
vestanverða, austur yfir heiðina við
Hálsdalsá og niður með henni. Fal-
legir fossar og útsýni yfir Fláajökul,
Kolgrafardal og Mýrar.
Glanni og Paradísarlaut
í Borgarfirði
Gönguferð að Glanna og í Para-
dísarlaut er ekki löng en afar
skemmtileg og náttúrufegurðin ein-
stök. Skammt sunnan við Bifröst er
beygt niður af þjóðvegi 1 í átt að
Norðurá. Gangan er um 2 km og
hefst á bílastæðinu við golfskálann.
Göngustígurinn er greinilegur og
vel við haldið og leiðin hentar öllu
göngufæru fólki. Fossinn Glanni í
Norðurá er einstök náttúrusmíð og
sagður vera dvalarstaður álfa og
dverga. Glanni merkir birta eða
skin.
Sandafell við Þingeyri
Sandafell er lítið fell fyrir ofan
Þingeyri (367 m) við Dýrafjörð.
Hægt er að ganga upp fellið frá Þing-
eyri eða frá þjóðveginum. Á toppnum
er útsýnisskífa með öllum helstu
kennileitum sem ber fyrir augu og
þaðan er einstakt útsýni. Hækkun er
um 170 m og gönguleiðin frá gamla
þjóðveginum er um það bil 3 km báð-
ar leiðir.
Ástjörn og Ásfjall,
Hafnarfirði
Gangan hefst við Haukahúsið á Ás-
völlum og er gengið vestan íþrótta-
svæðis niður af tengibrú stígsins sem
liggur umhverfis Ástjörn og að Ás-
fjalli. Á fjallinu er falleg, vel hlaðin
varða sem gaman er að príla á. Út-
sýni af Ásfjalli er stórbrotið þó fjallið
sé ekki hátt.
Frá Haukahúsi um Ásfjall og
Ástjörn eru um 3,9 km.
Æsustaðafjall og Reykjafell –
Mosfellsbær
Ofan við Mosfellsbæ leynist stutt
og skemmtileg gönguleið sem hentar
frábærlega sem fjölskylduganga eða
góðviðrisrölt eftir vinnu. Ekið er upp
Mosfellsdal og sveigt til hægri eftir
afleggjara merktum Hlaðgerðarkoti.
Fljótlega er síðan aftur beygt til
hægri inn að smáhýsabyggðinni í
Skammadal og ekið þar til komið er
að litlu bílastæði. Upphaf leiðarinnar
er stikuð og best er að byrja á að
ganga á Æsustaðafjall og þaðan yfir
á Reykjafellið, um 4,8 km hringleið.
Hafrafell og Reykjaborg
við Hafravatn
Fellið ofan Hafravatns er ýmist
nefnt Hafrahlíð (245 m) eða Hafrafell.
Þegar gengið er á Hafrafell er einnig
tilvalið að halda áfram og ganga á
Reykjaborg (286 m) við hlið Hafra-
fells. Fellin tvö eru ekki há eða brött
og því tilvalin fjölskylduganga. Gang-
an hefst á bílastæðinu við Hafrafells-
rétt eftir slóða í gegnum skógræktina.
Slóðinn skiptist fljótlega í tvo og
vinstri slóðinn valinn. Þegar komið er
á veginn er farið þvert yfir hann og
slóðanum fylgt á tind Hafrafells og
þaðan yfir á Reykjaborg. Hringurinn
um Hafrahlíð og Reykjaborg er um
7,8 km.
Heiðmörk
Heiðmörk er stærsta útivist-
arsvæðið á höfuðborgarsvæðinu og
eitt það vinsælasta. Þar finna allir
góða gönguleið við hæfi. Í gegnum
tíðina hafa ótal göngu- og reiðstígar
verið lagðir um svæðið og glæsileg
aðstaða byggð upp fyrir fjöl-
skyldufólk og aðra sem vilja gera sér
glaðan dag í skóginum. Í Heiðmörk
eru áhugaverðar jarðmyndanir, við-
kvæmt votlendi og lyngmói. Dýralíf
er afar fjölbreytt á þessum slóðum og
gildir þá einu hvort áhuginn beinist
að spendýrum, vatnalífverum eða
fuglum himinsins.
Páll Guðmundsson palli@fi.is
Tólf góðar
gönguleiðir
Víða um land má finna góðar gönguleiðir. Fjölmörg sveitarfélög hafa
unnið frábært starf í uppbyggingu göngu- og útivistarsvæða og stikað
og merkt gönguleiðir í sinni byggð. Eins hafa ferðafélög og einkaaðilar
lagt sitt af mörkum og komið að uppbyggingu útivistarsvæða.
Ferðafélag Íslands
Varðan á
Ásfjalli.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2021
Ferðalög á
MJÚKIR - LÉTTIR - INNANFÓTARSTUÐNINGUR
GO WALK ARCH FIT
Motion Breeze
Verð: 14.995.-
St. 36 - 41
Vnr. S -124404
Grateful
Verð: 14.995.-
St. 36 - 41
Vnr. S-124401
Iconic
Verð: 13.995.-
St. 41 - 47
Vnr. S-216118
Togpath
Verð: 14.995.-
Stærðir 41 - 47
Vnr. S-216121
SKECHERS
KRINGLAN-SMÁRAL D