Morgunblaðið - 25.02.2021, Síða 54

Morgunblaðið - 25.02.2021, Síða 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2021 EIN STÓR FJÖLSKYLDA Hver einasti meðlimur Colgate-fjölskyldunnar finnur tannbursta, tannkrem og aðrar tannhirðu- vörur við sitt hæfi.Velkomin í fjölskylduna! Kræsingar í boði Berglindar Það eru fáir jafn flinkir í veisluhöldum og Berglind Hreiðarsdóttir en hún heldur úti bloggsíðuni Gotterí og gersemar sem nýtur mikilla vinsælda. Berglind er jafn- framt höfundur bókanna Veislubókin og Saumaklúbburinn en þar leiðir hún les- endur í sannleikann um hvernig hægt er að halda veislu án þess að tapa glór- unni. Margir eru þessa dagana á fullu að skipuleggja fermingarveislur og því ekki úr vegi að leita í veislubrunn Berglindar. Hér getur að líta tvær uppskriftir; ann- ars vegar að köku sem er einstaklega bragðgóð og svo gotterí í hollari kantinum en ekki er úr vegi að bjóða upp á eitthvað sem ekki inniheldur sykur. 20-25 stykki 170 g Til hamingju-döðlur 50 g Til hamingju-kasjúhnetur 50 g Til hamingju-heslihnetur 50 g Til hamingju-möndlur 250 g Til hamingju-granóla ¼ tsk. salt 1 msk. bökunarkakó 2 tsk. vanilludropar 3 msk. hnetusmjör 4 msk. kókosolía 1. Byrjið á því að setja döðlur í matvinnsluvél og tætið vel niður. 2. Næst má setja hneturnar og tæta vel niður og síðan gran- óla. 3. Þegar blandan er orðin að kurli sem minnir á brauðmylsnu má bæta salti og bökunarkakó saman við og blanda vel. 4. Að lokum má bræða kókosolíuna og hella henni ásamt van- illudropum og hnetusmjöri saman við og blanda vel þar til blandan fer aðeins að klístrast saman. 5. Rúllið næst varlega í kúlur, um ein matskeið fyrir hverja, raðið á bakka og kælið. Hægt er að geyma kúlurnar í vel lokuðu íláti í kæli í um 2 vikur. Granólagott Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir Syndsamlega gott Sniðugt er að bjóða upp á veitingar sem eru líka í hollari kantinum. Granólagottið er vinsælt hjá ungum sem öldnum enda einstaklega bragðgott og bráðhollt í senn. Hér er á ferðinni undursamleg van- illukaka með saltkaramellu! Kara- mellukrem fer einstaklega vel með léttum vanillubotnunum og þessi var einstaklega góð. Ég sá köku skreytta á svipaðan hátt á Pinterest en þróaði mína eigin samsetningu hvað kökuna varðar og eins og svo oft áður kom vinkona mín Betty til bjargar. Kaka 1 x Betty Crocker-vanillukökuduft 1 x Royal-vanillubúðingur 4 egg 100 ml matarolía 200 ml vatn 1. Hitið ofninn í 160°C og hrærið saman egg, olíu og vatn. 2. Bætið kökuduftinu saman við og hrærið í nokkrar mínútur, þá má bæta búðingsduftinu við og blanda stutta stund til viðbótar. 3. Skiptið niður í 3 x 15 cm köku- form sem búið er að spreyja vel að innan með matarolíuspreyi. 4. Bakið í um 25 mínútur eða þar til þið sjáið að kantarnir losna örlítið frá forminu efst, kælið. Saltkaramella 360 g sykur 130 g smjör við stofuhita 120 ml rjómi 2 tsk. sjávarsalt 1. Hellið sykrinum á pönnu og hitið við háan hita þar til hann fer að kristallast, hrærið mjög reglulega. 2. Þegar hann byrjar að bráðna má lækka hitann í meðalháan og hræra áfram þar til sykurinn er upp- leystur. 3. Þá má bæta smjörinu á pönnuna og hræra vel og því næst rjómanum og hræra þar til samfelld karamella hefur myndast. Hér er saltinu síðan hrært saman við. 4. Takið af hitanum og hellið í skál, leyfið að kólna áður en notað með kreminu. Vanillukrem 180 g smjör við stofuhita 680 g flórsykur 2 tsk. vanillusykur 150 ml rjómi 1. Þeytið smjörið þar til létt og ljóst. 2. Bætið flórsykri, vanillusykri og rjóma saman við í nokkrum skömmtum. 3. Skafið vel niður á milli og hrærið þar til létt krem hefur myndast. Samsetning 1. Skerið aðeins ofan af öllum köku- botnunum og smyrjið um ½ cm af þykku lagi af smjörkremi ofan á neðsta botninn og því næst smjör- kremsvegg með hringlaga stút yst á botninn (þetta gert til þess að kara- mellan leki ekki út). Fyllið upp í með saltkaramellu. 2. Leggið botn númer 2 ofan á og endurtakið og lokið síðan með þriðja botninum og kælið kökuna í um 30 mínútur. 3. Hjúpið næst alla kökuna með þunnu lagi af smjörkremi og kælið aftur í um 10 mínútur. 4. Þá má setja lokaumferð af kremi á kökuna sem er um 1 cm þykkt smjörkremslag. Áður en þið sléttið úr kreminu má setja smá af kara- mellu hér og þar með skeið/hníf og draga með kreminu þegar það er sléttað með kökuspaða. Að lokum má strá smá grófu salti efst á kök- una og best er að geyma hana í kæli. Vanillukökuduftið frá Betty finnst mér virkilega ljúffengt og að gera kökupinna með því er himneskt, svona ef þið ætlið að fara út í frek- ari kökugerð en þessa hér! Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir Vanillukaka með saltkaramellu Einföld og góð Oft þarf ekki að vera flókið að gera geggjaða köku og það eru fáir flinkari í þeirri list en Berglind.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.