Morgunblaðið - 25.02.2021, Síða 56
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
- NÝ SENDING
S K Ó V E R S L U N
STEINAR WAAGE
21.995.-
ST. 36 - 42 / 3 LITIR
VRN. PIA-18201
21.995.-
ST. 36 - 42 / 3 LITIR
VRN. PIA-18201
19.995.-
ST. 36 - 42 / 4 LITIR
VRN. PIA-18246
19.995.-
ST. 36 - 42 / 4 LITIR
VRN. PIA-18246
16.995.-
ST. 36 - 42 / 4 LITIR
VRN. PIA-16935
16.995.-
ST. 36 - 42 / 4 LITIR
VRN. PIA-16935
18.995.-
ST. 36 - 42 / 3 LITIR
VRN. PIA-18227
18.995.-
ST. 36 - 42 / 3 LITIR
VRN. PIA-18227
R
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2021
„Jú, þetta er að vissu leyti rétt hjá
ykkur, það er alveg rosalega eftir-
spurn eftir köttum og ef við værum
með biðlista eftir fólki sem myndi
vilja kettlinga þá væri hann svona 2-
300 manns,“ segir Jóhanna.
Margir sem sækja um kött
Hún viðurkennir að um leið og
auglýst er eftir nýjum eigendum á
köttum frá þeim séu margir sem
sæki um.
„Það er bara úr mörgum að velja
og fólk er alveg virkilega reiðubúið
að taka að sér jafnvel erfiðari ketti
sem hafa fæðst úti og þess háttar,
það er alveg þannig,“ segir hún.
Aðspurð segir Jóhanna það virki-
lega gefandi að taka að sér villikött
og breyta honum í kelirófu.
„Mér finnst það, ég er náttúrlega
búin að sjá trekk í trekk dæmi um
það að kettir sem við höfum kannski
fengið inn til okkar og eru alveg
gjörsamlega villtir, slá til okkar og
klóra og eru alveg í árásarham – svo
erum við að vinna í þeim gagngert í
tvo, þrjá alveg upp í sex mánuði og
breytingin á þessum köttum er gíg-
antísk og hún er svakalega gefandi.
Þetta er eitthvað sem maður er bú-
inn að vinna að á hverjum einasta
degi í þetta langan tíma og svo allt í
einu kemur kötturinn úr skelinni og
labbar til þín og biður um knús.
Þetta er svo fallegt að það er
dásamlegt,“ segir hún.
Erfitt að kveðja kettina
Jóhanna segir það tregafulla en
fallega stund þegar kettirnir fá
framtíðarheimili.
„Þetta er tregafull stund en þetta
er bæði það að við erum að setja þá
á fullkomin heimili sem gleður okk-
ur rosalega mikið, en auðvitað er
líka erfitt að kveðja einhvern sem
maður er búinn að tengjast í þetta
marga mánuði,“ segir hún.
Samkvæmt reglugerð Reykjavík-
ur má fressköttur ekki vera úti
nema hann sé geldur og þeir kettir
sem fá heimili hjá Kattholti eru
geldir eða teknir úr sambandi. Því
hefur verið lítið um got undanfarið
en Jóhanna segir þær í Kattholti þó
vera búnar að vinna að þessu mark-
miði í mörg ár.
„Ef þú færð kött einhvers staðar
annars staðar frá og ákveður að
gelda hann ekki og hafa hann sem
innikött, þá er enginn sem getur
sagt neitt til um það. Við erum nátt-
úrlega búnar að vera að vinna að
þessu markmiði í mörg, mörg ár,
náttúrlega ekki að stuðla að katta-
skorti beint en við erum að minnka
þetta offramboð sem hefur verið
gegnum tíðina. Núna erum við
kannski komin á einhvern punkt þar
sem þarf að endurskoða þetta, ég
veit það ekki,“ segir hún.
Logi Bergmann velti þá upp
þeirri hugmynd hvort ekki væri
sniðugt að setja upp Tinder-síðu
fyrir ketti en sjálfur er hann mikill
kattaaðdáandi.
Jóhanna skýtur þá hugmynd ekki
í kaf enda segist Logi hafa fengið
margar verri hugmyndir en þessa.
Þá segir Jóhanna Covid klárlega
hafa haft áhrif á fjölda katta í at-
hvarfinu en undir venjulegum
kringumstæðum séu þær með um
tuttugu ketti þar en undanfarið hafi
þeir verið færri.
Viðtalið við Jóhönnu má
nálgast í heild sinni á K100.is.
Logi vill Tinder fyrir ketti
Jóhanna Ása Evensen, rekstrarstjóri Kattholts,
ræddi við þá Loga Bergmann og Sigga Gunnars
um það hvort starfsfólkið þar fyndi fyrir katta-
skorti í þjóðfélaginu.
Logi Bergmann Logi er mikill katta-
áhugamaður og vill hann endilega sjá
Tinder fyrir ketti verða að veruleika.
Litlikisi Köttur
Loga Bergmanns
og fjölskyldu.
Fjölskyldubingó mbl.is fer aftur af
stað í kvöld klukkan 19:00. Þar
færa þau Siggi Gunnars og Eva
Ruza fjölskyldum landsins bingó-
tölurnar beint heim í stofu.
Siggi segist aðspurður vera að
springa úr spenningi fyrir því að
fara aftur af stað með bingóið
enda sé hann eiginlega búinn að
vera á hálfgerðum bingóbömmer
síðan fyrsta þáttaröðin kláraðist
um áramótin.
„Við ætlum að halda í sömu
gleðina og einkenndi þættina fyrr
í vetur og gefa frekar í ef eitthvað
er. Ég vona að sem flestir verði
með okkur í kvöld og nái sér í
spjald tímanlega,“ segir hann.
Gestur þáttarins að þessu sinni
er söngvarinn Valdimar og með
honum verður Örn Eldjárn. Þá
verður furðu DJ-inn áfram í setti
og fullt af stórglæsilegum vinn-
ingum.
Bingóið verður að finna á for-
síðu mbl.is rétt fyrir klukkan
19:00 í kvöld en allar fyrirspurnir
má senda á bingo@mbl.is.
Fjölskyldubingó mbl.is
hefst aftur í kvöld
Valdimar og Örn Eldjárn
Koma fram í fyrsta bingó-
þætti ársins.