Morgunblaðið - 25.02.2021, Side 63

Morgunblaðið - 25.02.2021, Side 63
AF KVIKMYNDUM Gunnar Ragnarsson Heimildamyndin Hækkumrána (Guðjón Ragnarsson,2021) var frumsýnd á dög- unum í opinni dagskrá á Sjónvarpi Símans og er nú aðgengileg áskrif- endum stöðvarinnar. Myndin er framleidd af Sagafilm, í samstarfi við finnska framleiðslufyrirtækið Pysty- metsä Oy, og er m.a. styrkt af Kvik- myndamiðstöð Íslands og finnskum kvikmyndasjóðum. Hér er um nokk- uð metnaðarfulla afurð að ræða sem hefur hlotið mikið umtal í íslenskum fjölmiðlum. Ótvírætt hefur sýningar- réttur á myndinni reynst Símanum góð fjárfesting sem hefur skilað um- talsverðu áhorfi og áskriftum fyrir stöðina. Með tilkomu erlenda streymisveita leggja innlendar sjón- varpsstöðvar aukna áherslu á fram- leiðslu og dreifingu íslensks efnis og er það vel. Hækkum rána er heimildamynd með nokkuð hefðbundnu sniði sem samanstendur mestmegnis af venju- bundum einstaklingsviðtölum í bland við „raunveruleg“ atriði. Milli viðtala og myndefnisins er gjarnan gripið til skýringartexta til að greina frá framvindu mála en er það örlítið of- notað og hefði útkoman orðið list- rænni ef upplýsingum væri miðlað á myndrænan máta í ríkari mæli. Upp- hafsmyndskeiðið skipar stílíseruð hægmynd (e. slow-motion) af stúlk- um á körfuboltavelli en þung högg boltans á parkettinu óma í hljóðrás- inni. Myndirnar eru svarthvítar en keppnisbúningarnir, ásamt öðrum litlum smáatriðum, í lit. Andi skeiðs- ins er dramatískur og á að veita „svalt“ og fagmannlegt yfirbragð en álíka stemmur eru notaðar jafnt og þétt yfir gang verksins til að líma saman frásagnarlega þætti þess. Klippt er á svipmynd úr einni af loka- og meginsenum myndarinnar af stúlknaliði ÍR sem afþakkar Ís- landsmeistaraverðlaunin, í mót- mælaskyni við ákvörðun Körfuknatt- leikssambands Íslands um að neita þeim að etja kappi við karlkyns jafn- aldra sína. Að sýna strax í upphafi glefsu úr jafn veigamiklu atriði, líkt og um stiklu fyrir sjálfa myndina sé Sjón er sögu ríkari Umdeildur „Í grófum dráttum er Hækkum rána ögn einföld í trú sinni á málstað stelpnanna og Brynjars og litast af því, segir m.a. í pistli um heimildar- myndina Hækkum rána sem mikið hefur verið rætt um nýverið vegna aðferða þjálfarans Brynjars Karls Sigurðssonar sem hér sést með ÍR-stúlkum. að ræða, er örlítið einkennilegt en í takti við ríkjandi hefðir sjónvarps- þáttagerðar nútímans og undir- strikar sjónarhornið á atburðarásina sem réttindabaráttu stúlknanna. Sagan spannar árin 2015 til 2019, en megnið af myndefninu er frá árunum 2016-18. Í myndinni er fylgst með Brynjari Karli Sigurðs- syni körfuboltaþjálfara og stúlkna- liðum Stjörnunnar og ÍR undir hans stjórn. Brynjar Karl er umdeildur þjálfari með sérstaka aðferðafræði. Stúlkurnar sem hann þjálfar eru á aldrinum átta til tólf ára en hann hik- ar ekki við húðskamma þær ef hann sér ástæðu til. Yfirlýst markmið er að „valdefla“ stúlkurnar, gera þær að betri manneskjum, ekki bara leik- mönnum. Árangur inni á vellinum virðist þó fylgja með. Fyrst þjálfar Brynjar hjá Stjörnunni en skjótt skilur leiðir. Brynjar rær á önnur mið og tekur við samsvarandi flokki hjá ÍR og fljóta sautján stúlkur úr Garðabænum með. Hjá ÍR mótast stefnan enn frekar af metnaði Brynj- ars og stúlknanna og liðið vill keppa við karlkyns iðkendur á sama aldri, en fær í tvígang neitun frá yfirvöld- um sem gera ekki grein fyrir afstöðu sinni. Þar að auki fer liðið tvívegis á erlenda grundu og keppir m.a. við strákalið. Fléttan endar svo á áður- nefndum mótmælum stúlknanna á verðlaunapalli Íslandsmótsins og hörðum viðbrögðum við þeim en Brynjar er látinn taka pokann sinn og stofnar í framhaldinu nýtt lið, Aþenu (atburðir þessir rötuðu á sín- um tíma í fjölmiðla). Viðbrögð við myndinni hafa verið sterk og margir hafa séð hana (þó ekki allir sem leggja orð í belg). Umræðan snýst einna helst um þjálfunaraðferðir Brynjars – en Viðar Hall- dórsson, félagsfræðingur við Há- skóla Íslands, telur þær vera hluta af „afreksvæðingu“ í íþróttastarfi barna í pistli sínum „Helgar tilgang- urinn meðalið?“ á Kjarnanum. Hér eru kvikmyndalegir þættir verksins til umfjöllunar en óumflýjanlega fel- ur það um leið í sér afstöðu til efnis- ins. Viðtöl eru tekin við Brynjar sjálfan, eiginkonu hans, aðstoðar- þjálfara, ýmsa foreldra og nokkrar stúlkur, m.a. dóttur hans sem er í lið- inu. „Raunverulega“ myndefnið er nokkuð magnað og gefur mynd af ástríðufullum þjálfara sem aldrei er lognmolla kringum en upptökurnar eru af æfingum, mótum, foreldra- og liðsfundum. Í raun er myndin hlaðin dramatík frá upphafi til enda, tára- flóð streymir ekki síst á hvarma hinna fullorðnu – Brynjars, foreldra og aðstoðarþjálfara. Óumflýjanlegt er að hrífast með sannfæringu og út- geislun stúlknanna sem keppa við báknið er vill ekki breytingar. Í gagnrýni sinni talar Viðar um að heimildamyndin stilli „viðfangsefn- inu eingöngu upp sem verkefni um valdeflingu“ og taki þar með afstöðu og hittir þar með á áhugaverðan punkt. Hvað er sýnt og hvað ekki, um hvað er fjallað o.s.frv. – allir þættir kvikmyndagerðar fela í sér afstöðu þeirra sem að þeim standa gagnvart viðfangsefninu – í heim- ilda- sem og skálduðum myndum. Í grófum dráttum er Hækkum rána ögn einföld í trú sinni á málstað stelpnanna og Brynjars og litast af því. Þó er hún ekki einstrengingsleg á þann hátt að aðrar raddir heyrist ekki (foreldrar á foreldrafundum lýsa ónægju t.a.m.) og áhorfanda er gefin nógu ítarleg mynd af aðferðum Brynjars til að mynda sér sjálfstæða skoðun. Ekki má gleyma heimilda- gildi þess sem er fangað. Umræður sem verkið hefur vakið segja þó nokkuð til um mátt þess. Lesendur eru einarðarlega hvattir til að gefa Hækkum rána gaum en kvikmyndin er virkilega kraftmikil frumraun upprennandi leikstjóra. »Ekki má gleymaheimildagildi þess sem er fangað. Umræð- ur sem verkið hefur vakið segja þó nokkuð til um mátt þess. MENNING 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2021

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.