Morgunblaðið - 06.03.2021, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.03.2021, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2021 Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is Norræna siglir í dag frá Hirtshals áleiðs til Þórshafnar í Færeyjum og Seyðisfjarðar. Er þetta fyrsta ferðin eftir viðgerð og andlitslyftingu í skipasmíðastöð á Fjóni. „Skipið tekur hundrað farþegum meira og við getum veitt farþegun- um betri þjónustu og upplifun um borð,“ segir Linda Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Smyril Line á Ís- landi. Útlit farþegaferjunnar er breytt. 50 káetum var bætt við með því að byggja yfir níunda þilfarið. Þá var sett nýtt útsýniskaffihús og bar þar ofan á og telst það tíunda hæðin. Linda segir að þótt Norrænu hafi ávallt verið haldið vel við hafi verið kominn tími á andlitslyftingu. Skipt hafi verið um teppi og gluggatjöld og sums staðar skipt um húsgögn. Þá hafi verið settar upp sögulegar myndir frá Færeyjum og Íslandi. Loks nefnir hún að svítum hafi verið fjölgað þannig að fólk hafi meira val um gistingu og heitu pottunum vin- sælustu á efsta þilfari fjölgað. „Mér finnst þetta hafa heppnast vel í alla staði. Búið var að undirbúa breytingarnar vel og allar tímasetn- ingar og kostnaðaráætlanir hafa staðist. Við hlökkum til að taka á móti skipinu á Seyðisfirði. Við höld- um þó upp á tímamótin síðar, þegar meira losnar um samkomutakmark- anir,“ segir Linda. Norræna kemur til Seyðisfjarðar klukkan níu á þriðjudagsmorgun. Linda segir að einhverjir tugir far- þega eigi bókað með skipinu næstu vikur en segir að mikið sé spurt um siglingar til Færeyja og Íslands seinnihluta sumars og í haust. helgi@mbl.is Norræna siglir eftir andlitslyftingu  Ferjan tekur 100 farþegum meira og möguleikar skapast á betri þjónustu og upplifun farþega Ljósmynd/Smyril Line Nýtt útlit Siglt inn til Hirtshals. Byggt var yfir 50 nýjar káetur á níunda þilfari. Ofan á var sett útsýniskaffihús og bar í mynd brúar skips. Tíunda hæðin Einstakt útsýni er úr kaffihúsi og bar á efstu hæð skipsins. Færeyskur dans Sögulegar myndir frá Færeyjum og Íslandi eru uppi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.