Morgunblaðið - 06.03.2021, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2021
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is
Norræna siglir í dag frá Hirtshals
áleiðs til Þórshafnar í Færeyjum og
Seyðisfjarðar. Er þetta fyrsta ferðin
eftir viðgerð og andlitslyftingu í
skipasmíðastöð á Fjóni.
„Skipið tekur hundrað farþegum
meira og við getum veitt farþegun-
um betri þjónustu og upplifun um
borð,“ segir Linda Gunnlaugsdóttir,
framkvæmdastjóri Smyril Line á Ís-
landi.
Útlit farþegaferjunnar er breytt.
50 káetum var bætt við með því að
byggja yfir níunda þilfarið. Þá var
sett nýtt útsýniskaffihús og bar þar
ofan á og telst það tíunda hæðin.
Linda segir að þótt Norrænu hafi
ávallt verið haldið vel við hafi verið
kominn tími á andlitslyftingu. Skipt
hafi verið um teppi og gluggatjöld og
sums staðar skipt um húsgögn. Þá
hafi verið settar upp sögulegar
myndir frá Færeyjum og Íslandi.
Loks nefnir hún að svítum hafi verið
fjölgað þannig að fólk hafi meira val
um gistingu og heitu pottunum vin-
sælustu á efsta þilfari fjölgað.
„Mér finnst þetta hafa heppnast
vel í alla staði. Búið var að undirbúa
breytingarnar vel og allar tímasetn-
ingar og kostnaðaráætlanir hafa
staðist. Við hlökkum til að taka á
móti skipinu á Seyðisfirði. Við höld-
um þó upp á tímamótin síðar, þegar
meira losnar um samkomutakmark-
anir,“ segir Linda.
Norræna kemur til Seyðisfjarðar
klukkan níu á þriðjudagsmorgun.
Linda segir að einhverjir tugir far-
þega eigi bókað með skipinu næstu
vikur en segir að mikið sé spurt um
siglingar til Færeyja og Íslands
seinnihluta sumars og í haust.
helgi@mbl.is
Norræna siglir eftir andlitslyftingu
Ferjan tekur 100 farþegum meira og möguleikar skapast á betri þjónustu og upplifun farþega
Ljósmynd/Smyril Line
Nýtt útlit Siglt inn til Hirtshals. Byggt var yfir 50 nýjar káetur á níunda þilfari. Ofan á var sett útsýniskaffihús og bar í mynd brúar skips.
Tíunda hæðin Einstakt útsýni er úr kaffihúsi og bar á efstu hæð skipsins. Færeyskur dans Sögulegar myndir frá Færeyjum og Íslandi eru uppi.