Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Qupperneq 17
ara KR í öllum þremur leikjum lið-
anna á tímabilinu.
Þriðji flokkur, sem Guðjón I. Ei-
ríksson þjálfaði, var nálægt sæti í
úrslitum íslandsmótsins en gekk
síður í öðrum mótum.
Fyrsti landsliðsmaður félags-
ins, Axel Axelsson, þjálfaði 4. flokk
og mátti sjá nokkrar framfarir en
flokkurinn hlaut Middlesex
Wanderers-bikarinn.
Fjórir Þróttarar léku sinn fyrsta
A-landsleik á árinu. Voru það þeir:
Arsæll Kristjánsson, Guðmundur
Erlingsson, Kristján Jónsson og
Pétur Arnþórsson. Pétur lék ein-
nig með U-21 landsliðinu ásamt
Asgeiri Elíassyni, sem var annar
dór Jóhannsson léku í Unglinga-
landsliðinu.
Stjórn deildarinnar skipuðu:
Ómar Siggeirsson formaður, Guð-
mundur Vigfússon, Tryggvi E.
Geirsson, Eiríkur Þorláksson, Jón
H. Ólafsson, Valur Helgason og
Gunnar H. Jónsson.
1985
Kærumál varð öðru fremur
þess valdandi að Þróttur missti
sæti sitt í 1. deild. Hið svokallaða
"Jónsmál" varð til þess að leik-
menn jafnt sem stjórnendur liðs-
ins og deildarinnar vissu ekki vik-
um saman hver staða liðsins væri
í deildinni. Þrátt fyrir hetjulega
baráttu varð litli Þróttur að lúta í
lægra haldi fyrir stórveldinu í ves-
tri og er ekki laust við að enn lykti
illa af málinu fjórum árum síðar.
Ekki er þetta eina ástæða þess
að liðið féll. Jóhannes Eðvaldsson
sem ráðinn var þjálfari, stjórnaði
liðinu eins og um atvinnumenn
væri að ræða. Það gat ekki farið
nema á einn veg og var hann að
lokum látinn taka pokann sinn og
Theódór Guðmundsson fenginn
til að reyna að bjarga málunum, en
það var of seint og því fór sem fór.
Varalið flokksins, 1. flokkur,
var hinsvegar laus við alla spennu
og sigraði bæði á Reykjavíkur- og
Haustmótunum og voru það einu
mótasigrar félagsins á tímabilinu.
Annar flokkur féll aftur í B-riðil
á íslandsmótinu, enda höfðu
margir leikmenn flokksins flust
upp í 1. aldursflokk. Þjálfari var
Gunnar Ingvarsson eins og árið
inu.
Sjötti flokkur var í góðum
höndum Þorvaldar í. Þorvalds-
sonar. Var árangur flokksins mjög
góður þó hann skipti raunar
minnstu máli í þessum flokki leik-
gleðinnar og ánægjunnar yfir að
fá að vera með.
Arangur Eldri flokks var slakur
enda flokkurinn þjálfaralaus.
„Knattspyrnumaður ársins
1984" var kosinn Magnús Gunn-
arsson leikmaður 2. flokks, en
Leikmenn Þróttar í eldri flokki hita upp fyrir úrslitaleik fslandsmótsins 1988 gegn Í.B.K.
Leiknum laum meö jafntefli 1:1 og þurfti nýjan úrslitaleik sem Keflvíkingar unnu 3:2. Frá vinstri
sjást Haukur Nikulásson, Úlfar Samúelsson, Leifur Harðarson (liggjandi), Tryggvi Gunnarsson,
Jóhann Hreiðarsson og Haraldur Leifsson. Fádæma gott veöur var þennan dag.
Meistaraflokkur Þróttar 1989: Aftasta röð f.v. Þorsteinn Þórsteinsson, fvar Jósafatsson, Steinar
Helgason, Ásgeir Árnason, Magnús Jónatansson þjálfari, Daði Harðarson, Héðinn Svavarsson og
Haukur Magnússon. Miðröð f.v. Sverrir Pétursson, Guðjón Daníelsson, Nikulás Jónsson, Jónas
Hjartarsson. Fremsta röð f.v. Ásmundur Vilhelmsson, Rúnar Ragnarsson, Kári Ragnarsson,
Óskar Óskarsson, Úlfar Helgason, Sigurður Hallvarösson og Gunnar Christiansen. Fremstur
liggur blómamaðurinn Jóhann Hreiðarsson.
trúna virtist vanta í sumum leikj-
unum. Tölulega var flokkurinn
fyrir ofan meðallag.
Fimmti flokkur var mjög fá-
mennur til að byrja með og því
ærinn starfi hjá Stefáni Stefáns-
syni þjálfara að laða að drengi sem
vildu spreyta sig. Tókst honum
nokkuð vel það verk en flestir leik-
ir flokksins töpuðust og féll hann
m.a. niður í C-riðil á íslandsmót-
eldri leikmanna liðsins. Ingvi R.
Gunnarsson lékí Drengjalandslið-