Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Page 20

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Page 20
20 ÞROTTUR 40 ára „Það eru ekki miklir bógar sem hlaupa burtu um leið og þeim er sýnt stærm bein“ - rætt við Óskar Pétiirsson,fyrrumformann og heiðursfélaga í Þrótti Góðir og dyggir stuðnings- menn eru hverju íþróttafélagi nauðsynlegir. Stuðningur frá áhorfendum getur oft gert gæfumuninn og hvatningarhróp- in hafa oftar en ekki þjappað leik- mönnum saman og breytt gangi leikja. Þróttarliðið í knattspyrnu hefur ekki farið varhluta af þess- um stuðningi en því miður hefur nokkuð vantað upp á að menn styddu við bakið á strákunum þegar á móti hefur blásið. Það er eins og að velgengni sé forsenda þess að stuðningsmenn mæti á leiki. En líkt og önnur lið á Þróttur sína dyggu stuðningsmenn sem aldrei láta deigan síga. Þetta eru menn sem mæta á alla leiki og hafa það að leiðarljósi að enginn leikur er tapaður fyrr en dómarinn blæs til leiksloka. Einn af þessum hörðu stuðningsmönnum er Óskar Pét- ursson fyrrum formaður Þróttar. Óskar hefur helgað sig skátahreyf- ingunni og Þrótti og á meðan heilsan leyfir, mætir hann á völl- inn. Óskar sem nú er kominn á ní- ræðisaldur er öllum Þrótturum gott fordæmi og svo mikill er áhugi hans að hann lætur það ekki hamla för þótt hann þurfi að ganga við hækjur. Okkur þótti við hæfi að ræða við þennan íþrótta- og skátaleiðtoga en þess má geta að Óskar er elsti starfandi skátinn á íslandi. Óskar á senn 73 ára skátaafmæli en hann verður 83 ára í desember nk. í afmælisblaði Þróttar sem út kom í maí 1963 í tilefni af 15 ára afmæli félagsins er rætt við Óskar Pétursson og þar kemur fram hvernig það atvikaðist að hann gekk til liðs við Þrótt. Þetta var árið 1953 en Óskar vann þá í Vélsmiðj- unni Héðni. Vinnufélagar hans, þeir Haraldur Snorrason og Frið- rikBjarnason, rafvirki, komu þá að máli við hann og sögðu að Þrótt vantaði mann til þess að sitja í svo- kallaðri undirmótanefnd. Hvort það væri ekki í lagi að þeir fengju lánað nafn hans, það þyrfti hvort eð er ekkert að gera í nefndinni. Óskar lét tilleiðast og eftir það varð ekki aftur snúið. Óskar Pétursson fyrrv. formaöur Þróttar. Ári síðar vantaði mann til þess að vera fulltrúi hjá Knattspyrnu- ráði Reykjavíkur og loks kom þar að á aðalfundi Þróttar, sem hald- inn var í KR-heimilinu!, að Óskar tók við formennsku í félaginu. SKÁTARNIR ÁTTU FOR- GANGSRÉTTINN — Þetta var tilviljun en ég lét þess getið þegar ég gaf kost á mér sem formaður, að það væri með því skilyrði að skátahreyfingin hefði forgang. Ef skátarnir köll- uðu, þá yrði það að vera númer eitt, segir Óskar í samtali við Þrótt- arblaðið nú 36 árum eftir að hann gerðist Þróttari. Óskar tekur það fram að hann hafi aldrei séð eftir því að hafa gengið til liðs við Þrótt enda hafi þetta verið ógleymanleg ár. — Við höfðum aðstöðu í göml- um herbragga á Grímsstaðaholt- inu, sem stóð þar sem nú eru skúr- ar grásleppukarla. Á þessum árum var nú félagslíf hjá Þrótti! Þarna voru haldin skemmti- og spilakvöld sem voru rómuð um allan bæ. Þarna var oft múgur og margmenni og röð út úr dyrum. Þessi kvöld voru mikið sótt af fólki úr öðrum félögum og ég man sér- staklega eftir því að Framarar og Víkingar voru tíðir gestir og FH - ingar komu a.m.k. tvisvar sunnan úr Hafnarfirði, gagngert til þess að fara á skemmtikvöld hjá Þrótti. Þetta var talsvert ferðalag í þá daga en það sýnir e.t.v. best hvaða aðdráttarafl Þróttur og gamli Þróttarbragginn höfðu á þessum árum. Annað dæmi um það er að Siggi Sig. hjá Utvarpinu kom eitt sinn með hljóðupptökutæki á skemmtikvöld hjá okkur og skemmtuninni var síðar útvarpað. Að sögn Óskars voru það ekki síst Þróttarkonur sem áttu stóran hlut í þessum velheppnuðu Þrótt- arkvöldum. Kvennadeildin vann ómælt starf og hið sama má segja um þá sem gengust fyrir bridge- og skákkvöldum. Á þessi kvöld komu margir eldri menn sem síð- an gerðust virkir í félaginu og mynduðu þá „bakvarðarsveit" sem átti eftir að vinna mikið og gott starf fyrir Þrótt. Á GÖTUNNI í 14 ÁR Að sögn Óskars gekk alltaf mjög vel að samræma starfið fyrir Þrótt, því starfi sem hann gegndi hjá skátahreyfingunni. — Ég hafði mjög góða menn með mér hjá Þrótti og menn eins og Guðjón Oddsson, Jón Ásgeirs- son og Halldór Sigurðsson, sem stofnaði Þrótt ásamt Eyjólfi Jóns- syni, sundkappa, voru félaginu mikill styrkur, segir Óskar en hann upplýsir að auk mikils og blómlegs félagslífs hafi það senni- lega verið baráttan í fótboltanum sem honum er minnisstæðust frá þessum árum. — Við vorum ýmist uppi eða niðri í fótboltanum á þessum árum. Við náðum aldrei þeirri fót- festu sem þurfti, þrátt fyrir að eiga góða flokka inn á milli. Ég man

x

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára
https://timarit.is/publication/1577

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.