Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Síða 34
34
ÞROTTUR
var að miklu leyti greiddur af þeim
sjálfum, en Björg Björnsdóttir og
Gunnar Arnason skipulögðu dvöl
liðsins hér. Liðið lék 2 leiki, sigraði
„landsliðið" 3-2 en tapaði svo fyrir
styrktu liði Þróttar 1-3. Farið var í
skoðunarferð að Gullfossi, Geysi
og að Laugarvatni og brottfarar-
daginn fór hópurinn í bæinn og
keypti minjagripi og ullarvörur í
miklu magni því vetrarríki mun
geta orðið mjög mikið í Massachu-
setts.
Styrkur
Blakdeild Þróttar fékk úthlutun
úr styrktarsjóði íþróttaráðs
Reykjavíkur vegna góðrar
frammistöðu og þátttöku í Evr-
ópukeppni. Upphæðin kr. 40.000.-
kom sér ákaflega vel og bjargaði
fjárhag deildarinnar.
1983-1984
Blakmótiti
Ekki tókst að endurtaka
frammistöðu liðins keppnistíma-
bils en þrátt fyrir það var árangur-
inn ágætur.
Meistaraflokkur kvenna komst
ekki í úrslit í Haustmótinu og varð
í 2. sæti í Reykjavíkurmótinu. í 1.
deild íslandsmótsins varð liðið í 4.
sæti og féll út úr Bikarkepninni í
undanúrslitum. Þjálfari var Leifur
Harðarson.
4. flokkur kvenna tók nú í fyrsta
sinn þátt í móti. Þróttur 1 varð ís-
landsmeistari en Þróttur 2 varð í 3.
og neðsta sæti. Þjálfari var Gunnar
Arnason.
Meistaraflokkur karla varði
titla sína í Reykjavíkurmóti,
Haustmóti og íslandsmóti en tap-
aði úrslitaleik Bikarkeppninnar
gegn ÍS. Þjálfarar voru Valdemar
Jónasson og Guðmundur E. Páls-
son. Lið 2 tók aðeins þátt í Haust-
mótinu og hafnaði í 2. sæti í sínum
riðli.
2. flokkur karla varð í 2. sæti á
íslandsmótinu eftir tap fyrir KA í
aukaúrslitaleik. Fæstir liðsmanna
æfðu reglulega en liðsstjóri í flest-
um leikjum var Gunnar Arnason.
3. flokkur karla varð í 3. sæti í
Haustmóti og íslandsmóti en í 2.
sæti í Hraðmóti. Þjálfari var Lár-
entsínus H. Ágústsson.
4. flokkur karla náði frábærum
árangri. Þróttur 1 sigraði í Hrað-
móti og íslandsmóti og Þróttur 2
varð í 2. sæti í báðum mótunum.
Þjálfari var Gunnar Árnason.
Mótum fyrir öldunga fjölgaði
um helming frá því sem áður var.
Þróttur tók nú þátt í 4 mótum. í
HK-móti og Höfrungasnerru varð
liðið í 2. sæti en sigraði í móti Aft-
ureldingar og í 2. deild Öldunga-
mótsins.
Úrvalslið
Snjólaug Bjarnadóttir var eini
Þróttarinn í kvennalandsliðinu
sem lék 3 leiki í Færeyjum.
Með unglingalandsliði karla
léku Einar Hilmarsson og Ómar
Pálmason sína fyrstu landsleiki.
Auður F. Kjartansdóttir lék
með stúlknalandsliði og það voru
einnig hennar fyrstu landsleikir.
Blakmaður ársins
Lárentsínus Helgi Ágústsson
varð 4. Þróttarinn sem hlaut þenn-
an titil er hann var útnefndur
Blakmaður ársins 1983.
Meistaraflokkur karla hélt
áfram sigurgöngu sinni og sigraði
í öllum þremur mótum vetrarins,
þ.e. Reykjavíkurmóti, íslandsmóti
og Bikarkeppni og tapaði einungis
einum leik í 1. deildinni. Þjálfari
var Guðmundur E. Pálsson
Lið 2 tók þátt í keppni í 2. deild
íslandsmótsins og varð í 4. sæti.
Þjálfari var Guðmundur E. Páls-
son.
2. flokkur karla varð í 3. sæti í
Hraðmóti, sigraði í sínum riðli í
íslandsmótinu en hafnaði í 3. sæti
í úrslitakeppni íslandsmótsins.
Þjálfari var Gunnar Árnason.
3. flokkur karla tók aðeins þátt
í Hraðmótinu. Tvö lið kepptu við
tvö lið frá Þrótti Neskaupstað og
urðu Reykjavíkurliðin í 2. og 3.
sæti. Liðsstjóri var Gunnar Árna-
son en flokkurinn æfði ekki.
Öldungaflokkurinn sigraði í
HK-móti og Legómóti og varð í 2.
sæti í Höfrungasnerru. I 1. deild
Öldungamótsins hafnaði liðið í 4.
sæti af 5. Lið 2 varð í 5. og neðsta
sæti í Höfrungasnerrunni.
Úrvalslið
1984-1985
Blakmótin
Meistaraflokkur kvenna varð í
2. sæti í Reykjavíkurmóti, 4. sæti í
íslandsmótinu og féll úr Bikar-
keppninni í fyrsta leik. Þjálfari var
Guðmundur E. Pálsson.
Með karlalandsliðinu léku
Guðmundur E. Pálsson, Jón Árna-
son, Lárentsínus H. Ágústsson,
Leifur Harðarson, Samúel Örn Er-
lingsson og Sveinn B. Hreinsson.
Með úrvalsliði á Mön léku Jón
Árnason og Leifur Harðarson.
Með kvennalandsliðinu léku
Hulda Laxdal Hauksdóttir, Snjó-
laug E. Bjarnadóttir og Steina
Ólafsdóttir. Björg Björnsdóttir lék
Bikarmeistarar Þróttar 1978. Aftari röð frá vinstri: Jason fvarsson, Guðmundur E. Pálsson,
Sveinn Hreinsson, Jón Fr. Jóhannsson, Böðvar Helgi Sigurðsson, Magnús Óskarsson formaður
Þróttar. Fremri röð f.v. Matthi Eliasson sænskur þjálfari og leikmaður, Gunnar Árnason fyrirliöi,
Valdemar Jónasson og Benedikt Höskuldsson.