Verktækni - 2015, Page 9

Verktækni - 2015, Page 9
VERKTÆKNI / 9 Á Tæknidegi Tækni- og verkfræðideild- ar HR voru afhentar viðurkenningar TFÍ fyrir framúrskarandi lokaverkefni. Önundur Jónasson, formaður TFÍ, afhenti nemendum viðurkenningarnar. Þrjú verkefni hlutu viðurkenningu að þessu sinni. Haraldur Orri Björnsson, vél- og orku- tæknifræði. Hreinsipakkdós Jarðborana hf. Kristinn Hlíðar Grétarsson, byggingar- tæknifræði. TM-kerfi. Gólfbitakerfi með forspenntum bitum. Þorsteinn Pálsson, rafmagnstæknifræði. Framleiðsluupplýsingar fyrir mjólkurbænd- ur. Um verkefnin Hreinsipakkdós jarðborana hf. Markmið verkefnisins var að halda áfram þróun hreinsipakkdósar Jarðborana hf. Pakkdósin er notuð til þess að hægt sé að hreinsa fóðringar í háhitaborholum á meðan þær eru í fullum blæstri. TM-kerfi. Gólfbitakerfi með forspennt- um bitum. Verkefnið fjallar um hönnun á nýju kerfi við uppbyggingu steyptra Viðurkenningar TFÍ fyrir lokaverkefni milliplatna. Kerfið er hannað út frá hug- myndum „Beam and block“ gólfkerfa sem þekkjast víða erlendis. Framleiðsluupplýsingar fyrir mjólk- urbændur. Verkefnið fjallar um hönnun, Á myndinni eru Ari Kristinn Jónsson rektor HR, Önundur Jónasson, formaður TFÍ, Haraldur Orri Björnsson, móðir Kristins Hlíðars Grétarssonar sem tók við viðurkenningunni fyrir hans hönd, Þorsteinn Pálsson og Guðrún A. Sævarsdóttir, forseti Tækni- og verkfræðideildar HR. uppsetningu og prófun á búnaði til að veita mjólkurframleiðendum hagnýtar upplýs- ingar um framleiðslumagn búsins. Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja á Íslandi og í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. Við erum alþjóðlegt fyrirtæki og hjá okkur starfa um 4000 einstaklingar um allan heim. marel.is MAREL MENNTAFYRIRTÆKI ÁRSINS 2015

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.