Verktækni - 2015, Blaðsíða 11
VERKTÆKNI / 11
Dagur verkfræðinnar
Dagur verkfræðinnar var haldinn
í fyrsta sinn 10. apríl síðastliðinn
og þótti takast einstaklega vel
en rúmlega 200 manns sóttu
ráðstefnu á Hilton Nordica. Dagur
verkfræðinnar verður árviss
viðburður og er markmiðið
að kynna verkfræðina, störf
verkfræðinga og ekki síst efla
tengsl og samheldni meðal
íslenskra verkfræðinga.
Á ráðstefnunni voru spennandi og fjöl-
breyttir fyrirlestrar. Að þessu sinni var
athyglinni beint að viðfangsefnum verk-
fræðinga á tveimur sviðum. - Við verð-
mætasköpun og á sviði heilbrigðismála. Í
lok dags voru kynnt verkefni sprotafyrir-
tækja og ungra frumkvöðla á sviði verk-
fræði.
Í blaðagrein Kristins Andersen for-
manns VFÍ sem birtist í tilefni af Degi
verkfræðinnar segir hann meðal annars:
„Á undanförnum árum hafa nýjar verk-
fræðigreinar komið til sögunnar og með
þeim hefur verið lagður grunnur að nýjum
atvinnugreinum og þær styrktar sem fyrir
eru. Hvort sem horft er til hugbúnaðar-
iðnaðarins, hátækni í heilbrigðisþjónustu,
orkugreina, samgangna eða nýsköpunar
í atvinnulífinu. – Alls staðar koma verk-
fræðingar við sögu og nýta þar þekkingu
sína og reynslu.“
Áhugi fjölmiðla
Fjölmiðlar sýndu Degi verkfræðinnar
áhuga og birtu viðtöl við formann VFÍ og
fyrirlesara. Sérstaka athygli vakti fyrirlestur
um þrívíddarprentun við skurðaðgerðir og
verkefnið „Sound of vision“ sem er búnað-
ur fyrir blinda sem býr til sjón með hljóði
og titringi.
Glærur flestra fyrirlesaranna má nálgast
á vfi.is
Á Degi verkfræðinnar voru
þrír verkfræðingar sæmdir
heiðursmerki Verkfræðingafélags
Íslands. Þau eru Sigurður
Arnalds byggingarverkfræðingur,
Sigríður Ágústa Ásgrímsdóttir
rafmagnsverkfræðingur og Björn
Dagbjartsson efnaverkfræðingur.
Það er Merkisnefnd VFÍ sem útnefnir þá
einstaklinga sem eru sæmdir heiðursmerki
félagsins. Merkið má veita í viðurkenn-
ingarskyni fyrir vel unnin störf á sviði
verkfræði eða vísinda, fyrir framtak til efl-
ingar verkfræðingastéttinni í heild eða fyrir
félagsstörf í þágu verkfræðingastéttarinnar.
Heiðursveitingar VFÍ
Vigdís Finnbogadóttir er heiðursfélagi VFÍ.
Hér er hún með Pétri Stefánssyni
verkfræðingi og fyrrverandi formanni VFÍ.
Kristinn Andersen, formaður VFÍ setti Dag
verkfræðinnar
Fyrirlestur Paolo Gargiulo um þrívíddarprentun
við skurðaðgerðir vakti athygli. Hér er hann að
ná í upplýsingar fyrir fréttamann RUV.
Á myndinni eru Kristinn Andersen formaður VFÍ, Sigurður St. Arnalds, Sigríður Á. Ásgrímsdóttir,
Björn Dagbjartsson og Árni B. Björnsson, framkv.stjóri VFÍ.