Verktækni - 2015, Síða 19

Verktækni - 2015, Síða 19
VERKTÆKNI 2015/21 19 ritrýndar vísindagreinar sem þjóna ekki eða að litlu leyti ferðamönnum. Þetta á sérstaklega við veitur sem þjóna færri en 50 íbúum, en fyrir veitur sem þjóna 50­150 þá er munurinn ekki afgerandi. Fjallaskálar koma sérstaklega illa út úr samanburðinum, sérstaklega hvað varðar heildargerlafjölda, en þó er hlutfallsleg aukning E.coli ekki jafnmikil. Þessar niðurstöður ríma vel við athuganir á hvar vatnsbornir farald­ ar hafa orðið hér á landi en flestir þeirra hafa orðið hjá vatnsveitum sem þjóna ferðamönnum og sumarhúsagestum og allir hjá minni vatnsveitum (Briem, 2005; Atladóttir, 2006; Geirsdóttir, 2011; Gunnarsdottir o.fl., 2012; Gunnarsdottir o.fl. 2013). Almennt er talið að oftast séu það fleiri en einn þáttur sem fer úrskeiðis þegar slíkir faraldrar verða og hafa sumir þættir stundum verið í ólagi lengi (Hrudey o.fl. 2006). Einnig er þekkt að örveruástand sé lakara hjá minni veitum en þeim stærri víða í heiminum og talið að orsökin sé skortur á fjármögnun, starfsfólki og fræðslu (WHO, 1997; Hulsmann, 2005; WHO­EU, 2011). Beaudeau o.fl. (2010) komust að þeirri niður­ stöðu að E.coli yfir 20 í 100 ml er átta sinnum líklegra í vatnsveitum í Frakklandi sem þjóna færri en 100 íbúum en veitum sem þjóna 500 til 2000. Vatnsveitur með færri en 100 íbúa í Frakklandi eru flestar til fjalla og á vinsælum ferðamannastöðum. Pitkänen o.fl. (2011) komust að þeirri niðurstöðu að saurmengun væri mun algengari hjá vatnsveit­ um í Finnlandi sem þjónuðu færri en 250 manns en þeim stærri. Skýringin á því hversvegna örverur eru ennþá tíðari hjá vatnsveitum sem þjóna ferðamannastöðum en hjá öðrum í sama stærðarflokki gæti verið að þær fyrrnefndu eru á ýmsan hátt frábrugðnar öðrum vatns­ veitum; álag er mismunandi eftir árstíma, vinsælir ferðamannastaðir eru flestir í dreifbýli og stundum á mjög afskekktum stöðum þar sem afar takmörkuð þjónusta er til staðar, oft er óljóst hver ber ábyrgð á að fyrirbyggja mengun og grípa til nauðsynlegra aðgerða. Sumir ferða­ mannastaðanna fá til sín mikinn fjölda gesta á dag yfir sumartímann en mun færri yfir vetrartímann. Til dæmis hefur verið áætlað að yfir sumarið heimsæki 30­40 þúsund manns Hveravelli á Kili og um 100 þúsund manns Landmannalaugar (Þórólfsdóttir, 2012; Aradóttir, 2003). Um 70% erlendra ferðamanna fara Gullna hringinn eða um 650 þúsund manns á ári og þar gætu verið um nokkur þúsund manns á annasömum degi (Óladóttir, 2014). Fjöldi ferðamanna sem heimsækja Ísland hefur aukist mjög hratt á undanförnum árum eins og sjá má í árlegri samantekt Ferðamálastofu „Ferðaþjónusta Íslands í tölum“ (Óladóttir, 2014). Áætlaður fjöldi erlendra ferðamanna sem heimsóttu Íslands árið 2013 var um 900 þúsund manns og af þeim komu 92 þúsund með skemmtiferðaskip­ um. Um 88% Íslendinga ferðast um landið á ári hverju eða um 280 þúsund manns og margir dvelja í sumarhúsum, ýmist sínum eigin eða á vegum stéttarfélaga. Til að áætla aukið álag á vatnsveitur í dreifbýli frá ferðaþjónustu var miðað við samantekt Gössling o.fl. (2012) á vatnsnotkun í ferðaþjón­ ustu í 54 löndum og gögnum frá Ferðamálastofu (Óladóttir, 2014). Meðaldvalarlengd erlendra ferðamanna í þessum 54 löndum er 8,5 dagar samanborið við 10,4 dagar á Íslandi. Meðalvatnsnotkun er samkvæmt samantekt Gössling o.fl. (2012) 286 lítrar á hvern ferða­ mann á dag. Þar sem hátt hlutfall af ferðamennsku er til fjalla og á litlum gististöðum er notkunin 150 lítrar á ferðamann á dag en um 400 lítrar á dag á ferðamannastöðum við Miðjarðarhafið. Út frá þess­ um forsendum (150 l/dag; 900 þúsund ferðamenn; 10,4 daga) þá má áætla heildarvatnsnotkun erlendra ferðamanna á Íslandi yfir árið um 1,4 Mm3/ári samanborið við ríflega 23 Mm3/ári (200 l/dag; 320 þús­ und íbúar; 365 daga) fyrir búsetta Íslendinga. Þetta þýðir því að meðaltali er notkun ferðamanna um 6% af neysluvatni til heimilisnota sem er með því hæsta sem gerist í heiminum samkvæmt Gössling o.fl. (2012), en þar kemur fram að meðaltal landanna 54 er 0,58% og aðeins 5 lönd hafa hærra hlutfall en 6% (Máritíus, 20,2%; Kýpur, 17,4%; Malta, 11,9%; Barbados, 9,4%; Spánn, 6,3%). Aukning í árstíðarbundnu álagi í dreifbýli má meta með því að miða við gistinætur í júlí þegar ferðamannafjöldi er mestur og nota tölur um gistinætur frá Ferðamálastofu (Óladóttir, 2014). Í júlí 2013 eru gistinæturnar útlendinga 458 þúsund og Íslendinga 62 þús. Út frá gögnum Ferðamálastofu má gróflega áætla að 15­30% þessara nótta er eytt í húsnæði sem fær neysluvatn frá minni vatnsveitum. Til sam­ anburðar þá eru um 20 þúsund Íslendingar (6% af 320 þúsund) sem er þjónað af þessum sömu vatnsveitum, eða um 600 þúsund dvalar­ nætur á mánuði. Miðað við þessar forsendur eykst álagið á litlar vatnsveitur að meðaltali um 13­26% í júlí sem er umtalsvert og líklegt að aukningin sé mun meiri á sumum stöðum. Hönnun vatnsveitna með árstíðarbundnu álagi eins og tengist þjón­ ustu við ferðamenn er hægt að leysa með ýmsum hætti og fer það eftir aðstæðum á hverjum stað hvaða lausn hentar. Tæknilegar lausnir geta verið margskonar. Þar má nefna borholu sem hægt er tengja þegar ferðamannatímabilið hefst, aukadælu sem sett er af stað þegar álag eykst, hraðastýringu á dælur og aukið miðlunarrými. Þar sem stór eða allur hluti kerfisins er ónotaður utan ferðamannatímans er nauðsynlegt að hafa skýrar verklagsreglur þegar kerfið er tekið úr notkun og þegar það sett af stað aftur. Þar má nefna að yfirfara og skola kerfið vandlega áður en það er tekið í notkun. Nauðsynlegt er að taka sýni og mæla örverur a.m.k. við upphaf tímabilsins en varla nægjanlegt að gera það annað hvert ár eins og nú er gert. Stofnkostnaður, rekstur, og viðhald vatnsveitna á ferðamannastöð­ um getur verið umtalsverður og því þarf að finna leiðir til að kerfin verði sjálfbær er varðar kostnað. Á mörgum stöðum liggur nú þegar fyrir að bæta þurfi innviði, bæði hvað varðar neysluvatn, almennings­ salerni og fráveitur almennt. Opinberir eftirlitsaðilar þurfa að skil­ greina hvað er eftirlitsskyld ferðaþjónusta, setja upp reglubundið eft­ irlit, hvetja til innra eftirlits, og útbúa leiðbeiningar fyrir ferðaþjónustu­ aðila um vatns­ og fráveitumál, t.d. í formi gátlista. Samantekt Ferðaþjónusta er orðinn umfangsmikill á Íslandi og nota ferðamenn hátt hlutfall af íslensku neysluvatni til heimilisnota samanborið við flest önnur lönd. Fyrirliggjandi gögn reglubundins eftirlits gefa til kynna að gæði neysluvatns vatnsveitna á ferðamannastöðum á Íslandi séu talsvert lakari en á samsvarandi stöðum sem ekki þjónusta ferða­ menn í miklum mæli. Nauðsynlegt er fyrir opinbera aðila og þá sem bera ábyrgð á ferðamannastöðum að bregðast við með því að styrkja innviði, setja upp reglubundið eftirlit, og útbúa leiðbeiningar um hvernig best sé staðið að því að afhenda neysluvatn sem uppfyllir þarfir ferðamanna. Heimildir Aradóttir, B. (2003): Þolmörk innviða í Landmannalaugum. Í: Þolmörk ferða­ mennsku í Landmannalaugum. Bergþóra Aradóttir (ritstjóri), Akureyri, Ferðamálaráð Íslands, Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri og Ferðamálasetur Íslands, 9­24. Atladóttir, A. (2006). Outbreaks of Norovirus Infections in Two tourist Resorts in Iceland in the Summer of 2004. 5. Nordic Water Supply Conference 8­10 June 2006 in Reykjavik. Proceeding bls. 67­70. Bartram, J., Cotruvo, J., Exner, M., Fricker, C., Glasmacher, A. (2003). Heterotrophic Plate counts and Drinking­water Safety. The significance of HPCs for Water Quality and Human Health. IWA London. Beaudeau, P., Valdes, D., Mouly, D., Stempfelet, M. & Seux, R. (2010). Natural and technical factors in faecal contamination incidents of drinking water in small distribution networks, France, 2003­2004: a geographical study. J. Water Health 8(1):20­34. Briem, H. (2005). Nóróveirusýkingar yfir sumarmánuðina. Farsóttafréttir Júní 2005. European Council (1998). Directive 98/83/EC of 3 November 1998 on the quality of water intended for human consumption. Geirsdóttir, M. (2011). Óopinber listi yfir vatnsborna faraldra. Matís ohf. Gunnarsdottir, M.J., Gardarsson, S.M., Elliott, M., Sigmundsdottir, G., Bartram, J. (2012). Benefits of Water Safety Plans: Microbiology, Compliance, and

x

Verktækni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.