Verktækni - 2015, Side 51

Verktækni - 2015, Side 51
VERKTÆKNI 2015/20 51 TÆKNI- OG vísINdaGreINar Langur aðdragandi Segja má, að fyrsta áratuginn í starfsemi Flugleiða hafi megin áherslan verið lögð á að þrauka í harðnandi alþjóðlegri samkeppni og stöðuga glímu við hækkandi verð eldsneytis. Í N­Atlantshafsfluginu þurftu DC­8 þotur félagsins að keppa við nýjar og fullkomnari breiðþotur stóru flugfélaganna. Þar af leiddi, að sölumenn Boeing, Douglas og Lockheed reyndu helst að bjóða Flugleiðum að kaupa slíkar breið­ þotur. Sigurður Helgason eldri, sem gegndi einni af þremur forstjóra­ stöðum félagsins, lagði til haustið 1978 að Flugleiðir tækju nýlega McDonnell Douglas DC­10­30CF breiðþotu á kaupleigu, og féllst stjórn félagsins á þá tillögu. Þessi þota var með hámark leyfilegra sæta, samtals 380 og 10 (3+4+3) í hverri sætaröð, og þrengslin því skelfileg. Í upphaflegri hönnun gerðarinnar var gert ráð fyrir átta sætum í hverri röð (2+4+2). Eldhús hennar voru að mestu leyti í fraktrýminu, og tengd með lyftum við farþegarýmið. Flugleiðir hófu rekstur þotunnar í janúar 1979, fyrst með erlendum flugáhöfnum, en hún var hér á bandarískri skráningu, N1035. Þegar DC­10 breiðþota American Airlines fórst við Chicago 25. maí 1979 ákvað bandaríska flugmálastjórnin að kyrrsetja allar DC­10 þotur skráðar í Bandaríkjunum og jafnframt banna flug allra DC­10 í bandarísku loftrými. Banninu var ekki aflýst fyrr en seinni hluta júlí eftir að tilteknar brýnar lagfæringar höfðu verið gerðar á Grein þesssari er einkum ætlað að fjalla um heildarendurnýjun flugflota Flugleiða á aðeins þremur árum, frá maí 1989 til maí 1992. Í inngangi er þó fyrst vikið að þróun frá stofnun félagsins árið 1973 og í seinni hluta um síðari stefnumörkun. Fyrsti áfangi í sameiningu Flugfélags Íslands og Loftleiða fólst í samþykktum aðalfunda þeirra 28. júní 1973, sem leiddi til þess að félagið Flugleiðir hóf starfsemi sína 1. ágúst 1973. Það var í upphafi starfrækt sem eignarhaldsfélag gömlu flugfélaganna, sem áfram voru rekin hvort fyrir sig á grunni sinna flugrekstrarleyfa, og undir eigin nöfnum og merkjum. Í flugflota Flugfélags Íslands voru þá fjórar Fokker F27 Friendship skrúfuþotur, sem þjónuðu innanlandsfluginu og flugi til Færeyja og Grænlands, og tvær Boeing 727­100C þotur, sem sinntu Evrópufluginu. Allar sex flugvélarnar voru skrásettar hér í eigu félagsins. Í flugflota Loftleiða voru fjórar McDonnell Douglas DC­8 þotur, en aðeins ein þeirra, af gerðinni DC­8­55JT, var þá skrásett hér í eigu félagsins. Hinar þrjár voru bandarískar leiguþotur af gerðinni DC­8­63CF. Þróun flugflotamála Flugleiða fyrstu fimm árin fólst fyrst og fremst í því að hér voru skrásettar fleiri DC­8­63CF þotur, tvær af þeim í eigu Flugleiða, en hinar í eigu erlendra félaga. Einnig var vorið 1974 bætt við einni F27­700 skrúfuþotu, og hún skrásett hér sem eign Flugfélags Íslands. Dagleg stjórnun hins nýja félags var í höndum þriggja forstjóra, sem mynduðu svonefnda stjórnarnefnd, og þeim til aðstoðar fimm framkvæmdastjórar sviða. Í júlí 1978 lét Jóhannes Einarsson verkfræðingur af stöðu framkvæmdastjóra flugrekstrar­ og tæknisviðs og réð sig til Cargolux. Var ég ráðinn í hans stað, en hafði áður starfað í 18 ár sem framkvæmdastjóri flugöryggisþjónustu Flugmálastjórnar Íslands, og síðustu fimm árin einnig sem varaflugmálastjóri. ÁGRIP AbstRAct Heildarendurnýjun flugflota Flugleiða á þremur árum Fyrirspurnir: leifur@baro.is Leifur Magnússon rafmagnsverkfræðingur, fyrrverandi framkvæmdastjóri flugrekstrar- og tæknisviðs hjá Flugleiðum. Boeing 727­100 „Gullfaxi“ á Keflavíkurflugvelli 1977.

x

Verktækni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.