Verktækni - 2015, Qupperneq 59

Verktækni - 2015, Qupperneq 59
VERKTÆKNI 2015/20 59 TÆKNI- OG vísINdaGreINar Viðskiptavinir Mílu þ.e. fjarskiptafyrirtæki hafa undanfarin mánuð fengið tækifæri til að prófa vigrum með sínum viðskiptavinum og hafa þær prófanir gengið vel. Formleg gangsetning vigrunar á xDSL kerfum Mílu mun því verða í byrjun júní 2015. Önnur tækni, sem einnig er til þess fallin að auka hraða á xDSL tengingum nefnist bonding og hefur hún einnig verið prófuð samhliða Vigrunartækninni. Bonding gengur út á að í stað þess að ein lína (eitt par) sé notuð fyrir samband inn á heimili, eins og vaninn hefur verið, eru notaðar tvær línur/pör eða fleiri. Þessar línur eru svo „bundnar“ saman og mynda þá eina fjarskiptarás sem u.þ.b. tvöfaldar gagnahrað­ ann miðað við eina línu. Þessa tækni er einnig hægt að nota til að auka langdrægni frá götuskápum og símstöðvum miðað við núverandi gagnahraða sem i boði er. Þróunin á xDSL tækni heldur áfram og innan nokkura ára mun líta dagsins ljós svokölluð G.fast tækni en þessi tækni gefur möguleika á að fara með hraða á styttri koparlínum í allt að 1Gb/s. Það er því ljóst að koparlínur sem flutningsmiðill eiga mörg góð ár framundan. Mynd 2 sýnir þróunina. Ljósheimtaugar í nýjum hverfum Míla hefur markað sér stefnu um að leggja ljósheimtaugar í ný hverfi, í stað koparheimtauga. Ljósleiðarakerfi Mílu er svokallað GPON (e. Gigabit Passive Optical Network) sem er algengasta FTTH (e. Fibre To The Home) lausn símafyrirtækja í Evrópu. Í GPON er enginn virkur búnaður á leiðinni frá símstöð og til endanotanda. Einn ljósleiðara­ þráður liggur frá símstöð og í hjávirkan deili sem deilir svo ljósinu til allt að 128 notenda. GPON högun sparar því ljósleiðaraþræði og bilanatíðni er minni og afhendingaröryggi meira miðað við önnur FTTH kerfi. Í núverandi GPON kerfi er samnýttur gagnahraði 2,5 Gb/s til viðskiptavina og 1,2 Gb/s frá þeim. Auðvelt er að uppfæra GPON í 10 Gb/s og jafnvel meira í framtíðinni. Almenn notkun Þjónustuaðilar sem að selja VDSL2 tengingar Mílu eru í flestum tilfell­ um að bjóða sínum viðskiptavinum 50 Mb/s niðurhalshraða. Þess ber þó að geta að þetta er bara Internet hraði. Auka 20 Mb/s fyrir IP­sjónvarp, allt að tvær HD rásir koma ofan á þessi 50 Mb/s og því er heildahraði VDSL2 tenginga Mílu um 70 Mb/s. Mynd 2: Þróun á xDSL tækni Í dag er almennt ekki mikil eftirspurn eftir hraðari tengingum en 50 Mb/s á sekúndu. Venjulegt heimili nýtir aðeins hluta af þeim hraða, en sem dæmi þá tekur netleikur yfirleitt ekki meira en 0,5 – 1 Mb/s og sama má segja um tónlistarveitur eins og Spotify. Netflix eða Apple­tv eða annað myndbandsstreymi, tekur um það bil 3­5 Mb/s. Eftirspurnin á þó vafalaust eftir að breytast, eins og þróun undanfarinna ára hefur sýnt. Míla mun fylgjast vel með þeirri þróun og vera tilbúin til að svara kröfum sinna viðskiptavina í framtíðinni. Ljósveitan aðgengileg um allt land Míla hefur þegar tengt yfir 114 þúsund heimili um land allt og í hverri viku bætast fleiri heimili við sem hafa möguleika á að nýta sér Ljósveitu. Götuskápar hafa verið settir upp á höfuðborgarsvæðinu og á þéttbýlisstöðum á Suðvesturlandi. Einnig stendur yfir vinna við að setja upp götuskápa á stærri þéttbýlisstöðum utan Suðvesturlands á árinu s.s. á Akureyri, Sauðárkróki, Vestmannaeyjum og á Ísafirði. Á minni þéttbýlisstöðum á landinu er ljósveitubúnaður settur upp í sím­ stöð og geta heimili sem eru í innan við 1000 metra línulengd frá stöð nýtt sér þjónustuna. Nú þegar er Ljósveita frá símstöð komin á flesta þéttbýlisstaði á landinu og heldur uppbygging áfram á þessu ári.. ADSL á Íslandi 15 ára Í desember síðastliðnum voru komin 15 ár síðan byrjað var að veita ADSL þjónustu á landinu. Fyrsti ADSL viðskiptavinurinn var tengdur þann 1. desember 1999. Þótti ADSL þjónustan mikil framför á þeim tíma og svaraði hún eftirspurn eftir hraða tengingar sem þá var. En síðustu ár hefur eftirspurn eftir hraðari tengingum aukist hratt, ekki síst með tilkomu nýrrar tækni í tölvubúnaði, símum og fleiru, og er nú óðum verið að skipta ADSL þjónustu út fyrir hraðari þjónustu sem er veitt með xDSL­ eða ljósleiðaratækni. ADSL svarar þó enn almennri þörf fyrir internethraða og getur vel skilað IP sjónvarpi til notenda.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Verktækni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.