Verktækni - 2015, Page 71
verktækni 2015/20 71
tækni- OG vísindaGreinar
Hljóðhönnun Framhaldsskólans í Mosfellsbæ
Guðrún Jónsdóttir, hljóðverkfræðingur
Verkfræðistofan Efla, Höfðabakka 9, 110 Reykjavík
Fyrirspurnir: gudrun.jonsdottir@efla.is
Húsnæði framhaldsskólans í Mosfellsbæ er bygging þar sem sveigjan-
leiki er hafður í fyrirrúmi og opin og fjölbreytileg rými nýtt til þess að
mæta óhefðbundnum og verkefnamiðuðum kennsluaðferðum sem
eiga að stuðla að auknum samskiptum og nýsköpun.
Hljóðhönnun húsnæðisins tekur mið af þessum markmiðum og
notkun og starfsemi hvers rýmis fyrir sig þar sem markmið fyrir hljóð-
hönnun voru háleit. Hér var leitast við að nota sveigjanlegar og
umhverfisvænar lausnir í samvinnu við arkitekta og aðra hönnuði.
Í þessari samantekt eru einungis nokkur atriði kynnt og er greina-
gerðin því ekki tæmandi fyrir öll atriði tengdri hljóðhönnun hússins.
Hljóðhönnun Framhaldsskólans í Mosfellsbæ var unnin af EFLU
verkfræðistofu en hönnun skólabyggingarinnar fór fram á árunum
2010-2012,framkvæmdir hófust árið 2012. Byggingin er rúmlega 4000
m2 og hýsir í dag 400-500 nemendur ásamt kennurum og öðru starfsfólki
skólans. Hönnunarteymi FMOS samanstóð af A2F arkitektum, Almennu
verkfræðistofunni (burðarþol, lagnir og loftræsingu ásamt umhverfisráðgjöf),
Drekaflugu lýsingarhönnun, VSI brunaráðgjöf og MFF landslagshönnun.
Bryndís Bolladóttir hönnuður annaðist listskreytingu skólans. Verkkaupi er
Framkvæmdasýsla Ríkisins og Mosfellsbær. Bygging er vottuð samkvæmt
BREEAM umhverfisvottunarkerfi og hlaut húsið einkunnina „Very Good“.
INNGANGUR
Mynd 1: Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ. Ljósmyndari: Íris Ríkharðsdóttir.
Hönnunarmarkmið – forsendur
Þegar hönnun skólabyggingarinnar fór fram, lá íslensk byggingarreglu-
gerð frá árinu 1998 til grundvallar.
Árið 2011 tók gildi íslenskur gæðaflokkunarstaðall ÍST45 fyrir hljóð-
flokkun íbúðar- og atvinnuhúsnæðis. Í staðlinum er að finna fjóra
gæðaflokka þar sem gerðar eru mestar kröfur í hljóðflokki A en minnstu
kröfurnar má finna í hljóðflokki D. Á þeim tíma sem hönnun fram-
haldsskólans stóð yfir, voru gefin út drög að þessum staðli og þar mátti
finna viðmiðunargildi fyrir framhaldsskóla. Markmið fyrir hljóðhönnun
byggingarinnar var að uppfylla hljóðflokk C eftir fremsta megni í sam-
ræmi við gæðastaðalinn.
Í ákveðnum rýmum var markmið að uppfylla kröfur hljóðflokks B úr
fyrrnefndum staðli. Í töflum 1-4 má sjá hluta af hönnunarforsendum.