Morgunblaðið - 19.05.2021, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2021
Ársfundur Lífeyrissjóðs
Tannlæknafélags Íslands
Ársfundur Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands
verður haldinn föstudaginn 4. júní 2021 kl. 16.00
í útibúi Landsbankans Austurstræti 11.
Dagskrá fundarins er samkvæmt samþykktum
sjóðsins.
Upplýsingar um fundinn og ársreikning má nálgast á
heimasíðu sjóðsins www.landsbankinn.is/ltfi
Stjórn Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, varaði eindregið við því í
gær að breskir þegnar legðust í
ferðalög til annarra landa en þeirra
sem hefðu fengið grænt ljós. Ísland
er eitt fárra landa þar á meðal.
Í Bretlandi tók á mánudag gildi
„umferðarljósakerfi“ um ferðalög,
þar sem lönd fá grænt ljós, gult eða
rautt eftir smithættu. Í gær tók Bor-
is svo af öll tvímæli um að lönd með
gult ljós væru ótæk til þess að fara
þangað í sumarleyfi.
Aðeins 12 lönd eða svæði fá grænt
ljós, sum æði fjarlæg eða fátíð til
sumarleyfisferða. Í raun eru þar að-
eins þrjú lönd sem telja má til al-
gengra áfangastaða Breta í sumar-
leyfum: Ísland, Ísrael og Portúgal.
Ekkert stökk hjá Bretum
Kristófer Oliversson, formaður
Félags í hótel- og gistiþjónustu
(FHG), segir þessa yfirlýsingu
ánægjulega, en óvíst að hún hafi
mikil áhrif. „Það er nokkuð síðan
Bretar gáfu okkur grænt ljós, en
þótt þeir hafi verið að kroppast inn
hafa þeir ekki verið að koma hingað í
þeim mæli sem við hefðum kosið.“
Kristófer minnir á að Bretar hafi
verið með helstu ferðamönnum í
landinu yfir veturinn, en að sumar-
lagi virðist þeir fremur kjósa sólina
og því flykkist þeir nú til Portúgals.
„Auðvitað er að lifna mjög yfir
bókunum almennt, sérstaklega síð-
ari hluta sumars, en það hefur ekki
orðið neitt stökk hjá Bretunum enn.
Því miður.“ »ViðskiptaMogginn
Ísland með grænt
ljós hjá Bretum
- Boris varar við „gulum svæðum“
AFP
Bretland Boris Johnson mælir með
ferðum til „grænna“ landa.
Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata, er fyrsta
transkonan til þess að gegna embætti forseta borg-
arstjórnar. Hún tók formlega við embættinu í gær á
fundi hennar. Alexandra heillaðist af ráðhúsinu og
borgarmálunum strax á barnsaldri, en í æsku vandi
hún komur sínar þangað til ömmu sinnar sem vann í
móttöku hússins. Pawel Bartoszek, sem áður var for-
seti borgarstjórnar, mun nú fara fyrir skipulagsráði.
Morgunblaðið/Eggert
Formlega tekin við embætti forseta
Fyrsta transkonan í embætti forseta borgarstjórnar
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Frumvarp um að Ríkisútvarpið ohf.
(Rúv.) hætti að selja auglýsingar og
kostun dagskrárliða er komið á dag-
skrá Alþingis. Markmið frumvarpsins
er að jafna samkeppnisstöðu einka-
rekinna fjölmiðla gagnvart ríkisreknu
fjölmiðlafyrirtæki. Flutningsmenn
eru þeir Óli Björn Kárason og Brynj-
ar Níelsson, þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins.
„Þetta er tiltölulega einföld breyt-
ing í tveimur skrefum,“ segir Óli
Björn í samtali við Morgunblaðið.
„Við leggjum til að á næsta ári verði
verulega dregið úr samkeppnis-
rekstri Rúv. og alfarið eftir 2023.“
Lagt er til bráðabirgðaákvæði um
að bein sala á auglýsingum verði
bönnuð, hlutfall auglýsinga megi ekki
fara yfir fimm mínútur á klukkutíma,
ekki megi slíta í sundur dagskrárliði
með auglýsingum og loks er lagt til að
kostun verði bönnuð.
„Þetta er einfaldlega lykilforsenda
þess að hér verði til heilbrigt og eðli-
legt rekstrarumhverfi frjálsra fjöl-
miðla,“ segir Óli Björn.
Hann gefur lítið fyrir hugmyndir
um að þá þurfi að „bæta“ Rúv. tekju-
missinn með skattfé. „Þá er spurning
hvort Ríkisútvarpið eigi ekki að bæta
sjálfstæðum miðlum það tjón sem
þeir urðu fyrir þegar Rúv. valtaði yfir
auglýsingamarkaðinn í kringum
heimsmeistarakeppnina.“
Hlutverk ríkisfjölmiðilsins
Hann segir að í framhaldinu þurfi
menn að ræða af hreinskilni hvert
hlutverk Rúv. eigi að vera. „En það
getur ekki verið fjölmiðill sem er í
beinni harðri samkeppni við sjálf-
stæða fjölmiðla og brenglar allan
markaðinn. Það getur ekki verið hlut-
verk ríkisfjölmiðils.“
Óli Björn segist vongóður um und-
irtektir þingmanna í öðrum flokkum.
„Ef menn meina eitthvað með því að
búa til heilbrigt umhverfi fyrir fjöl-
miðla, þá hljóta þeir að vera tilbúnir
að stíga það skref að draga Rúv. út af
samkeppnismarkaði, að minnsta kosti
hvað varðar tekjumyndun fjölmiðla.“
Auglýsingar og kostun af Rúv.
- Frumvarp sem tekur Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði á dagskrá Alþingis
- Gert ráð fyrir 2 ára aðlögun - Kemur í ljós hvað menn meina segir Óli Björn
Morgunblaðið/Eggert
Alþingi Óli Björn Kárason er ásamt Brynjari Níelssyni flutningsmaður
frumvarpsins um að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði.
Kyrrðarstund var haldin við Tjörn-
ina í Reykjavík í gærkvöldi, þar
sem kveikt var á kertum til minn-
ingar um þau börn og fullorðna
sem látið hafa lífið í árásum Ísraels
á Palestínu síðustu níu daga.
Í yfirlýsingu frá félaginu Ísland-
Palestína er bent á að 209 ein-
staklingar hafi verið drepnir í árás-
um Ísraels á Palestínu undanfarna
daga, þar af 61 barn. Ekki sjái fyrir
endann á árusunum.
Íbúar Palestínu búi við stöðugan
ótta við að verða drepnir, að hús
þeirra verði jöfnuð við jörðu og um
að missa ástvini. Á sama tíma kom-
ist flóttamenn ekki í burtu frá
Gaza-svæðinu.
Kveiktu á kertum við Tjörnina
- Kyrrðarstund
til minningar um
látna í Palestínu
Morgunblaðið/Eggert
Enginn greindist
með kórónuveir-
una innanlands í
fyrradag. Í gær
voru 58 í ein-
angrun og 120 í
sóttkví, sem er
fækkun smita frá
deginum áður
þegar 63 voru í
einangrun og 165 í sóttkví.
Ekkert smit greindist í fyrri eða
seinni skimun á landamærunum í
fyrradag en einn bíður eftir niður-
stöðu mótefnamælingar og annar
mældist með mótefni. Á sunnudag
greindist eitt smit við fyrri skimun
á landamærunum og einn reyndist
vera með mótefni.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir fagnaði tíðindunum er
mbl.is ræddi við hann í gær. Hann
taldi mögulegt að hafa afléttinga-
áætlun stjórnvalda til hliðsjónar
þegar kæmi að afléttingum að-
gerða í næstu viku. Núverandi að-
gerðir falla úr gildi 26. maí nk.
Enginn
greindur