Morgunblaðið - 19.05.2021, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 19.05.2021, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2021 Brussel. Eftirminnilegustu tónleik- arnir voru með Azhkenazy og Kammersveit Reykjavíkur í Brugge og ég held að ég hafi séð allflesta núlifandi píanósnillinga heimsins á tónleikum. Ég tel að maður komist ekki nær himnaríki en að hlusta á Mozart, en á dægur- lagasviðinu eru það Bítlarnir og Cream.“ Fjölskylda Börn Hermanns með fyrrverandi eiginkonu sinni, sr. Solveigu Láru Guðmundsdóttir, f. 13.11. 1956, vígslubiskupi á Hólum eru 1) Bene- dikt H. Hermannsson, f. 31.1. 1980, tónlistarmaður og tónmenntakenn- ari, maki: Auður Jörundsdóttir, for- stöðumaður Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar. Þau eru bú- sett í Reykjavík. Synir þeirra eru Guðmundur Ari Benediktsson, f. 6.4. 2008, og Þorlákur Benedikts- son, f. 12.9. 2011; 2) Kristín Anna Hermannsdóttir, f. 7.7. 1988, bók- menntafræðingur, búsett í Reykja- vík. Sonur hennar er Huldar Krist- ínarson Cederborg, f. 11.7. 2014; 3) Vigdís María Hermannsdóttir, f. 13.7. 1990, mannfræðingur, búsett í New Orleans. Systkini Hermanns eru Vigdís M. Sveinbjörnsdóttir, f. 11.1. 1955, bóndi og húsmóðir á Egilsstöðum; Lóa K. Sveinbjörnsdóttir, f. 1.11. 1961, viðskiptafræðingur, búsett í Garðabæ; Dagfinnur Sveinbjörns- son, f. 23.3. 1973, stjórnmálafræð- ingur og forstjóri Arctic Circle, bú- settur í Reykjavík. Foreldrar Hermanns voru hjónin Pálína Hermannsdóttir, f. 12.9. 1929, d. 4.4. 2018, húsmóðir og Sveinbjörn Dagfinnsson, f. 16.7. 1927, d. 16.5. 2018, ráðuneytisstjóri. Hermann Sveinbjörnsson Margrét Þorláksdóttir húsmóðir í Reykjavík Steingrímur Guðmundsson húsasmíðameistari í Reykjavík Vigdís Oddný Steingrímsdóttir húsmóðir í Reykjavík Hermann Jónasson forsætisráðherra, bjó í Reykjavík Pálína Hermannsdóttir húsmóðir í Reykjavík Pálína Guðný Björnsdóttir ljósmóðir og húsmóðir á Syðri-Brekkum Jónas Jónsson smiður og bóndi á Syðri- Brekkum í Blönduhlíð, Skag. SteingrímurHermannsson forsætisráðherra Þuríður Magnúsdóttir húsmóðir í Helli og Reykjavík Halldór Jónsson bóndi í Helli í Ölfusi og verkamaður í Reykjavík Magnea Ósk Halldórsdóttir húsmóðir í Reykjavík Dagfinnur Sveinbjörnsson magnaravörður í Reykjavík Anna Ólafsdóttir húsmóðir í Dísukoti Sveinbjörn Guðmundsson bóndi í Dísukoti í Þykkvabæ Úr frændgarði Hermanns Sveinbjörnssonar Sveinbjörn Dagfinnsson ráðuneytisstjóri í Reykjavík VIÐ LEITUM AÐ LISTAVERKUM Áhugasamir geta haft samband í síma 551-0400 ERUM AÐ TAKA Á MÓTI VERKUM Á NÆSTA LISTMUNAUPPBOÐ Rauðarárstígur 12-14 · 105 Reykjavík · sími 551 0400 · www.gallerifold.is „ÞARNA ERTU ÞÁ. VAR ÉG AÐ HRJÓTA ENN EINA FERÐINA?“ „HVERNIG Á ÉG AÐ GETA FUNDIÐ NOKKURN SKAPAÐAN HLUT Á MEÐAN ÞÚ GENGUR ALDREI FRÁ RAKVÉLINNI?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... stundum yfirnáttúruleg. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann LÍSA, ÞÚ ERT ÓLÍK ÖÐRUM KONUM SEM ÉG ÞEKKI ÞÚ HEFUR EKKI HLAUPIÐ ÖSKRANDI Í BURTU ENN HÚN VAR Á UNDAN MÉR! ÉG HEF ÞAÐ STERKLEGA Á TILFINNINGUNNI AÐ HRÓLFUR SÉ AÐ BRJÓTAST INN TIL OKKAR! ERTU MEÐ ÁHYGGJUHNÚT Í MAGANUM? EKKI BEINT! Góð yfirlitsgrein var um HelguGuðmundsdóttur í Morgun- blaðinu á mánudag, en þá varð hún 104 ára. Pálmi Jónsson á Sauð- árkróki brast í yrkingar þegar hann las um Helgu: Gleðinnar hún vekur völd valdi réttu trúna Fjögur ár og eina öld á að baki núna Þegar vel liggur á mér fer ég vestur á Granda og fæ mér egg og beikon í Kaffivagninum. Þar eru karlar á mínu reki, sem tala um pólitík og norðaustanáttina í Vopnafirði. Svo höfum við vit á hverju því sem á góma ber. Þar lærði ég þessa stöku eftir Gunn- laug Pétursson: Bráðum ellin banar mér, bíður moldin þekka en þessa stund sem eftir er ætla ég mér að drekka. Helgi R. Einarsson sendi mér póst: „Lítil hnáta, að verða tveggja, svaf hjá afa og ömmu í nótt. Er hún vaknaði skríkjandi, öryggið uppmálað, voru fréttirnar í útvarpinu“: Ekki þetta Öll þráum við ástríki’ og yl og það að vera til, en er guð sinn menn blóta og börnin svo skjóta í barnaskap ekkert ég skil. Sigurlín Hermannsdóttir skrifar í Boðnarmjöð: „Margir kannast við vísu eftir Guðmund Þorláksson sem byrjar svo: Kæpir selur, kast- ar mer, þar sem þeim heitum sem notuð eru yfir fæðingar hjá ýmsum dýrategundum eru gerð skil. En það er fleira þar sem sérstök heiti eru notuð yfir sama fyrirbærið milli tegunda og vonandi að þessi fjölbreytileiki fái að lifa sem lengst. Margir sjá þar skýrar skorður, skottaheiti eru ei stagl: Hali, stertur, stél og sporður, stýri, rófa, dindill, tagl. Úrgangur sem undan hrýtur eins fær nöfn er fylgja hjörð: Mykja, dritur, skarn og skítur, skepnum fylgir tað og spörð. Björn Ingólfsson hélt áfram: Mús á hala, hestur tagl. Hrútur dindill, stélið gagl. Nautið stertinn, rakki rófu. reyður sporð en skott á tófum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Frá Kaffivagninum og orð um menn og skepnur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.