Morgunblaðið - 19.05.2021, Page 12

Morgunblaðið - 19.05.2021, Page 12
12 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2021 BÍLABÚÐ BENNA KOLEFNISJAFNAR OPEL benni.is Bílasala Suðurnesja Reykjanesbæ Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 Ib bílar Selfoss Fossnes A Sími: 480 8080 Bílabúð Benna Reykjavík Krókháls 9 Sími: 590 2020 NÝ MOKKA 100% RAFMAGN KYNNT Á NÆSTUNNI BIÐIN STYTTIST Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Loftárásir og eldflaugar gengu enn á víxl í átökum Ísraels og Hamas-sam- takanna á Gaza-svæðinu. Tveir verk- smiðjustarfsmenn frá Taílandi féllu í eldflaugaárás samtakanna á Ísrael í gær, og hafa nú tólf fallið samtals Ísraelsmegin í átökunum frá upphafi þeirra á mánudaginn í síðustu viku. Á Gaza-svæðinu hafa nú 213 manns fallið í loftárásum Ísraela, en þar af er 61 barn. Þá hafa rúmlega 1.400 manns særst samkvæmt tölum Hamas-samtakanna. Fundað í fjórða sinn Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundaði í gær í fjórða sinn um ástandið. Antony Blinken, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sem nú dvelur á Íslandi, neitaði í gær ásök- unum þess efnis að Bandaríkjamenn stæðu í veginum fyrir sameiginlegri ályktun ráðsins. Sagði Blinken að Bandaríkjamenn legðu þvert á móti nótt við nýtan dag til þess að finna friðsamlega lausn á deilunni. Joe Biden Bandaríkjaforseti ræddi við Benjamín Netanyahu, for- sætisráðherra Ísraels, símleiðis í fyrrinótt. Biden hafði til þessa ekki tekið undir kröfur annarra þjóðar- leiðtoga um að stilla yrði þegar í stað til friðar í átökunum, en hann tjáði Netanyahu að Bandaríkjastjórn vildi sjá vopnahlé, án þess þó að krefjast þess að það yrði án tafar. ESB-ríkin ekki einróma Angela Merkel Þýskalandskansl- ari og Abdúlla 2. Jórdaníukonungur ræddu í gær símleiðis um ástandið og sammæltust þar um að kalla eftir vopnahléi. Deginum áður höfðu Emmanuel Macron Frakklands- forseti og Abdel Fattah al-Sisi, for- seti Egyptalands, sammælst um að þeir myndu reyna að greiða fyrir samkomulagi milli stríðandi fylk- inga. Josep Borrell, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, tók undir þær kröfur og sagði það „forgangsmál“ að stöðva allt ofbeldi þegar í stað, en ummæli Borrells féllu eftir fund utanríkisráðherra aðildarríkja sam- bandsins. Yfirlýsing Borrells var þar sam- þykkt af öllum ríkjunum að Ung- verjalandi frátöldu, en Péter Szijj- ártó, utanríkisráðherra landsins, sendi frá sér sérstaka yfirlýsingu þar sem hann fordæmdi „einhliða yfirlýsingar“ Evrópusambandsríkj- anna sem beindust gegn Ísraels- mönnum. Standa ekki í vegi ráðsins - Ekkert lát er á árásum á báða bóga í átökunum fyrir botni Miðjarðarhafs - Öryggisráðið fundaði í fjórða sinn - Ungverjar fordæma yfirlýsingu Borrells AFP Átök Ísraelsk fallbyssa beinir skot- um sínum að Gaza-svæðinu í gær. Minnst 27 hafa látist og yfir 90 manns er saknað eftir fellibyl á Indlandi. Bylurinn, sem ber nafnið Tauktae, skall á vesturströnd Indlands á mánu- sem voru á hættusvæðum áður en fellibylurinn skall á. Þá hafa 16 þúsund heimili eyðilagst og fleiri en 2.400 þorp eru án rafmagns. dag og er talinn einn sá skæðasti í áratugi. Vind- hviður náðu allt að 130 kílómetra hraða. Yfir 200 þúsund íbúum var gert að yfirgefa heimili sín AFP Einn skæðasti fellibylur Indlands í nokkra áratugi Spánverjar köll- uðu í gær sendi- herra Marokkós á teppið eftir að rúmlega 8.000 flóttamenn fóru yfir landamærin til borgarinnar Ceuta. Borgin er önn- ur tveggja sem Spánverjar eiga á meginlandi Afr- íku, en samskipti Spánar og Mar- okkós hafa verið stirð vegna deilu um stjórnmálalega stöðu Vestur- Sahara. Pedro Sanchez forsætisráð- herra Spánar heimsótti Ceuta í gær og hét því að aftur yrði komið á röð og reglu við landamærin. Marokkómenn kölluðu sendiherr- ann heim eftir fundinn í utanrík- isráðuneytinu, og höfðu Spánverjar þegar vísað um helmingi fólksins aftur yfir landamærin í gærkvöldi. Metfjöldi flótta- manna frá Marokkó Pedro Sanchez SPÁNN Auðkýfingurinn Bill Gates er nú undir kastljósi fjölmiðla eftir að ljóstrað var upp um að skilnað hans og Melindu, eiginkonu hans til nærri þriggja áratuga, mætti rekja til ástar- sambands hans við einn af starfs- mönnum Microsoft. Vefmiðillinn Daily Beast greindi frá því á mánudaginn að Gates hefði sóst eftir vináttu milljarðamærings- ins og barnaníðingsins Jeffreys Ep- stein árið 2011, ári eftir að hann fékk á sig dóm fyrir kynferðisbrot gagnvart barni.. Gates hafi bundið vonir við að Ep- stein gæti hjálpað sér að fá friðar- verðlaun Nóbels, en þeir tveir munu hafa fundað með formanni norsku verðlaunanefndarinnar árið 2013 heima hjá Thorbirni Jagland, fyrr- verandi forsætisráðherra Noregs. Ekki varð hins vegar af verðlauna- veitingunni, og mun Gates hafa slitið samskipti sín við Epstein skömmu síðar að ráði Melindu. Talsmaður Gates segir að hann hafi einungis hitt Epstein á árunum 2011-2013 til þess að leita fjármagns til góðgerð- armála og sjái eftir því. Taldi Epstein geta útvegað sér Nóbel Bill Gates BANDARÍKIN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.