Morgunblaðið - 19.05.2021, Page 15

Morgunblaðið - 19.05.2021, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2021 Sjónarspil Eldgosið í Geldingadölum á Reykjanesskaga sést víða að, m.a. frá Kjalarnesi, og eldbólstrarnir sem myndast yfir bullsjóðandi gosinu.Tilkomumikil sjón sem heillar marga. Ólafur Þórisson „Sjávarútvegur hef- ur verið uppspretta helstu tækniframfara og nýsköpunar í hinu íslenska hagkerfi og samvinna fyrirtækja í sjávarútvegi, vísinda- samfélaginu og yfir- valda hefur verið mikil og öflug. Ísland hefur náð einstökum árangri síðustu áratugi á þessu sviði og hefur þar jafnvel alþjóðlega forystu, ekki síst í nýsköpun og verð- mætasköpun sem tengist hinum ýmsu hliðargreinum sjávarútvegs. Þessi árangur hefur vakið athygli víða, m.a. hjá erlendum fjárfestum sem hafa í auknu mæli lagt fé í ís- lensk fyrirtæki sem starfa í hlið- argreinum sjávarútvegs.“ Þetta er ein niðurstaða í viðamik- illi skýrslu um stöðu og horfur í ís- lenskum sjávarútvegi og fiskeldi sem unnin var af óháðum sérfræðingum að beiðni Kristjáns Þórs Júlíussonar sjávarútvegsráðherra. Í skýrslunni kemur fram að fyrirtæki í hlið- argreinum sjávarútvegs starfa á margvíslegum sviðum; við þróun og framleiðslu lífefna og lækningavara úr sjávarfangi, þróun og framleiðslu umbúða fyrir sjávarafurðir, þróun vinnslu- og tæknilausna fyrir sjávar- útveg. Árið 2018 var fjöldi ársverka í fyrirtækjum 2.540 og námu sam- anlagðar rekstrartekjur um 78 millj- örðum króna. 615 milljarða verðmæti Skýrslan er mikilvægt innlegg í umræðuna um sjávarútveg, stöðu hans og þá ótrúlegu möguleika sem fyrir hendi eru á komandi árum. Áætlað er að framleiðsluverðmæti sjávarútvegs og tengdra greina hafi verið um 332 milljarðar króna árið 2019 og þar af hafi verðmæti veiða og vinnslu verið 260 milljarðar. Fram- tíðin getur verið björt því verðmætasköpun í þessum greinum gæti aukist í 615 milljarða árið 2030. Reiknað er með mestum vexti í fiskeldi og hröðum vexti í líftækni og ör- þörungum. Með sífellt aukinni tækni og bættri nýtingu, ekki síst upp- sjávarfisks, er hægt að ná fram auknum verð- mætum í vinnslu, þótt ekki komi til aukning í afla. Skýrsluhöfundar telja að erfitt sé að meta verðmætaaukningu í búnaði og þekkingu en benda á að á síðustu árum hafi orðið mikil þróun hjá þess- um fyrirtækjum; nýjar vörur og tækni komið fram svo sem vatns- skurður, ný vinnslulína, ofurkæling, nýr frystibúnaður fyrir uppsjávar- fisk, ný hönnun á ísfiskskipum, nýjar umbúðir og meiri rekjanleiki. „Þró- unin mun halda áfram og næstu tíu ár er reiknað með að fram- leiðsluverðmæti nær tvöfaldist. Mörg íslensk fyrirtæki hafa náð góð- um árangri á erlendri grund og byggist hann oft á öflugu samstarfi við innlend fyrirtæki og krefjandi heimamarkað. Ef vöxtur verður í öðrum hlutum virðiskeðjunnar mun það hafa bein áhrif á þróun á sviði búnaðar og þekkingar.“ Hafi einhverjum ekki verið það ljóst áður þá ætti enginn að þurfa að efast um, eftir lestur skýrslunnar, að sjávarútvegur hefur og verður afl- vaki öflugrar nýsköpunar innan og utan greinarinnar. Millifærslur og gengisfellingar Með fiskveiðistjórnunarkerfinu hefur ekki aðeins verið lagður grunnur að nýsköpun og auknum verðmætum heldur hefur Ísland skapað sér algjöra sérstöðu meðal ríkja OECD þegar kemur að greiðslum sjávarútvegsfyrirtækja fyrir aðgang að auðlindum. Íslenskur sjávarútvegur er sá eini sem borgar meira til hins opinbera en hann fær greitt úr opinberum sjóðum. „Sú staðreynd að íslensk sjávarútvegs- fyrirtæki geta staðist samkeppnina jafn vel og raun ber vitni er annars vegar merki um góða stjórn fisk- veiða og fjárhagslegan styrk sjávar- útvegs á Íslandi en einnig um bágt ástand í fiskveiðum annars staðar.“ Sem sagt: Íslendingum hefur tek- ist að byggja upp einhvern hag- kvæmasta sjávarútveg heims, sem er skattlagður sérstaklega á sama tíma og flestar þjóðir halda úti umfangs- mikilli opinberri aðstoð. Þessa rík- isstyrktu starfsemi hefur íslenskur sjávarútvegur staðist í harðri sam- keppni á erlendum mörkuðum. Það er því magnað að til séu stjórnmálamenn sem tala og berjast fyrir því að kollvarpa þessu kerfi og veikja enn frekar samkeppnisstöð- una með ofursköttum. Ó, hve sagan gleymist fljótt. Fyrir daga kvótakerfisins var út- gerðar- og fiskvinnslufyrirtækjum haldið við hungurmörk með milli- færslum og gengisfellingum. Auð- lindum var sóað og sóknarkerfi og pólitísk miðstýring leiddi til offjár- festingar sem síðar var mætt með sérstökum úreldingarsjóði fyrir fiskiskip. Olíusjóður niðurgreiddi ol- íukostnað fiskiskipa og afurðalán voru veitt til að styðja við útflytj- endur. Framkvæmdastofnun ríkisins veitti útgerðarfyrirtækjum sérstaka fjárhagsaðstoð til að halda þeim á lífi. Sveitarsjóðir héldu veikburða bæjarútgerðum á lífi. Kerfið allt var rotið – gegnsýrt af millifærslum til að styðja við óhag- kvæman og ósjálfbæran sjávarútveg. Búin var til eins konar vítisvél þar sem gengi krónunnar var eitt helsta hagstjórnartækið og það fellt reglu- lega. Gengisfelling, gengissig, geng- isaðlögun urðu orð sem voru flestum töm – hluti af veruleika íslensks launafólks sem bar byrðarnar. Gjald- eyrisafgreiðslur bankanna voru lok- aðar þegar „leiðrétta“ þurfti gengið til að halda óarðbærum atvinnu- rekstri áfram í súrefnisvél. Árið 1980 hækkaði gengi dollars um liðlega 160% og á sex árum til 1986 féll krón- an um tæp 600% gagnvart dollar. Verðbólga var krónísk og át upp all- ar kauphækkanir. Árin 1980 til 1982 var verðbólga alltaf yfir 50% og 1983 var verðbólga 84% og fór upp fyrir 100% á tímabili. Auðvelt að eyðileggja Dagar óarðbærs sjávarútvegs, of- fjárfestingar, ofveiði og gengisfell- inga eru fyrir löngu að baki. Með kvótakerfinu var hægt en örugglega sagt skilið við kerfi sem var fjár- magnað með lakari lífskjörum al- mennings. Nú er ekki tekist á um það við ríkisstjórnarborðið eða í þingsal hvort fella eigi gengi krón- unnar um 10, 20 eða 30 prósent eða auka niðurgreiðslur á olíukostnaði fiskiskipa. Bæjarútgerðir íþyngja ekki lengur sveitarsjóðum. Átökin eru um hversu þungar álögur eigi að leggja á sjávarútveg umfram aðrar atvinnugreinar. Og að einu leyti er þessi ágreiningur góður því hann er merki um hversu vel hefur tekist til við skipulag fiskveiðistjórnarkerf- isins, sem er fyrirmynd annarra ríkja sem eru með sjávarútveg í sam- bandi við opinberar súrefnisvélar. Skýrslan um stöðu og horfur í ís- lenskum sjávarútvegi og fiskeldi, leiðir í ljós mikinn styrk íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja en ekki síður hve tækifærin eru mikil á komandi árum í tengdum greinum. Við getum leyft okkur að dreyma um ævintýri um allt land. En það er auðvelt að eyðileggja ævintýri og snúa eft- irsóknarverðri stöðu í efnahagslega martröð. Eftir Óla Björn Kárason »Með stjórnkerfi fisk- veiða hefur verið lagður grunnur að ný- sköpun og auknum verð- mætum og Ísland skap- að sér algjöra sérstöðu meðal ríkja OECD. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Sjávarútvegur – aflvaki öflugrar nýsköpunar Framleiðsluverðmæti í sjávarútvegi* *Sjávarútvegur og tengdar greinar – 2019 og spá 2030 í milljörðum kr. 200 150 100 50 0 2019 2030 Hráefni Vinnsla Fiskeldi Hliðar- afurðir Líftækni Búnaður og þekking Þörungar Örþörungar 145 180 170 125 30 40 35 5 30 115 25 20 18 1 26 H ei m ild :S ta ð a o g h o rf u r í ís le n sk u m sj áv ar ú tv eg io g fi sk el d i Framleiðsluverðmæti samtals 2019 2030 332 615Ma.kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.