Morgunblaðið - 19.05.2021, Síða 18

Morgunblaðið - 19.05.2021, Síða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2021 Ég býð krafta mína fram til að vera fulltrúi þeirra sem deila þeirri sýn minni að Ísland sé allra besta landið til að ala upp börnin okkar og að við vinnum áfram að uppbyggingu svo það haldist þannig. Ég óska eftir fjórða sæt- inu í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Suð- vesturkjördæmi. Einstaklingar verða að finna að þeir eigi fulltrúa á Alþingi sem endurspeglar þeirra lífssýn og áherslur. Ég er þessi fulltrúi fyrir ungt fjöl- skyldufólk og ég vil nýta mína rödd til að skapa sem bestar að- stæður fyrir ungt fólk og fjölskyldur þeirra til að búa sér gott líf á Íslandi. Það er mikilvægt að við treystum þeim sem eru að koma sér upp heimili, fæða og klæða börnin og byggja upp sinn starfs- feril til að taka þátt í að móta mál- efni sem varða þau beint. Ég vil vera fulltrúi þessa fólks á Alþingi vegna þess að ég vil taka þátt í að móta Ísland með hugsjónum minnar kynslóðar. Við erum að fóta okkar lífsins veg og reyna að finna lausnir sem henta okkur og samræmast áherslum okkar. Ísland hefur gjörbreyst frá því að foreldrar okkar voru að ala upp börn – tækninni hefur fleygt fram, hugmyndir okkar um uppeldi hafa mót- ast, leikskólar taka inn yngri börn og umhverfi vinnumarkaðarins hef- ur tekið mið af aukinni atvinnuþátttöku kvenna. Það er mikilvægt að foreldrar hafi frelsi til að ráða því hvernig þeir skipta fæðing- arorlofinu sín á milli. Ég tala einnig fyrir því að umgjörðin í mál- efnum barna virki þeim til heilla. Ég brenn fyr- ir framþróun í mennta- málum og mikilvægi þess að nútímavæða kennslu og skapa námsefni sem taki mið af nýjum tímum. Mér finnst skipta máli hverjir stjórna og hvaða hugmyndafræði fær að vera leiðandi í komandi kosningum. Það er hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins og hans góða trú á framtak og frelsi einstaklingsins sem hefur komið okkur svona langt meðal þjóða. Ég vil vera ykkar fulltrúi á Alþingi og þess vegna bið ég um stuðning ykk- ar í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins í Suðvesturkjördæmi dagana 10.-12. júní næstkomandi. Fjölskyldufólk til forystu Eftir Guðbjörgu Oddnýju Jónasdóttur Guðbjörg Oddný Jónasdóttir »Einstakling- ar verða að finna að þeir eigi fulltrúa á Alþingi sem endurspeglar þeirra lífssýn og áherslur. Ég er þessi fulltrúi fyrir fjölskyldufólk. Höfundur er varabæjarfulltrúi í Hafnarfirði og sækist eftir 4. sætinu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. guggao@gmail.com Um þessar mundir er liðið rúmt ár frá því smit vegna Covid-19- pestarinnar greindist fyrst á Íslandi. Sam- félagið hefur gjör- breyst á margan hátt á þeim tíma. Ein af þremur meginstoðum atvinnulífs í landinu er í uppnámi eftir að ferðalög lögðust af að miklu leyti. Atvinnu- leysi hefur náð hæstu hæðum sem þekkst hafa hérlendis. Einstaklingar og heimili hafa einnig orðið fyrir miklum áhrifum þess á margan ann- an hátt en með beinum atvinnumissi. Opinberir aðilar hafa varið gríðar- legum fjármunum til að bregðast við afleiðingum Covid-19 til að draga úr þeim samfélagslegu áföllum sem rið- ið hafa yfir þjóðfélagið. Töluvert hef- ur verið fjallað í fjölmiðlum um við- brögð ríkisvaldsins til að milda áhrif veirunnar á samfélagið. Þau hafa verið fjölþætt, kostað gríðarlega fjármuni en jafnframt skilað veru- legum árangri. Ferðaþjónustan veg- ur misþungt í einstökum sam- félögum. Afleiðingar af hruni hennar hafa því haft mismunandi mikil áhrif á fjárhag einstakra sveitarfélaga. Erfiðast er ástandið þar sem tekjur hafa dregist saman, atvinnuleysi aukist og útgjöld vaxið vegna ástandsins. Afnám fjármálareglna sveitarfélaga Alþingi hefur gripið til nokkurra aðgerða til að milda áhrif Covid-19 á sveitarfélögin. Meðal annars hafa verið veitt bein fjárframlög til val- inna sveitarfélaga sem mótvægi við fjár- hagsleg áföll. Einnig hefur verið gripið til þess ráðs, í tengslum við ástandið í samfélag- inu, að afnema fjár- málareglur sveitarfé- laga út árið 2025. Fjármálareglur sveit- arfélaga eru tvær; jafn- vægisreglan og skuld- areglan. Þær eru skilgreindar í sveit- arstjórnarlögum. Regl- urnar eiga þannig ann- ars vegar að tryggja jafnvægi í rekstri sveitarfélaganna og hins veg- ar að koma í veg fyrir óhóflega skuldasöfnun þeirra. Í tengslum við afnám fyrrgreindra fjármálareglna eru sveitarfélögin jafnframt hvött til að auka fjárfestingar til að styrkja atvinnulífið. Jafnframt hefur Lána- sjóði sveitarfélaga verið gefin heim- ild til að veita sveitarfélögunum lán til að mæta mögulegum rekstrar- halla þeirra sé hann til staðar. Fjárhagslegur vandi sveitarfélaga Fjárhagslegir erfiðleikar sveitar- félaga geta í meginatriðum verið af þrennum toga: Tekjuvandi (tekjur dragast saman án þess að rekstrar- kostnaður lækki samhliða), út- gjaldavandi (rekstrarkostnaður eykst án þess að tekjur vaxi sam- hliða) og skuldavandi (erfiðleikar eru við að greiða afborganir lána og standa við gerðar skuldbindingar). Dæmi eru um að öll þessi atriði fyr- irfinnist á sama tíma hjá einu og sama sveitarfélagi. Ef rekstrarhalli er fjármagnaður með lántökum þá mun skuldavandi fljótlega bætast við tekjuvanda og/eða útgjaldavanda verði ekkert að gert. Slík þróun end- ar ekki nema á einn veg. Líkur á að afkoma sveitarfélaga fari versnandi Fyrstu niðurstöður úr ársreikn- ingum sveitarfélaga fyrir árið 2020 eru að birtast þessa dagana. Ég skoðaði fyrir skömmu aðgengilegar upplýsingar á netinu um útkomuspá sveitarfélaga fyrir árið 2020 og nið- urstöður fjárhagsáætlana (fjárheim- ildir) þeirra fyrir árið 2021. Einfald- asta en jafnframt skilvirkasta aðferðin til að fá gróft mat á fjár- hagsstöðu sveitarfélaga er að skoða veltufé frá rekstri í sjóðstreymisyf- irliti og setja það í samhengi við heildartekjur sveitarfélaga. Sam- andregið yfirlit úr fyrrgreindum gögnum gefur til kynna að afkoma sveitarfélaga hafi versnað verulega á árinu 2020 frá fyrra ári og muni versna enn frekar á árinu 2021. Alls voru aðgengilegar á netinu upplýs- ingar um útkomuspár fyrir árið 2020 frá 39 sveitarfélögum og upplýs- ingar um fjárhagsáætlanir (fjár- heimildir) fyrir árið 2021 frá 49 sveitarfélögum, þar á meðal öllum þeim stærstu. Valkostur við afnám fjár- málareglna sveitarfélaga Mikilvægt er að fylgjast grannt með þróun fjármála sveitarfélaga í samhengi við afnám fjármálareglna sveitarstjórnarlaga út árið 2025. Fjármálareglur sveitarfélaga voru ekki lögfestar að ástæðulausu á sín- um tíma. Tímabundið afnám þeirra getur þannig byggt upp ákveðinn freistnivanda meðal sveitarstjórna við ákvarðanatöku bæði um rekstur og fjárfestingar. Það má setja í sam- hengi við sérstakar áskoranir rík- isvaldsins til sveitarfélaganna að þau ráðist sem fyrst í stærri fjárfest- ingar. Það er álit undirritaðs að það hefði verið hægt að losa um gildandi fjármálareglur sveitarfélaga á skil- virkari og áhættuminni hátt, ef það var talið nauðsynlegt yfir höfuð. Einfaldara hefði verið að opna fyrir umsóknir einstakra sveitarfélaga um tímabundna undanþágu frá gild- andi reglum. Undanþága frá þeim skyldi veitt á grundvelli skýrrar ástæðu fyrir umsókninni og vand- aðrar áætlunar um framvindu fjár- mála viðkomandi sveitarfélags á komandi árum. Samhliða umsókn- inni væri lögð fram útfærsla á því hvernig unnið væri úr þeirri stöðu sem kæmi upp ef viðkomandi sveit- arfélag gæti ekki uppfyllt gildandi fjármálareglur að tímabilinu loknu. Á þennan hátt hefði verið dregið verulega úr hættu á að afnám fjár- málareglna sveitarfélaga geti leitt til að vaxandi tekjuvandi, útgjalda- vandi og/eða skuldavandi hjá ein- stökum sveitarfélögum stefni fjár- málum þeirra í ógöngur með tilheyrandi afleiðingum fyrir íbúana. Fjárhagsleg staða sveitarfélaga og afnám fjármálareglna þeirra Eftir Gunnlaug A. Júlíusson »Mikilvægt er að fylgjast grannt með þróun fjármála sveitar- félaga í samhengi við afnám fjármálareglna sveitarstjórnarlaga út árið 2025. Gunnlaugur A. Júlíusson Höfundur er með MS í viðskipta- fræði með sérþekkingu á fjármálum sveitarfélaga. Hinn 6. október 2016 birtist frétt á vef atvinnuvega- og ný- sköpunarráðuneytis þar sem m.a. var boð- uð vinna við stefnu- mótun á fiskeldi. „Sett verður af stað vinna við stefnumótun fyrir allt fiskeldi á Íslandi. Í þeirri vinnu verður m.a. fjallað um um- hverfisþætti, stjórn- sýslu, gjaldtöku, útgáfu rekstr- arleyfa og menntunarmál ásamt efnahags- og samfélagslegum þátt- um.“ Jafnframt var bent á að „mik- ilvægt er að skilyrði og umgjörð um greinina séu eins og best verður á kosið og í sem mestri sátt bæði við samfélag og umhverfi“. Var það gert? Til fjárhagslegs ávinnings Í stuttu máli var niðurstaðan sú að það sem átti að vera stefnumót- un stjórnvalda og greinarinnar varð að stefnumótun þröngs hóps fjársterkra hagsmunaaðila. Skýrsla starfshóps sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra um stefnumótun í fiskeldi sem gefin var út hinn 23. ágúst 2017 setti leikreglurnar sem voru skjalfestar í lögum um fiskeldi árið 2019 og lagði grunn að fjár- haglegum ávinningi laxeldis- fyrirtækja í meirahlutaeigu er- lendra aðila. Laxeldisfyrirtækin voru skráð á erlendan hlutabréfa- markað, mikil hækkun varð í hafi og búið er að taka út hagnaðinn af eldissvæðunum eins og bent hefur verið á í fyrri greinum. Ávinning- urinn fer að mestu til erlendra fjár- festa en með réttu hefðu skatt- greiðendur átt að njóta. Stefnumörkun sérhagsmunaaðila Það voru fyrst og fremst fulltrú- ar Landssambands fiskeldisstöðva, stjórnarformenn stærstu laxeldis- fyrirtækja landsins, sem réðu för í vinnu stefnumótunarhópsins, með- ferð málsins í stjórnsýslunni og á Alþingi. Niðurstaðan var stefnu- mótun fyrir sérhagsmunaaðila til að tryggja þeim fjárhagslegan ávinning. Lítið eða ekkert tillit var tekið til athugasemda s.s. minni ís- lenskra fiskeldisfyr- irtækja og sveitarfé- laga. Áherslan í stefnumótunarskýrsl- unni var sjókvíaeldi á laxi og mikið lagt upp úr að setja ofan í við aðila sem hafa reynt að sýna ábyrgð í um- hverfismálum. Með innleiðingu áhættu- mats erfðablöndunar var sú stefna lögð að umhverfissóðarnir þurfa ekki að taka til eftir sig. Draga úr kostnaði og setja hindranir Í stefnumótunni var lögð áhersla á að draga úr kostnaði og setja hindranir til að ná fjárhagslegum ávinningi og í stuttu máli má nefna eftirfarandi: - Lágmarka kostnað: Kostnaði vegna umhverfismála var haldið í lágmarki og niðurstaðan er að Ís- lendingar standa að baki nágranna- löndum í umhverfismálum laxeldis. - Auka verðmætin: Leyfistíminn var lengdur og þannig voru eldis- svæðin gerð að meiri verðmætum en á sama tíma gert örðugra að taka á umhverfismálum vegna nauðsynlegra skipulagsbreytinga. - Setja hindranir: Þannig var búið um hnútana að hægt var að halda eldissvæðum fyrir ófrjóan lax a.m.k. í fimm ár án þess að nýta svæðið til eldis eða greiða af því auðlindagjald. Þegar lög um fisk- eldi voru samþykkt árið 2019 var eldi á ófrjóum laxi búið að vera í þróun í þrjá áratugi og ekkert útlit fyrir að þeirri vinnu lyki á næst- unni. Að fanga ríkisvaldið Það er athyglisvert hvernig unn- ið var að lobbýisma til að fylgja málinu eftir í gegnum stjórnsýsluna og alþingi. Fengnir voru aðilar til að vinna að framgagni málsins: - Tengslanet: Fyrrverandi al- þingismaður, ráðherra og forseti al- þingis sem hafði góðan aðgang að áhrifamönnum var dreginn að borð- inu strax í upphafi stefnumótunar- vinnunnar til að fylgja málinu eftir í gegnum stjórnsýsluna og Alþingi – Eflaust hefur verið lagt upp með góðum huga en ekki víst að menn hafi áttað sig á því hvernig málin myndu þróast með miklum fjár- hagslegum ávinningi erlendra fjár- festa og íslenskra frumkvöðla sem áttu sæti í stefnumótunarhópnum. - Starfsmaðurinn: Fenginn var starfsmaður til að vinna fyrir stefnumótunarhópinn sem jafn- framt var starfsmaður stjórnarfor- manns laxeldisfyrirtækis í meiri- hlutaeigu erlendra aðila og sat í stefnumótunarhópum. Starfsmað- urinn hafði aðstöðu í ráðuneytinu. - Opinberir starfsmenn: Því er velt fyrir sér í hve miklum mæli opinberir starfsmenn hafa verið misnotaðir. Formaður stefnumót- unarhópsins, sem var lögfræðingur í ráðuneytinu, fór m.a. að starfa fyrir laxeldisfyrirtæki í meirihluta erlendra aðila fljótlega eftir að stefnumótunarskýrslan var gefin út. Sama má segja um skrifstofu- stjóra ráðuneytisins, sem hvarf úr ráðuneytinu fljótlega eftir útgáfu laganna árið 2019. Það hefur verið kallað eftir skýringum, en líkleg ástæða er seinkun á útgáfu fiskeld- islaganna til að gefa laxeldisfyr- irtækjum í meirihlutaeigu erlendra aðila möguleika á að komast í ákveðna stöðu í umsóknarferlinu. Opinber rannsókn? Ítrekað hefur verið farið fram á það við stjórnskipunar- og eftirlits- nefnd Alþingis frá því að lög um fiskeldi voru samþykkt að opinber rannsókn verði gerð á málinu. Nefndin hefur farið þá leið, vænt- anlega með það í huga að þagga málið niður, að svara ekki beiðni minni um opinbera rannsókn. Það kann að vera að sumum finnist þetta vera eðlileg pólitík – en aðrir benda á að hér sé um að ræða slæmt siðferði eða spillingu þar sem drifkrafturinn er mikil hagn- aðarvon. Stefnumótun stjórn- valda um fiskeldi Eftir Valdimar Inga Gunnarsson » Það sem átti að vera stefnumótun stjórn- valda og greinarinnar varð að stefnumótun þröngs hóps fjársterkra hagsmunaaðila Valdimar Ingi Gunnarsson Höfundur er sjávarútvegsfræðingur og hefur m.a. unnið við mál tengd fiskeldi í rúm þrjátíu ár. valdimar@sjavarutvegur.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.